Víkurfréttir - 29.01.1981, Side 7
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 29. janúar 1981
7
Njarövík:
Lóðaúthlufanir við
Borgarveg og Móaveg
Á fundi bygginganefndar Njarövíkur 15. jan. sl. fóru fram úthlutanir
á 9 lóóum, 7 við Borgarveg og 2 við Móaveg. Umsóknir voru 26.
Samþykkt var að gefa eftirtöldum kost á lóðum með þeim skilmálum
sem fylgdu:
Bjarni Heiðar Helgason, Hjallavegi 1 ........ Borgarvegur 22
Gunnar örn Gunnarsson, Holtsgötu 34 ......... Móaveg 3
Gunnlaugur R. Óskarsson, Hjallavegi 5c ...... Borgarvegur 35
Helgi G. Steinarsson, Hjallavegi 5k ......... Borgarvegur 25
(sleifur Guðleifsson, Borgarvegi 5 .......... Borgarvegur 29
Jón Einar B. Jónsson, Hlíðarvegi 42 ......... Móavegur 1
Júlíus G. Rafnsson, Hjallavegi 5j ........... Borgarvegur 31
Magnús Þ. Daníelsson, Brekkustíg 6 .......... Borgarvegur 23
Þórður Andrésson, Fífumóa 8.................. Borgarvegur 27
Þá var Ólafi Þ. Björnssyni, Hjallavegi 9 úthlutað lóðinni Kópu-
braut 9.
BYGGÐASAFNIÐ
Framh. af 2. síöu
11 á tímabilinu, og þau mál sem
stikla má á voru:
Samstarf við Menningarvöku
Suðurnesja, er hófst 29. marz
1980, en safniö var haft opið alla
dagana sem hún stóð yfir.
Ráðstefna um safnamál var
haldin í Árbæjarsafni 26. og 27.
apríl 1980 og fór framkvæmda-
stjórnin ásamt safnverði til ráð-
stefnunnar.
Unnið var að því að reyna að fá
geymsluhúsnæði fyrir áttæring
sem safnið á og er nú geymdur í
porti tollvörugeymslunnar í
Keflavík. Vonir standa til aö hægt
verði að koma honum í hús á
Vatnsnesi nú í vetur. Bátur þessi
er frá Vörum í Garði.
GATNAGERÐ
Framh. af 3. síöu
viðbrögð fyrir því hvort vilji væri
fyrir hendi til að gera átak í þess-
um málum, umfram það sem gert
hefur verið undanfarin ár."
Vilhjálmur kvaðst hafa orðið
var viö aö sumir teldu þessa
aukningu á þessu sviði vera
óraunhæft verkefnamagn, sem
þarna væri sett fram á 1981 og
1982. Hér væri um að ræöafram-
kvæmdir uþp á 400 millj. gkr., en
miðað við svipaða framkvæmda-
getu á þessu ári og var i fyrra, þá
yrði hér um að ræða 200-250
millj., þannig aö þetta yrði aö
öllum líkindum skorið all mikið
niður þegar til fjárhagsáætlunar
kæmi, vegna augljósra fram-
kvæmda á öðrum sviðum, nema
menn væru tilbúnir til að fórna
einhverjum öðrum framkvæmd-
um og gera eitthvaö aukreistis
fyrir þetta, en það væri fátt sem
benti til þess aö þaö kæmi til.
,,Ég vil benda á, að það er
nauðsynlegt að ákveða skipt-
ingu fjármagns til þessara verk-
efna, áður heldur en farið er að
ákveða einstakar götur, þ.e.a.s.
hver skiptingin skuli vera á milli
gangstéttargerðar og lagningu
slitlags," sagöi Vilhjálmur aö
lokum.
Vilyrði hefur fengist frá Geir
Zoega yngri, núverandi eiganda
Nausts hf. í Reykjavík, um skil á
gripum þeim sem þar eru frá
Keflavík.
Hafin er yfirfærsla á efni þvi
sem Helgi S. Jónsson tók á stál-
þráð fyrr á árum, yfir á
segulbönd, og er það unnið af
Þorbirni Sigurðssyni, tækni-
manni hjá útvarpinu.
Forhönnun á fyrsta áfanga
safnahúss ásamt lauslegri kostn-
aöaráætlun liggur nú fyrir.
Lokið er gerð fjárhagsáætlun-
ar fyrir árið 1981.
Fólk það sem komið hefur að
skoða safniö hefur verið mjög
ánægt og haft mikla ánægju af
að skoða safnið, og flest allir
sögöust þurfa aö koma aftur og
þá einkanlega til aö skoöa betur
þær gömlu myndir sem þar er að
sjá. Er safniö var opnað hafði
ekki unnist tími til þess að merkja
allar myndir og fólk hefur því
ekki haft not af þeim sem skyldi,
einkum gömlum mannamyndum
sem mikið er af.
Meðan safnið hefur verið
lokaö hefur verið unnið að því að
merkja myndirnar og ætti fólk þá
að hafa full not af þeim þegar
opnað verður aftur, væntanlega í
febrúar. Unnið hefur verið að því
að gera teikningar að væntan-
legu safnahúsi, er kæmi í vinkil
fyrir ofan Vatnsneshúsið, og er
það von okkar aö leyfi fáist til að
byggja kjallara þess á næsta ári.
Myndi það þegar leysa brýna
þörf safnsins til að geta haft fleiri
muni til sýnis.
Þar sem safnið var sett upp í
frístunda- og sjálfboðavinnu að
mestu leyti, geta lærðir menn á
þessu sviði fundiö margt sem
betur mætti fara og þá er ekki
nema úr því að bæta, eftir þvi
sem ábendingar berast þar um.
Margar gamlar myndir hafasafn-
inu borist nú í sumar og verða
þær komnar upp til sýnis þegar
opnað verður á ný. Einnig mun
herbergi bætast við og væntum
við þess að þá verði mögulegt að
koma með eitthvað nýtt til við-
bótar því sem fyrir er.
Ó.Þ.
Loftpressa
Tek að mér
múrbrot,
fleygun
og borun fyrir
sprengingar.
Geri föst
verðtilboð.
Sigurjón Matthíasson
Brekkustíg 31 c - Y-Njarðvík
Karlmenn -
Saltfiskverkun
Viljum ráða nú þegar menn vana saltfiskverkun.
Upplýsingar í síma 1264.
BRYNJÓLFUR HF.
ÍTREKUN
TILKYNNING
til launagreiðenda
er hafa í þjónustu sinni starfs-
menn búsetta í Keflavík, Njarð-
vík, Grindavík og
Gullbringusýslu
Samkvæmt heimild Í7. tölulið 103. gr. reglugerðar
nr. 245/1963, er þess hér með krafist af öllum þeim
er greiða laun starfsmönnum búsettum í Keflavík,
Njarðvík, Grindavík og Gullbringusýslu, að þeir
skili nú þegarskýrslu um nöfn starfsmanna sinna
hér í umdæminu, sem taka laun hjá þeim, nafn-
númer, heimilisfang og gjalddaga launa.
Jafnframt skal vakin athygli á skyldu kaupgreið-
enda til að tilkynna er launþegar hætta að taka
laun hjá kaupgreiðanda og þeirri ábyrgð er
kaupgreiðandi fellir á sig, ef hann vanrækir skyld-
ur sínar samkvæmt ofansögðu eða vanrækir að
halda eftir af launum upp í þinggjöld samkv. því
sem krafist er, en í þeim tilvikum er hægt að inn-
heimta gjöldin hjá kaupgreiðanda, svo sem um
eigin skuld væri að ræða.
Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvik
og Grindavík
Sýslumaðurinn i Gullbringusýslu,
Vatnsnesvegi 33, Keflavík