Verslunartíðindi - 01.01.1930, Side 13
VERSLUNARTlÐINDI
7
2.00 pr. kg. cif., þó með því skilyrði, ef
rýrnun var meiri en 3°/0 var krafist upp-
bótar. Ennfremur máttu ekki vera meira en
10 % af mislitum gærum í hverri sendingu.
Þetta stafar af vigtarrýrnuninni i fyrra, sem
bakaði kaupendum mikið tjón; ennfremur
hafa sumir ísl. seljendur valið úr óg selt
hjer bestu og stærstu hvitu gærurnar,
og af því leiðir að það koma sendingar
með mörgum litlum og mislitum gærum.
Og þó einstaka ísl. verslunarhús hafi fengið
góða sölu á stórum og hvítum gærum, þá
verður það til þess að margir aðrir kaup-
menn bíða þvi meiri halla, sem hafa lakari
vöru að bjóða á næstu árum. Hjer liggja
ca. 15700 b. óseld.
Ullarmarkaðurinn hefur verið dræmari
en árið 1928, en er þó borgað 2.50 fyrir
hvíta þvegna haustull. Óánægja hefur einn-
ig átt sjer stað með þessa vöru, vegna
þess að sendingar hafa komið, þar sem í
var, að nokkru leyti eða öllu, mjög óvönd-
uð vara.
Selskinn hafa fallið töluvert í verði þegar
borið er saman við verðið í fyrra, og er
skráningin nú ca. 9 kr. fyrir 1. fl. mislit
skinn.
Æðardúnn hefur verið seldur á ca. 40 kr.
pr. kg. en aðflutningurinn hefur verið litill«.
Síðan þetta var skrifað hefur verð á
flestum þessum vörutegunduin farið heldur
lækkandi nema helst á dilkakjöti, en af
því mun vera litið óselt.
Verð á útlendum vörum hefur lítið breyst
síðan Verslunartíðindi komu síðast út, þó
hefur rúgmjöl lækkað, samkv. Hafnarskrán-
ing úr 16 kr. niður í 15.50 og kaffi úr 105
kr. niður í 100 kr. pr. 100 kg.
Verslunarráð íslands
nýir þátttakendur.
H.f. Isaga í Reykjavík.
Ingvar Guðjónsson, útgerðam. Akureyri.
Sykurframleiðsla og
sykurútflutningur
í Póllandi og Tjekkóslóvakíu.
Af eftirfarandi yfirliti má sjá sykurfram-
leiðsluna og sykurútflutninginn á Póllandi
síðustu 5 árin:
Framleiðsla. Útflutningur.
1000 dc. 1000 dc.
1924—1925 4899 2260
1925—1926 5790 2806
1926—1927 5747 2383
1927—1928 5658 1769
1928—1929 7454 2852
Árið er talið frá 1. okt. til 30. sept., og
framleiðslu- og útflutningsmagn talið í óunn-
um sykri, breytt þannig, að 88 kg. af unn-
um sykri samsvarar 100 kg. af óunnum.
Eins og sjá má af yfirlitinu hefur fram-
leiðslan verið nokkuð svipuð þetta 5 ára
tímabil, en innanlands neyslan hefur farið
vaxandi. Eitthvað hefur útflutningur samt
aukist af óunnum sykri, en minkað af betri
tegundum af unnum sykri, sem stafar af
verndartollum i þeim löndum, sem aðal-
lega hefur verið skift við. Þetta sjest best
af því, að árið 1924—’25 var óunni sykur-
inn 42 °/tí af öllum útflutningnum, þegar
talið er eftir útflutningsmagni, og 33,7 °/0
þegar reiknað er eftir verðmæti, en 1928
til 1929 eru þessar tölur 56,5 °/0 og
52,8 «/„.
Síðastl. ár voru viðskiftin rnest við Eng-
land, og hafa þau farið mikið vaxandi, sem
stafar af því, að þessi iðnaður hefur fengið
mikinn fjárhagslegan stuðning frá enskum
bönkum. Þjóðverjar hafa einnig fengið mik-
ið af pólskum sykri síðustu :> árin; minst
1926—1927, 6,8 °/0 af útflutningnum og
mest 1924—25, 25,4 °/0. í mörg ár hafa
Niðurlöndin einnig keypt mikið af pólsk-