Verslunartíðindi - 01.01.1925, Side 22
12
VERSLUNARTlÐINDI
\.xfx..xfx .xfx..xfx..xfx..xfx..xfxt xfx. Xj£.,xfx, xfx. xV xtx xtx xf* ■/
- - - ’fe
yi ix
xj _ _ i/
yj
KaupmEnn
□g
yj
%
xj
yj
xi
/J
3
xi
/j
I
3
xi
A
xí
V\
i
xi
7i
i
$
i
♦Sj Vesturgötu 20.
yXV|^,V|x,,yX>‘5r;x,Víx'V|x‘‘^x,,3!r|Vjr|v,*^x”x|x"x|x,,^x,,jrix*
Kaupfjelög
Ef þið viljið viðskiftavinum
yðar vel þá hafið á boðstólum
Hjartaás-smjörlíki
Laufás-smjörliki
Tigulás-plöntufeiti
Alt fyrsta flokks vörur.
UErksm. ÁsgarQur
Sími 528.
&
IX
l>
IX
te
íx
iy
íx
&
IX
ix
ix
k
te
IX
&
IX
►
fe
IX
fe
IX
fe
IX
k.
IX
jsr
&
•aprx
Firmatilkynningar.
Til firmaskrárimur er tilkynt, að nú-
verandi eigendur útgerðarfjelagsins Geir
& Th. Thorsteinsson sjeu: Dánarbú Th.
Thorsteinssonar,’ en í þvi óskiftu , situr
ekkjufrú Kristjana Thorsteinsson, Vestur-
götu 3, Grísli M Oddsson, skipstj. Rvík og
Geir Thorsteinsson, útgerðarraaður Rvík.
Fiskiveiðahlutafjelagið »Grœðir« hefur
heimili og varnarþing á Flateyri í Vest-
Isafjarðarsýslu. Tilgangur þess er að veiða
fisk með botnvörpu og öðrum áhöldum.
Samþyktir þess eru dagsettar 20. des. 1924.
Stofnendur fjelagsins eru: Sigurjón Jóns-
son framkvstj., Jón A. Jónsson alþm.,
Björn Magnússon símstj., Elias Halldórs-
son, bankagjaldkeri, Ingólfur Árnason
framkvstj., Elías J. Pálsson kaupm , Hann-
es Halldórsson kaupm., Helgi Ketilsson
íshússtj, Stefán Sigurðsson verslunarm. og
Sigurður Kristjánsson barnakennari, allir
á ísafirði og Jóhann P. Jónsson versl-
unarmaður Blönduósi.
Form. Jón A. Jónsson hefur prókúru,
auk þess rita tveir úr stjórninni firmað
svo skuldbindandi sje, að því leyti, sem
rjettur prókúruhafa ekki nær til.
Hlutafjárupphæðin er 290 þús. kr. en
stjórnin hefur leyfi til að auka það upp í
300 þús. Hver hlutur er að upphæð 5000
kr. Hlutafjársöfnun er lokið og af hluta-
fjenu greiddar 50,000 kr. Engin sjerrjett-
indi fylgja neinum hlutum og engin lausn-
arskylda hvílir á neinum. Eigi eru held-
ur lagðar neinar hömlur á meðferð hluta-
brjefa. Hverjum hlut fylgir eitt atkvæði,
en enginn má fara með fleiri atkvæði á
fundum en 10. Fundir skulu boðaðir í
Lögbirtingarblaðinu og blaði á ísafirði með
tveggja vikna fyrirvara.
Tilkynt er, að sameignarfjelagið, Hæsti-
kaupstaðurinn (Nathan & Olsen) á ísafirði,
er uppleyst og hætt störfum.
H.f. Belgaum. Heimili Hafnarfjörður.
Útbú ekkert. Tilgangur fjelagsins er að
reka fiskveiðar og yfirhöfuð að reka þær
atvinnugreinar, er standa i sambandi við
fiskveiðaútgerð. Dagsetning samþykt 23.
mai 1921 og breytingar 30. okt. 1924. —
Stofnendur fjelagsins eru: Jes Zimsen
kaupm., Rvk., Þórarinn Olgeirsson skip-
stjóri Grimsby Joe Little útgerðarm.,
Grimsby, Hjalti Jónsson framkvstj., Rvk.
og Chr. Zimsen konsúll, Rvk Formaður
fjelagsins er Jes Zimsen og meðstjórnend-
ur Hjalti Jónsson og Chr. Zimsen. Form.
og annarhvor meðstjórnandinn rita firmað.
Upphæð hlutafjár er 300 þús. kr., er
skiftist í 4 hluti (litra A.), sem hver er að
upphæð 72 þús. kr. og 12 bluti (litra B),
sem hver er að upphæð 1 þús. kr. —
Hlutafjársöfnun er lokið og alt hlutafjeð
innborgað, Hlutabrjef hljóða á nafn.