Víkurfréttir - 22.10.1981, Page 10
VÍKUR-fréttir
10 Fimmtudagur 22. október 1981
Ráðning hjúkrunarforstjóra við Sjúkrahúsið:
Ekki pólitísk
- segir Steinþór Júlíusson, bæjarstjóri
( síðasta tbl. Víkur-frétta var
greint frá ráðningu hjúkrunar-
aforstjóra við Sjúkrahus Kefla-
víkur. I fréttinni kom m.a. fram að
sumir töldu ráðninguna vera
pólitiska og að starfsfólkiö hefði
safnað undirskriftum til stuðn-
ings Sólveigu Þórðardóttur, sem
sótti um starfið á móti þeim
Emeliu Guðjónsdóttur og Ernu
Bergmann, en þær sóttu um
starfiö sameiginlega.
( texta undirskriftarskjalsins
segir: ,,Vegna væntanlegs úr-
skurðar um ráðningu forstöðu-
konu við Sjúkrahús Keflavíkur,
viljum við undirritað starfsfólk
koma fram ósk okkar um að Sól-
veig Þórðardóttir fái tækifæri til
að reyna sig við starfið. Viö telj-
um hana hæfa og líklega til að
koma á æskilegum umbótum
innan stofnunarinnar. Við óskum
eftir að tekið sé tillit til þessarar
stuðningsyfirlýsingar okkar,
vegna þess að við teljum þetta
álit meiri hluta starfsfólksins."
Á fundi sjúkrahússtjórnar 5.
okt. sl. var tekin afstaða til um-
sóknanna. Á fundinum var sam-
þykkt tillaga frá Kristjáni Sig-
urðssyni, yfirlækni, um að fram-
lengja umsóknarfrestinn og að
þær Emelia og Erna yrðu ráðnar
til bráðabirgða [ tillögunni segir
einnig að gerð yrði....tilraun til
að fá hjúkrunarfræðing með
stjórnunarreynslu . . . “ Á fund-
inum var lögö fram umsögn
hjúkrunarráðs um hæfni um-
sækjendanna. Þar segir m.a.:
„Umsækjendur hafa allir lokið
prófi i hjúkrunarfræði og hafa
hjúkrunarleyfi og teljast því hæf-
ir til að gegna stöðunni."
Einnig segir að Sólveig hafi
„sáralitla" reynslu í hjúkrunar-
starfi. Aftur á móti hafi Emelíaog
Erna ,,.... verulega starfs-
reynslu . . . og hlýtur það að vega
þungt á metunum, þegar ráða
þarf i starf hjúkrunarforstjóra."
Á nefndum fundi varð stjórnin
sammála að skipta ekki embætt-
inu á milli tveggja eða fleiri aöila.
en réði þó þær Emeliu og Ernu til
bráðabirgða. Vegna þessa lét
Guðrún Guðbjartsdóttir bóka
eftirfarandi: „Ég lýsi undrun
minni á að þessi afstaða skuli
tekin, þ.e. stjórnin telur ekki að i
framtíðinni skuli starfinu tví-
skipt, en samt er sú ákvörðun
tekin til bráðabirgða."
Blaðið náði tali af Steinþóri Júlí-
ussyni bæjarstjóra, en hann er i
sjúkrahússtjórn og greiddi
atkvæði með tillögu Kristjáns
Sigurðssonar, og spurði hann
fyrst hvort ráðningin hefði verið
pólitísk.
„Nei, langt í frá. Ég er aðeins
með eitt atkvæði í sjúkrahús-
stjórn og tel mig hafa ráðstafað
því rétt, samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem lágu fyrir."
Hvers vegna voru þær Emelia
og Erna einungis ráðnar til
bráðabirgða?
„Vegna þess að stjórnin ætlar
að reyna að fá hjúkrunarfræðing
með stjórnunarmenntun i stöð-
una, og því framlengdum viðum-
sóknarfrestinn."
Stjórnin er sammála um að
skipta ekki stöðunni, en skiptir
henni þó til bráðabirgða. Hvers
vegna?
„Það var gert til þess að úti-
loka ekki Þær Emelíu og Ernu í
framtíðinni. Þó má segja að bók-
un Guðrúnar sé rökrétt. En þar
sem Emelía og Erna hafa gegnt
starfinu til bráðabirgða frá 1. júlí
og hafa báðar verið hjúkrunar-
forstjórar áður, þá væri óeðlilegt
að taka Sólveigu fram fyrir þær,
enda hefur hún enga starfs-
reynslu á þessu sviði. Það er
þetta sem tillaga Kristjáns fól i
sér."
„Hvers vegna var ekki tekið til-
lit til óska starfsfólksins?
„Ég tel stuðningsyfirlýsing-
una ekki marktæka þar sem hún
barst ekki til stjórnarinnar fyrren
að fundurinn var settur. Einnig
vegna þess að af 20 nöfnum list-
ans voru 14 vélrituð en einungis
6 handskrifuð."
Telur stjórnin liklegt að fleiri
umsækjendur hafi áhuga á stöðu
hjúkrunarforstjóra, þegarbúiðer
að framlengja umsóknarfrest-
inn tvivegis?
„Við vonumst til þess að leysa
þetta mál til frambúðar."
Ef fleiri umsækjendur koma
ekki fram, ætlar stjórnin þá að
setja þær Emelíu og Ernu i starflð
til frambúðar?
„Það er ekki hægt að svara
þessu, þetta verður tekið til um-
ræðu."
Hvers vegna tekur stjórnin upp
á þvi núna að auglýsa eftir hjúkr-
unarfræðingi með menntun í
stjórnun?
„Það má segja að það hafi
verið mistök í fyrri auglýsingum.
Ég bendi á að í umsögn hjúkr-
unarráðs stendur að æskilegt sé
að hjúkrunarforstjóri hafi mennt-
un í stjórnun."
Telur þú að málefni sjúkra-
hússins séu í ólestri, eins og virð-
ist koma fram i stuöningsyfirlýs-
ingu starfsfólksins?
„Nei, alls ekki. Ég get ekki séð
að bréfið bendi til þess. Það má
gera umbætur viða. Mér finnst
spurningin ekki eiga rétt á sér."
Blaðið leitaði einnig til ann-
arra aðila sem tengjast þessu
máli, m.a. starfsfólks sjúkrahúss-
ins, en enginn af þeim vildi tjásig
um málið. Sólveig Þóröardóttir
sagði: „Ég undirstrika, að hér er
verið að hjúkra sjúku fólki og það
verður engum greiði gerður með
þvi að halda illdeilum á lofti. Það
gæti bitnað á þeim sem síst
skyldi."
Byggðasafn Suðurnesja
Vatnsnesi
er opið sunnudaga kl. 14-17.
Bílskúr óskast til leigu
helst tvöfaldur, ekki skilyrði. Á
sama stað óskast gírkassi i Ford.
Uppl. í sima 3863.
TRAKTORSGRAFA
Tek að mér alla almenna
gröfuvinnu.
Sigurður Jonsson. Simi 7279
íbúö óskast
Óska eftir að taka 2-3ja herb.
íbúð á leigu á Suðurnesjum.
Uppl. í síma 7645 í dag og næstu
daga.
ibúö óskast
2-3ja herb. ibúð óskast til leigu.
Uppl. i síma 1717.
Atvinna óskast
21 árs stúlka með stúdentspróf
óskar eftir vinnu hálfan daginn.
Allt kemurtil greina. Uppl. í síma
2199.
Til sölu
Royale kerruvagn, vel með far-
inn. Uppl. í síma 3425.
Ökukennsla
Kenni á SAAB, mjög lipra og
skemmtilega bifreið. Útvega öll
prófgögn, ef þess er óskað.
Magnús Þór Helgason
Simi 1197
Þátttakendur í firmakeppni
Bridgefélags Suöurnesja 1981
Dropinn, Keflavík
Eignamiðlun Suðurnesja
Gunnarsbakarí, Keflavík
Hitaveita Suðurnesja
Innrömmun Suðurnesja
Kaupfélag Suðurnesja
Keflavikurbær
Njarðvíkurbær
Samvinnubanki (slands, Keflav.
Samvinnutryggingar, keflav.
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sportvörubúðin, Keflavík
Steindór Sigurðss., sérl. og hópf.
Útvegsbanki (slands, Keflavik
Verslunarbanki (slands, Keflavik
Víkur-fréttir
Bridgefélag Suðurnesja færir
ofangreindum fyrirtækjum og
stofnunum kærar þakkir fyrir
þátttökuna og stuðning við
félagið.
afsláttar-
O kortin
eru á leið til félagsmanna.
2 kort gilda til 30. nóvember.
2 kort gilda til 16. desember.
Það borgar sig að versla í kaupfélaginu.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA