Verslunartíðindi - 01.01.1930, Qupperneq 11

Verslunartíðindi - 01.01.1930, Qupperneq 11
VERSLUN^ RTÍÐINDI 5 Vöruverð innanlands hefir yfirleitt verið heldur hærra i ár en í fyrra eins og sjá má af samanburði á vísitölum Hagstofunn- ar þessi tvö ár. 1928 1929 1 ársfjórðungur 210 215 2 ársfjórðungur 206 214 3 ársfjörðungur 224 222 4 ársfjórðungur 218 221 Samgöngur. Sömu þrjú gufuskipafjelögin önnuðust siglingarnai' með líku fyrírkomulagi og árið áður. Farm- og fargjöld hjelst að kalla ó- breytt á árinu. Verkfall varð á tveimur skipum Eim- skipafjelagsins, sem hjer voru við land síðari hluta janúarmánaðar, vegna ágreinings um kaupkjör háseta og kyndara á öllum skipum fjelagsins. 30. janúar var gerður samningur um þetta efni, er gildir til 31- mars 1930. Olli þetta nokkurri truflun á ferðum þeirra skipa, er stöðvuð voru. Til þessa tíma hefir Eimskipafjelagið annast útgerð strandferðaskipsins Esju, en við þessi áramót tekur ríkisstjórnin þá út- gerð í sínar hendur. Pósttaxtar og símagjöld. Á pósttöxtum varð engin breyting á árinu, svo að teljandi sje, en á símagjöld- um þær einu breytingur að blaðaskeyti milli Noregs Svíþjóð og íslands lækkuðu úr 20 aurum niður í 16 aura. Kaupgjald. Dýrtíðaruppbót embættismanna ríkisins hefir samkvæmt útreikningi Hagstofunnar hækkað úr 34°/0 upp í 36°/0. En síðasta þing ákvað að dýrtíðaruppbótin á þessu umliðna ári skyldi verða 4O°/0. Við síðastliðin áramót var útrunninn kaupsamningur sá, sem gerður var milli sjómanna og útgerðarmanna árið 1925. Gerðu sjómenn hærri kaupkröfur en út- gerðarmenn sáu sjer fært að ganga að og varð því strax með byrjun ársins verkfall á öllum botnvörpuskipunum. Eftir allmikið þjark komst á samkomulag þ. 28. febrúar á milli útgerðarmannafjelagsins og sjómanna- fjelagsins á þeim grundvelli, að sjómanna- kaupið og lifrarhlutir skyldu hækka um 9 °/0 —2O°/0. Fastakaup á saltfisks- og síldveið- um hækkaði úr kr. 196.50 upp í kr. 214.00 og á ísfiskveiðum upp í kr. 232.00 á mán. Lifrarhl. skyldi vera kr. 28.50 pr. fat í staðinn fyrir kr. 23.50 áður. Alment verkamannakaup hefir verið ó- breytt á árinu. Ný iðnfyrirtæki. Á Siglufirði tók til starfa fiskimjölsverk- smiðjan »Bein« og á Norðfirði starfaði einnig fiskimjölsverksmiðja. Þá var enn- fremur endurbætt talsvert fiskimjölsverk- smiðjan á ísafirði. í Reykjavík hafa ekki neinar nýjar verksmiðjur tekið til starfa á árinu, en Sláturfjelag Suðurlands endurbætti hjá sjer útbúning til niðursuðu og jók hana mikið. Sænska frystihúsið hefir ekki ennþá tekið til starfa, en gerir það væntanlega snemma á næsta ári. Mjólkurbú Flóamanna tók til starfa 5. des. s. 1. Er verkefni þess gerilsneyðing á mjólk og framleiðsla á skyri og ostum, auk smjör framleiðslunnar. Hefir búið fengið nýtísku- vjelar, og til forstöðu verið ráðinn danskur maður, sem vanur er þesskon r starfi. Er mjög líklegt, að búið geti fengið mikinn markað fyrir framleiðslu sína hjer í Rvík. Á hverju þingi er varið miklum tíma til ræðuhalda um ríkisrekstur á ýmsum at- vinnusviðum. Fylgja jafnaðarmenn þeim málum fast fram, en gætnir menn reyna að hindra framgang þeirra, því enn munu ófarir Landsverslunarinnar vera í fersku minni, þótt einokunarsagan gamla virðist vera gleymd,

x

Verslunartíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.