Víkurfréttir - 22.10.1981, Page 11
Fimmtudagur 22. október 1981 11
VÍKUR-fréttir
Prjónakonur
Mikil og góð slemning ríkti á dvalarheimili aldraðra, Garðvangi, einn
daginn í sláturtíðinni, en þá stóð þar yfir sláturgerð. Um 17-18 manns
unnu að sláturgerðinni, en það er skyldfólk vistmanna og vinafólk
þess. Tekin voru 100 slátur, byrjað var kl. 8 um morguninn og verkinu
lokið kl. 9 um kvöldið. Allt þetta var unniö í sjálfboðavinnu, og bað
Sólveig forstöðukona fyrir þakkir til fólksins fyrir hjálpina. Mikil gleði
og ánægja rikti þennan dag og kvaðst Sólveig vona að áframhald yrði
á þessu, en þetta er fjórða árið sem sláturgerð fer fram á Garðvangi.
Tvo smiði
eöa menn vana smíðavinnu vantar strax.
Uppl. í síma 3966 milli kl. 9-12.
HúsanesVtl
-- - I—I K I-- — ^-1
Skrifstofustarf
Keflavík
Sláturgerð í Garðvangi
Opnum aftureftirsumarfrí. Kaupum heilarog
hnepptar lopapeysur. Einnig vel prjónaöa
vettlinga, um óákveðinn tíma.
Móttaka verður 4. og 18. nóvem-
ber og 2. og 16. desember kl. 13-15 að Bola-
fæti 11, Njarðvík.
ÍSLENZKUR MARKADUR HF.
ttgnfismo'
Keflavík-Njarðvík:
„LandamæragirðinginÉ‘ rifin
Þeir sem gengið hafa á milli
Keflavíkur og Njarðvíkur undan-
farna áratugi hafa oft þurft aö
leggja lykkju á leið sína, sökum
þess aö girðing Varnarliðsins
gengur eins og fleygur á milli
bæjarfélaganna.
Nú hafa borist þær fréttir að
utanrikisráðherra hyggist láta
fjarlægja þessa girðingu og jafn-
framt að þekja olíuleiðslurnar,
sem þarna eru, með jarðvegi.
Óneitanlega eru þetta gleði-
tíðindi og hljótum við að jíakka
skeleggri forystu bæjarstjórnar-
manna undanfarin ár, fyrir þetta
framtak utanríkisráðherra. Eða
hvað?
Kaupfélag Suðurnesja er að
byggja stórmarkað sinn svo að
Næsta blað
kemur út
6. nóvember.
segja ofan í títtnefndri girðingu,
og segja gárungarnir aðþaðsem
bæjarstjórnarmönnum í Kefla-
vik og Njarðvík hafi ekki tekist í
10 ár, hafi Kaupfélagið „reddað"
á viku!!!
Laust er starf á skrifstofu embættisins í Kefla-
vík. Starfsreynsla æskileg. Laun samkvæmt
launakerfi BSRB.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf, óskast sendar undirrituðum fyrir 24.
október nk.
Bæjarfógetinn í Keflavík, Grindavík
og Njarðvík.
Sýslumaðurinn íGullbringusýslu,
Vatnsnesvegi 33, Keflavík.
Suðurnesjamenn!
Nú er rétti tíminn til að setja
VETRARHJÓLBARÐANA UNDIR BÍLINN.
MICHELIN-dekk og margar aðrar tegundir.
Neglum og jafnvægisstillum. - Allir bílar
teknir inn.
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐIÐ
Brekkustíg 37 - Njarðvík - Sími 1399