Víkurfréttir - 12.02.1981, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 12. febrúar 1981 3
Byggðasafn Suðurnesja - Vatnsnes:
Forkastanleg vinnubrögð
við gluggaskiptingu
Homskekkja er á sumum gluggunum og lekl með þeim flestum ....
A fundi hinnar sameiginlegu
byggðasafnsnefndar Keflavíkur
og Njarðvíkur 15. jan. sl., lasfor-
maður upp skýrslu um glugga-
skiptingu á Vatnsnesi, frá Við-
haldsdeild Keflavíkurbæjar.
Nefndin telur það aðfinnslu-
vert og stór mistök að þessum
aðila, ívari Þórhallssyni, hafi
verið falið að annast endurnýjun
á gluggunum. Jafnframt, þar
sem hann hefur viðurkennt að
mistök hafi átt sér stað, sam-
kvæmt upþlýsingum eftirlits-
manns og ekki bætt úr þeim, en
bjóðist til að semja um greiðslu
Sandgerði:
Sölu- og
leiguíbúðir
boðnar út
Undirbúningurer nú hafinn að
byggingu 6 sölu- og leiguíbúða á
vegum Miðneshrepps. Búiðerað
bjóða verkið út og kom lægsta
tilboð frá Húsanesi hf. í Keflavík.
Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist í vor og þeim
verði lokið á næsta ári.
til baka, verði því tekið hiö bráð-
asta og öðrum aöila falið að Ijúka
verkinu.
Skýrsla Viðhaldsdeildar Kefla-
vikurbæjar er svohljóðandi:
Skýrsla um gluggatkiptlngu
á Vatnsneal 1980
„I júlímánuði 1980 hófust
framkvæmdir við endurnýjun á
gluggum í húsinu, en þeir glugg-
ar sem fyrir voru, voru orðnir
mjög lélegir og sumir allt að því
ónýtir, svo ekki þótti annaðfært
en að skipta um þá alla. Jafn-
framt var tekin sú ákvörðun varð-
andi endursmíði þeirra, að þeir
skyldu gerðir á sama hátt og þeir
munu hafa verið upphaflega í
húsinu, þ.e. fög í hverju opi. Við-
haldsdeild Keflavíkurbæjar sá
um framkvæmdina. Til verksins
var ráðinn húsasmíöameistari f rá
Grindavík, (var Þórhallsson að
nafni, en hann kynnti sig sem
sérfróðan í viögerðum og endur-
smíði á gömlum húsum og hús-
hlutum. Jafnframt lofaði hann
því að það mundi verða forunnið
allt verkið á verkstæði, svo að
ísetning glugganna þyrftiekkiað
taka nema tvær vikur, og lokun á
sýningum yrði því aöeins ein
helgi.
Rík áhersla var lögð á það við
hann af viðhaldsdeild bæjarins,
að ekkert mætti til spara að þetta
verk væri unnið vel og gallalaust,
ekki síst þar sem húsið sjálft væri
sem minjagripur og gluggarnir
sem hluti þess sýnishorns,
hvernig þeir hefðu verið unnir
hér áður, og efni skyldi sór valiö.
Þessu var öllu lofað af (vari og
fékk hann peningagreiðslu fyrir-
fram til efniskaupa, því sam-
kvæmt hans sögn fór hann
sjálfur til Reykjavíkur að velja
efnið, en hann taldi sig ekki geta
fengið það hór suður frá.
Framkvæmdir við verkið urðu
allar aðrar en lcfað hafði verið.
Fyrir þaö fyrsta voru gluggarnir
hálfunnir þegar þeir komu, um
miðjan ágúst. (setning þeirra og
„frágangur" tók fleiri mánuði,
efnið mjög Ijótt og allt kvistótt,
svo víða hafði þurft að sponsa.
Fögin lögð í mak og barin í vegna
lélegrar smíði og illa passandi,
hornskekkja sjáanleg á sumum
gluggunum, víöa mikil hamars-
för svo marið er langt inn í við-
inn, og leki með flestum glugg-
anna.
Margoft var haft samband við
ívar og kvartað um íéleg eða
óhæf vinnubrögö, en erfitt að ná
til hans, en þegar í hann náðist
lofaði hann sifellt bót á fram-
kvæmdinni, sem aldrei kom.
Ákveðið var í desember sl. að
láta fara fram mat áverkum hans,
og hefur verið reynt að ná sam-
Framh. á 2. afðu
LÍFEYRISSJÓÐUR VERKALÝÐSFÉLAG
Á SUÐURNESJUM
Tilkynnir aðsefursskspti
Skrifstofa iífeyrissjóðsins er fiutt á Suðurgötu 7,
Keflavík.
Afgreiðslutími: Kl. 9.15 - 16.00
mánudaga til föstudaga (iokað i hádeginu).
ATHUGIÐ BREYTT SÍMANÚMER: 3803
Lífeyrissjóður verkalýðsfélaga á Suðurnesjum