Víkurfréttir - 22.10.1981, Side 6
6 Fimmtudagur 22. október 1981
VÍKUR-fréttir
Ungliðar stjórnmála-
flokkanna hafa orðið
Víkur-fréttlr hafa orðiö mikinn áhuga á bæjarstjórnarkosningunum,
þó svo aó langt sé í kosningar. Eöa er þaö ekki? Kannski erum viö bara
komnir meö kosningaskjálfta, elns og Kalli Sigurbergs benti á iviötali
sem viö áttum viö hann hér á dögunum. Hitt er deginum ijósara aö
ýmsar blikur eru á iofti. Þegar viö ákváöum aö spyrja ungiiöa
flokkanna út i mál er snerta stjórnun bæjarins og stjórnun SSS, kom á
daginn aö ungir Framsóknarmenn höföu nylega klofiö sig út úr
flokknum, meö sér framboð fyrir augum. Einnig kom fram aö ung-
liðar annarra flokka voru ekki ánægöir meö sinn hlut. Lýtur þessi
óánægja meðal annars aö ýmsum skipulags- og stjórnunarmálum.
En gefum ungliöunum oröiö:
Vilhjálmur Ketilsson, Alþýðuflokki:
„FUJ hefur í mörg ár verið sterkt
afl innan Alþýðuflokksins“
eigin leiðir án samráðs við bæj-
ar eða sveitarfélög, treysti ég
mér ekki til að svara."
Hvað með SSS. Telur þú að
hér sé um jákvæðan þátt í stjórn-
un sveitarfélaganna að ræða?
„Allt samstarf SSS er gott og
ætti að vera öllum til góðs, já-
kvætt. En reyndin er ekki alveg
sú, a.m.k. heyrist það, þó ekki
fari hátt, þvi talaðer um ríkjandi
smákónga og stjórnleysi. Ef fara
á út í meira samstarf, held ég að
sveitarfélögin ættu að endur-
skoða og endurskipuleggja starf-
ið sem fyrir er."
Eru hinir kjörnu bæjarfulltrúar
nægjanlega virkir í stjórn bæjar-
ins?
,,Ég held að allir bæjarfulltrúar
séu virkir i stjórn bæjarins, en
misjafnlega þó. Það er nokkuð
langt síðan að bæjarfulltrúar Al-
þýðuflokksins komu á föstum
fundum á mánudögum fyrir bæj-
arstjórnarfundi. Þar mæta
flokksmenn úr hinum ýmsu
nefndum og ráðum á vegum bæj-
arins og bera saman bækursínar
og ræða málefnin."
Verður efnt til prófkjörs fyrir
næstu bæjarstjórnarkosningar?
,,Já, það veröur efnt til opins
prófkjörs og fer það væntanlega
fram í janúar."
Að lokum var Vilhjálmur
spurður hvort mikið af ungu fólki
væri virkt i Alþyðuflokknum.
,,Ég er ekki starfandi í ung-
hreyfingunm, en get sagt það, að
þar fer fram ágætt starf. FUJ hef-
ur um margra ára skeið verið
sterkt afl mnan Alþýðuflokks-
ins."
RAF3ÚÐ
R.Ó.
Hafnargötu 44 - Keflavík
Sími3337
Keramik lampar
í úrvali.
Vilhjálmur var fyrst spurður
um hvort hann teldi að bænum
og SSS væri stjórnað af embætt-
ismönnum.
,, Já, á vissan hátt tel ég það. En
ég lít lika á málið þannig, að em-
bættismennirnir hafi verið ráðnir
til starfans, einmitt til að stjórna
og framkvæma. Eins og allir vita
eru starfandi á vegum bæjarins
ýmsar nefndir og ráð, er leggja
fram hugmyndir og tillögur til
framkvæmda, hver á sínu sviði.
Ýmist hljóta tillögurnar sam-
þykki eða synjun í bæjarstjórn
eða bæjarráði. Eftir þessu tel ég
að embættismenn eigi að vinna,
en auðvitað koma alltaf upp mál
að þeir einir verða að skera úr
um. Ef átt er við með spurning-
unni hvort embættismenn fari
Ragnar Karlsson, Alþýðubandalaginu:
„Stjórnmálaflokkarnir ekki eftir-
sóknarverðir fyrir
ungt fólk til þátttöku“
Eftirfarandi spurningar voru
lagðar fyrir Ragnar Karlsson:
Þvi hefur veriö haldiö fram aö
bænum sem og SSS sé stjórnaö
af embættismönnum. Telur þú
slíkar fullyröingar eiga viö rökaö
styðjast?
„Ýmsir stjórnmálafræðingar
halda þvi fram, að núverandi
megin einkenni lýðræðislegra
stjórnkerfa eins og rýmkaður
kosningaréttur og aukin þátt-
taka almennings í stjórnmálum,
hafi ekki leitt til meiri valddreif-
ingar. Telja þeir að valdið hafi
aldrei verið meira takmarkað við
þrengri hóp færri einstaklinga.
Ástæðu fyrir þessu má nefna, að
samfélagið og jafnframt öll
stjórnunarstörf og verkefni
stjórnsýslunnar hafa oröið mun
flóknari og viðameiri en áður. í
krafti þessa varð brýn nauðsyn á
því, að stjórnunarstörf yrðu ekki
unnin ífristundavinnu, til þessað
árangur næöist. Komið hafa æ
fleiri launaðar stöður embættis-
manna. Þessir embættismenn
hafa ákveðna sérþekkingu á um-
fjöllunarmálum og búa yfir
menntun og þjálfun i skipulags-
málum umfram almenning.
Vegna sérþekkingar sinnar,
starfsaðstöðu og tíma hafa þeir
ólíkt betri möguleika til að hafa
áhrif á gang mála, en almenn-
ingur og kjörnir fulltrúar hans.
Augljóst dæmi þessarar þróun-
ar er val fulltrúa í stjórn SSS.
Telur þú aö SSS sé jákvæöur
þáttur í stjórnun sveitarfélaga?
,,Sé eingöngu litið á rekstrar-
hliðina eru kostir slíks samstarfs
augljósir. Sveitarfélögin hafa
mikinn hag af því að fást I sam-
einingu við fjölda mörg verkefni.
Að auki tryggir slikt samstarf
smærri sveitarfélögunum fjár-
hagslegt bolmagn til að sinna
ýmsum brýnum úrlausnarefnum
í þágu sinna íbúa, sem þau réðu
ekki við ella. Hvað varðar stjórn-
unarþáttinn eru kostirnir ekki
eins augljósir og gallarnir. Nú-
verandi stjórn SSS er glöggt
dæmi um miðstýringu og em-
bættismannavald, þar sem
ákvarðanatakan hefur færst fjær
fólkinu og í reynd hafa meiri
hluta-aðilar innan sveitarstjórn-
anna framselt löglegt umboð til
ákvarðanatöku, af óskiljanlegum
ástæðum."
Telur þú aö hinir kjörnu full-
trúar flokkanna séu nægjanlega
virkir í stjórnun bæjarins?
„Nei. Ástæðan kemur fram í
svörum við 1. og 2. spurningu."
Veröur efnt til prófkjörs hjá Al-
þýðubandalaginu fyrir næstu
kosningar?
„Ákvörðun hefur ekki verið
tekin um slíkt innan Alþýðu-
bandalagsfélags Keflavíkur, en
hennar er að vænta innan tíðar.“
Er mikiö af ungu fólki virkt i
flokksstarfinu?
„Nei. Pólitisk og almenn deyfð
varðandi félagslega þátttöku
hvetur varla ungt fólk til starfa að
félagsmálum fremur en aðra ald-
urshópa. Reyndar tel ég, að
stjórnmálaflokkarnir séu ekki
eftirsóknarverðir fyrir ungt fólk
til þátttöku. Ástæðurnar liggja að
mínu mati í innra skipulagi flokk-
anna og starfsháttum, svo og því,
hversu stefnu- og hugmynda-
legur ágreiningur þeirraá millier
oft á tíðum lítill i landsmálum,
þótt hans verði að vísu vart í ein-
staka málaflokkum."
Nýkomið
Hanskar
Lúffur
Húfur
Eyrnaskjól
Moon Boots
Leikfimibolir
og buxur
Úrval íþróttafatnaðar
Sportvörubúðin
Hafnargötu 54 - Keflavík
Sími1112
Aðalfundur KFK
verður haldinn í sal Verslun-
armannafélags Suðurnesja,
Ffafnargötu 28, Keflavík,
fimmtudaginn 29. okt. kl. 20.
Stjórnin
Auglýsingasíminn
er1760