Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.10.1981, Page 7

Víkurfréttir - 22.10.1981, Page 7
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 22. október 1981 7 Elías Jóhannsson, Sjálfstæðisflokki: ,,S.S.S. er dæmi um Parkinsonlög- málið í öllu sínu veldi“ Elías var fyrst spurður hvort hann teldi þá fullyrðingu eigavið rök að styðjast, að bænum og SSS væri stjórnað af embættis- mönnum. Svaraði hann því til, ,,að það væri alveg á hreinu." Bætti síðan við, ,,að nóg væri að lesa fundargerðir bæjarstjórnar. Bæjarstjórnin er orðin afgreiðslu stofnun sem klappar fyrir því sem nefndir og embættismenn eru búnir að samþykkja og oftast einnig búnir að framkvæma. Nú, SSS og bæjarstjórnin, þetta er samatóbakið, menn eru farnirað átta sig á tilgangsleysi SSS.“ Þá spurðum við hvort hann teldi hina kjörnu fulltrua vera nægjanlega virka i stjórnun bæj- arins. ..Stundum eru þeir virkir og stundum ekki, en í heild má segja að málið sé viðunandi. Ef þeir ættu t.d. að fá einkunn eins og í skóla, myndu þeir liklega skríða. Þetta kann að stafa af því að þeir eru með of mikið á sinum herðum." Hvað með SSS. Telur þú að Til að byrja með spurðum við Valdimar hvort nokkuð væri til i þem sögusögnum, að ungir Framsóknarmenn hyggðust efna til sér framboðs. Taldi hann svo vera, en benti á að þó svo að þessi hópur sprytti upp úr Fram- sóknarflokknum, væri meiningin að kanna framboð ungs fólks. Framboð sern ekki veröur bendl- að við neinn einstakan flokk. ,,Enda má segja að flokkarnir í heild séu orðnir of bundnir og taki ekki á málum af neinu viti. Sem dæmi má nefna, að hér er ekkert gert til að laða aðatvinnu- fyrirtæki. Málin velkjast bara um í nefndum. Það sem einkum liggur að baki þessa framboðs er stofnun bæjarmálaflokks, sem hefur stefnuskrá sem ekki hefur hér sé um jákvæðan þátt í stjórn- un sveitarfélaganna að ræða? ,,Ég verð að segja eins og er, ég er á móti þessari sameiningar- stefnu. SSS er eiginlega að vaxa okkur yfir höfuð. Þetta er dæmi um Parkinsonlögmálið í öllu sínu veldi.“ En hvernig verður röðun á lista innan Sjálfstæðisflokksins hag- að? „Þetta hefur verið rætt lítil- lega. Hins vegar er ekki búið að ganga endanlega frá því hvort um verður að ræða opið eða lokað prófkjör. Sjálfur er ég hlynntur því formi sem er á Akra- nesi. Þar er efnt til prófkjörs verið dustað af rykið tíu sinnum." Þá spurðum við Valdimar hvort hann teldi SSS vera jákvæðan þátt í stjórnun sveitarfélaganna. Taldi hann svo ekki vera. Benti hann á að stofnun SSS hafi ásin- um tíma verið mjög jákvætt skref. „Hins vegar skortir mjög á að þetta apparat sé stutt nægjan- lega vel.“ Hvað með bæjarfulltrúana, eru þeir nægjanlega virkir? „Nei, t.d. vantar meiri flokkseiningu í Framsóknarflokkinn. Bæjarfull- trúarnir mættu hafa meira sam- starf við þá sem sitja í nefndum. Það tíðkast t.d. víða að halda fund fyrir bæjarstjórnarfundi. Það er skortur á virku flokks- starfi innan Framsóknarflokks- ins. Það sem vantar er samstarf meðal allra flokka samtímis. Það sem annars má segja um próf- kjör er, að í þeim hefjast bræðra- vig." Að lokum spurðum við Elías hvort mikið af ungu fólki væri virkt í Sjálfstæðisflokknum. „Undanfarin ár hefur ekki verið mjög mikið af ungu fólki. Hins vegar má segja að á síðasta ári hafi komið mikið af ungu fólki til starfa. Fólki sem virðist hafa áhuga og sem örugglega má treysta til starfa, enda virðist það hafa hugsað mikið um þessi mál, vera áhugasamt og hafa tírna." fulltrúanna við meðlimi flokks- ins.“ Þvi næst spurðum við Valdim- ar hvort hann teldi fullyrðingar um, að bænum sem og SSS væri stjórnað af embættismönnum, ætti við rök að styðjast. „Slíkt Framh. á 4. siðu Valdimar Þorgeirsson, Framsóknarflokki: „Skortur á virku flokksstarfi innan Framsóknarflokksins“ Um næstu mánaða- mót opnar Fasteigna- þjónusta Suðurnesja skrifstofu að Hafnar- götu 37, III. hæð, Keflavík. - Sími 3722. FASTEIGNAÞJONUSTA SUÐURNESJA Símar: 3722 - 2405 Höfum nú þegarfeng- ið nokkrar íbúðir á skrá, og eru upplýs- ingar veittar að Heið- argarði 29, sími 2405. Höfum til sölu þetta glæsilega iðnaðar- húsnæði að Bolafæti 11, Njarðvík. HÚSNÆÐI í BOÐI: Stór 3ja herb. íbúð við Sóltún. Lausfljótlega. Einbýlishús v/Háteig í Keflavík. Skipti æski- leg á 4ra herb. íbúð í Keflavík eða Njarðvík. Höfum kaupendur að ýmsum gerðum fasteigna. Fasteignaþjónusta Hafnargötu 37, III. hæð - Keflavík Sími 3722 Suðurnesja Hjörtur Zakaríasson - Hjördís Hafnfjörð Lögfr.: Garðar og Vilhjálmur

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.