Verslunartíðindi - 01.01.1930, Page 17

Verslunartíðindi - 01.01.1930, Page 17
VERSLUNARTfÐTNDI 11 janúarársfjórðung 23,5°/o» aprílársfj. 28,0% og júliársfj. 26,0°/0, og sjest af því, að vetr- armánuðina eru það 46°/0, en sumarmán- uðina 54°/0. Miklu meiri sveiflur eru aftur á móti á útflutningnum, vegna þess að þar koma ýmiskonar gróðabrögð til greina, og ennþá meiri verða þó verðsveiflurnar, þar sem mikill munur getur orðið á frá ári til árs. Árið 1928—29 var mestur útflutningur- inn í júní, 14,3 milj. kg. eða 9,6°/0 af öll- um útflutningnum, en minstur var útflutn- ingurinn í apríl, 10,9 milj. kg., 7,3°/0. — Megnið af þessari vöru fer venjulega á enskan markað, 67,8%. Til Þýskalands fór síðastl. ár 27,5% og var það 2,6% meira en árið áður. Útflutningurinn til Þýskalands er venjulega meiri vetrarmánuðina en sum- armánuðina. Fyrir utan Bretland og Þýska- land er það aðeins Sviss, sem fær nokkuð að ráði af dönsku smjöri. Útflutningurinn til Frakklands er að vísu að aukast, en hefir litla fjárhagslega þýðingu enn sem komið er vegna þess hve hann er lítill. Annars má sjá af eftirfarandi yfirliti hvern- ig viðskiftin hafa verið: % 1913 1927—28 1928—29 Bretland . . . 93,3 70,5 67,8 Þýskaland . . 1,4 24,9 27,5 Sviss .... 0,3 3,1 2,8 Austurr.—Ungv.l. 4,9 0,0 0,0 Önnur lönd . . 0,1 1,5 1,9 Smjörverðið var dálitið hærra 1928—29f en árið áður. Samkvæmt Kaupmannahafn- arskráningu var meðalverðið kr. 313,85 pr. 100 kg., en kr. 301,94 árið áður. Rafmagnsiðnaðurinn í Englandi. Rafmagnsiðnaðurirtn á Énglandi stendur í hiiklum blóma, og fer útflutningurínn af mfmagnsvörum stöðugt vaxandi; var t. d. í okt. s. 1. flutt út fyrir 391 þús. sterl.pd. meirn en á sama tíma árið áður. Skýrsla hefur komið frá 11 af stærstu rafmagns- verksmiðjunum, oa sýnir hún, að árið 1927— ’28 höfðu þessar verksmiðjur 1.603,034 sterlpd. i nettótekjur, og hluthafar fengu 11,9% i arð. Árið eftir urðu nettótekj- urnar 1.667.392 sterl.pd. og hluthafar fengu 9.5 % í arð. Var hluthafa-arðurinn minni en árið áður, þó nettótekjur yrðu meiri vegna þess að meira var yfirfært til næsta árs, og sem var gjört vegna vaxandi sam- kepni innan þessarar iðngreinar, Annars var útflutningur af rafmagnsvörum óvenjulega mikill síðastl. ár, og fyrstu 9 mánuði ársins voru fluttar út rafmagnsvjelar fyrir 8 milj. sterl.pd., og var þó innanlandssala helm- ingi meiri. Alstaðar stefnir nú að því sama: að færa sjer rafmagnið sem best í nyt. Má segja, að þar sje faríð í þrjár áttir: Að nota vatns- aflið til þess að fmmleiða rafmagn, að nota rafmagn í staðínn fyrir gufu við járnbraut- ir, og nota rafmagnið við allskonar iðnað- arrekstur. Á öllum þessum sviðum hafa Englendingar fylgst með. Síðastl. ár komu þeir upp ratveitustöðvum á Nýja Sjálandi, 66 þús. hk., á Ástralíu 34 þús. hk., i Ni- geria 6 þús. hk., og pantanir hafa enm fremur komið frá Brasilíu, Chile og Ind- landi. Stærstu pantanir um rafvjelar til iðn- aðar hafa komið frá Indlandi og Rhodesiu. Þá hafa Englendingar ennfremar tekið að sjer að koma upp raftækjum við járn- brautarekstur í ýmsum löndum, svo sem t. d. Ungverjalandi, Japan, Brasilíu o. fl. í Japan, Rússlandi, Ástralíu og Búdapest vinna Englendingar nú að því að stækka rafveitustöðvar, og samningar hafa þegar veríð gerðir um þess konar vinnu i Jo- hannesburg, Boliviu, Montevideo, Persíu, Palæstínu og Kína.

x

Verslunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verslunartíðindi
https://timarit.is/publication/1296

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.