Víkurfréttir - 25.06.1981, Side 2
2 Fimmtudagur 25. júní 1981
VÍKUR-fréttir
Míkur
FCETTIC
Útgefandi: Vasaútgáfan
Ritstjóri og ábm.: Sigurjón Vikarsson, simi 2968
Blaðamenn: Steingrimur Lilliendahl, simi 3216
Elías Jóhannsson, sími 2931
Emil Páll Jónsson, sími 2677
Ritstj. og augl. Hringbraut 96, Keflavík, sími 1760
Setnmg og prentun GRÁGÁS HF . Keflavik
Loftpressa
Tek að mér
múrbrot,
fleygun
og borun fyrir
sprengingar.
Geri föst
verðtilboö. S|M| 3937
Sigurjón Matthíasson
Brekkustíg 31c - Y-Njarðvík
Prjórtakonur
Nú kaupum við einungis lopapeysur, heilar og
hnepptar.
Móttaka að Bolafæti 11, Njarðvík, fimmtudaginn
18. júní og miðvikudagana 1., 15. og 29. júlí kl.
13-15.
ÍSLENZKUR MARKADUR HF.
oeiimö.'if
ORÐSENDING
frá verkalýðsfélög-
um á Suðurnesjum
Eins og undanfarin ár er vinna verkafólks óheimil
frá föstudagskvöldi til mánudagsmorguns, átíma-
bilinu 1. júní til 1. september.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavfkur
og nágrennls
Verkakvennafélag Keflavlkur og Njarðvíkur
Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps
Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps
AUGLÝSIÐ í VÍKUR-FRÉTTUM
Ur skýrslum heilbrigðisfulltrúa::
Spóluormakos
- og
Fiskiðjumál
Sfðan núverandi heilbrigðis-
fulltrúi tók við störfum hefur
hann tekið upp þá sjálfsögðu
þjónustu, að senda sveitarfélög-
unum, er aðild eiga að Heilbrigö-
iseftirliti Suöurnesja, skýrslu um
þau mál sem eru efst á baugi
hverju sinni. Siðan sjá viðkom-
andi sveitarfélög um að dreifa
þessari skýrslu meðal sveitar-
stjórnarmanna og annarra aðila.
Er þetta heilbrigðisfulltrúa til
sóma og veitti ekki af aö önnur
embætti sveitarfélaganna sendi
frá sér slíkar greinargerðir af og
til.
En eitt er það í þessum skýrsl-
um sem illa fer í menn, en það er
orðavalið sem notað er og er oft
mjög háfleygt, eins og t.d. í
skýrslunni sem birtist ,í heild í
Víkur-fréttum 14. maí sl. um
hundahald á Suðurnesjum og
opnun á hundageymslunni. Þar
ræddi hann um samband milli
barna og hunda og komst svo að
oröi:
„Börnum er ítilfellum afhentur
hvolpur sem barnapía. Hundur-
inn þrífur sig með tungu sinni og
sleikir síðan barniö um andlit og
hendur í vináttuskyni og kemst
þannig á beint saursýklasam-
band milli hunds og barns og i
næstu andrá þarf mamma og
pabbl að kyssa barnið sitt ekta
spóluormakossl, og þá er hring n-
um lokað."
( skýrslu heilbrigðisfulltrúa
fyrir jan.-marz segir svo um
framkvæmdirnar að Vesturbraut
10:
„Framkvæmdir við húsnæði
fyrir meindýra- og hundamál að
Vesturbraut 10 Keflavík, fóru að
mestu fram í rissblokkum fyrstu
tvo mánuði ársins, en eftir vand-
lega íhugun ráðamanna voru
raunhæfar framkvæmdir settar
af stað í marz og hefur verið
unnið við þærafverktakaaf og til
siðan. Ánægja ríkir hjá
borgurum með framkvæmdir
þessar, þar sem sívaxandi
hundafaraldur Suöurnesja-
byggða hefur stöðugt aukiö
óþægindi fólks f byggðunum og
hlýtur það að verða krafa þeirra
98.5% sem hundlausir vilja vera,
að réttindi þeirra í daglegu lífi
séu ekki hundafótum troðin."
Um Fiskiðjumál kemst heil-
brigðisfulltrúi skemmtilega að
orði:
„Fiskiöjumál hafa ekki veriö til
stórra vandræöa að undanförnu,
en hægt og hægt miðar í rétta átt
í mengunarvarnarmálum verk-
smiðjunnar. Vikulegir fundir
hafa verið haldnir með Ingimar
Guðnasyni, hinum nýráðnaverk-
smiðjustjóra, frá því hann hóf þar
störf að nýju, og hafa málin veriö
rædd út frá stöðunni hverju
sinni.
Toppmenn stjórnarinnar hafa
einnig komiðtilviðræðnaeftirat-
vikum mála, en þeir hafa nú um
sinn mátt beita allri þeirri tækni
línudansarans sem þeir frekast
ráða yfir, til aö víxlstíga sig ekki í
fyrirheitadansinum, því að
öðrum kosti hefðu þeir fallið í
öryggisnet heilbrigöisyfirvalda.
Nokkuö bar á því um tíma að til
verksmiðjunnar bærist gamalt
slóg frá smærri fiskverkendum,
sem varð til þess aö stórauka á
mengunarvanda verksmiðjunnar
og gerði það mörgum bæjarbú-
um Keflavíkur og Njarövíkur
gramt í geði. En nú er vonast til
að hugarfarsbreyting hafi orðið
með smáslógareigendum í átt til
meira hreinlætis svo að illa lykt-
andi úrgangur heyri fortíðinni til.
Það er að sjálfsögöu engum
óviðkomandi hvernig hráefniö er
sem verksmiöjunni berst og pen-
ingalyktarskyn fyrirstríðsáranna
og síldarárarómantík í formi
reyks og grútar heyrir nú til
minjaspjöldum útvegsmanna að
mestu."
Þessar stúlkur héldu hlutaveltu í Framsóknarhúsinu i Keflavík, til
styrktar Sjálfsbjargar. Ágóðinn varð 870 kr. Frá v.: Irmy Rós Þorstems-
dóttir, Linda Þóra Grétarsdóttir og Fríða Jóhannsdóttir.