Verslunartíðindi - 01.01.1930, Qupperneq 14
8
VER8LUN ARTIÐINDI
um sykri, en þau viðskifti hafa farið
minkandi á síðari árum. Þá hafa einnig
Norðurlönd, Frakkland, Ítalía og Rússland
keypt talsvert af pólskum sykri.
f Tjekkóslóvakíu hefur sykuriðnaðurinn
átt í talsverðnm erfiðleikum á síðustu ár-
um. Síða tliðið vor var sykurrófnafræi sáð
þar í 227258 ha., og er það 23217 ha.
minna en árið áður. — Áætlað er að rófu-
uppskeran sje nú í ár 54.224.202 meter-
centr. (mc. = 100 kg.). og hefur hún mink-
að um ca. 30 °/0 á síðustu tveimur árum.
Sykurframleiðslan er þarafleiðandi mun
minni en hún hefur verið undanfarið.
Tjekkóslóvakiski sykuriðnaðurinn beið
mikinn hnekkir við það, er tollur á óunn-
um sykri var lækkaðar á Englandi, og var
reynt að fá lagfæring á þessu, bæði með
opinberum styrk og með því að hækka
sykurverðið innanlands. Má sjá samkepn-
ina hjer á milli á því. að til sykurfram-
leiðslu á Englandi hefur verið varið hjer
um bil 12 milj. sterlings punda af opin-
beru fje síðustu 5 árin. Þessi styrkur hefur
komið því til leiðar, að sykurinnflutningur
hefur minkað á Englandi og sykurrófurækt-
in hefur aukist. Fyrir Tjekkóslóvakíu er
það því þýðingarmikið atriði, hvernig fer
með sykurframleiðsluna á Englandi þegar
þessi opinberi styrkur hættir 1933—34. í
því sambandi má líka geta þess, að altaf
hefur verið einhver innflutningur af tjekkó-
slóvakiskum sykri til Englands, þrátt fyrir
þennan stuðning frá ríkinu, og stafar það
af þvi, að þessi sykur fellur Englendingum
eitthvað betur í geð en annar sykur. Og
af því kemur það einnig að sykurinnflutn-
ingur frá Tjekkóslóvakíu til Englands hef-
ur minkað tibölulega minna en sykurínn-
flutningur frá öðrum löndum; t. d. 1925—
’26 minkaði þessi innflutningur frá Tjekkó-
slóvakíu úr 300 þús. smálestum niður í 30
þús. smál., en sikurinnflutningur frá Niður-
öndum minkaði það ár úr 300 þús. smál.
niður í 20 þús. smál. og frá Þýskalandi úr
12 þús. niður í 1300 smál.
Þá hefur einnig verið mikið reynt til að
fá nýjan markað fyrir tjekkóslóviskan syk-
ur i Miðjarðarhafslöndunum, Egyptalandi,
Persíu og á Norðurlöndum, og hafa þau
viðskifti aukist til muna. Var t. d. flutt til
Grikklands árið 1928 82.230 centn. og 1929
7.884 þús. Centn., og hafa þessi viðskifti
því aukist um hjerumbil 942 °/0. Við
Egyptaland hafa þau aukist á sama tíma
um 203 °/0, við Persíu um 72 °/0, við Nor-
eg og Svíþjóð um 47 °/0 og við Tyrkland
um 36 °/0. Mjög miklu munaði þó á verð-
mæti sykurútflutningsins síðastl. ár og ár-
ið áður, sem kemur mest til af því að syk-
urverðið var miklu Iægra.
Viðskiftasambönd.
Frá sendiherra Dana hefur Verslunarráð-
ið fengið tilmæli um að getið sje um eftir-
töld verslunarhús, sem vilja komast í sam-
band við ísl. fiskútflytjendur:
Felíx Arenillas, Manuel Allenade 9 —
Apartado 174, Bilbao. Hefur þetta firma
aðallega umboðsverslun og vísar til bank-
anna í Bilbao.
Augusto Oller Serra, Augustina de Ara-
gon, No. 6, Madrid. Er þar visað til eftir-
taldra verslunarhúsa:
D. Crbfido de Simon Martinen, Herman
Cortes no. 7, Importador bacalas.
D. Juan Roix Gomes, Puente de Velle-
cas, Importado bacalas.
D. Hemengildo Aguso, Puente de. Velle-
cas, Importado bacalas.
D. Vivente Escudero, Carranza, no, 19,
Importador Cacalas.