Verslunartíðindi - 01.08.1930, Qupperneq 5
VERSLUNARTlÐINDI
63
skyldum og rjettindum samvinnufjelaga.
Pjelagsmeðlimir eiga allir að stunda
landbúnaðarframleiðslu og vera allir bú-
settir í sama bygðarlagi. Þeir mega ekki
vera færri en 10 og ekki fleiri en 50,
nema þeir eigi heima í sama hreppi.
Rekstrarlán hvers einstaks fjélagsmanns
má aldrei fara fram úr 4000 krónum.
Annar kafli þessara laga er um bústofns-
lánafjelög. Eru þau fjelög einnig starf-
rækt samkvæmt lögum um samvinnufje-
lög. Eru þar aðeins lán veitt til þess að
auka bústofn eða koma upp bústofni,
og ennfremur til þess að kaupa verkfæri
til jarðyrkju og heyvinnu. Skuld fje-
lagsmanna við fjelagið má aldrei nema
meiru en 2000 krónum.
Afgreidd voru einnig lög um Fiski-
veiðasjóð Islands: Tilgangur þeirra laga
er að styðja bátaútveginn með hagkvæm
um lánum. Höfúðstóll sjóðsins er: 1.
Eignir gamla Fiskiveiðasjóðsins, 2. 1
milj. kr. tillag úr ríkissjóði og 3. hundr-
aðsgjald af útfluttum fiskafurðum, sem
ákveðið er með sjerstökum lögum og á
að vera %%, miðað við söluverð afurð-
anna með umbúðum fob á þeirri höfn,
er þær fyrst fara frá, að frádregnu út-
flutningsgjaldi, eða söluverð erlendis
cif, að frádregnu útflutningsgjaldi og
flutnings- og ábyrgðargjaldi til útlanda
og miðilsgjaldi.
Úr Fiskiveiðasjóði má eingöngu lána
til skipakaupa, alt að 50 rúmlesta (bó
til stærri skipa, ef fje er til) og til iðn-
fyrirtækja í sambandi við fiskiveiðar.
Lán til kaupa á nýjum skipum má veita
til 12 ára, en þeim mun skemur, sem
nemur fyrningu til kaupa á eldri skip-
um.
Lög um greiðslu verkkaups voru af-
greidd frá þinginu. Eftir þeim skal verk-
kaup goldið með gjaldgengum pening-
útn, og má eigi greiða kaup með skulda-
jöfnuði, nema svo hafi áður verið sjer-
staklega samið um.
Lög um vigt á síld. Eftir þeim skal
öll síld, sem seld er bræðsluverksmiðj-
um til vinnslu, vegin, ef seljandi óskar
þess. Við vigtina skulu notaðar vogir,
er taka að minsta kosti innihald tveggja
mælikera ásamt tæki því, sem síldin er
vegin í, og á eitt mæliker að rúma 135
kg. af síld. Til þessa starfa skulu lög-
giltir nægilega margir vigtarmenn.
Lög nr. 47, 15. júnl 1926 um verðtoll
á nokkrum vörum, og lög nr. 5, 3. apríl
1928 um breyting á þeim lögum, voru
framlengd til ársloka 1931.
Lög um breyting á lögum 22. nóv.
1907 um útflutning hrossa. Eftir þeim
lögum er bannað að flytja út til sölu
yngri hross en 3 vetra og eldri en 10
vetra. Þó má flytja út 2 vetra hross, ef
þau eru falleg útlits og ekki lægri en
126 cm. eða 48 þuml. (bandmál).
Lögin um gengisviðaukan voru fram-
lengd til ársloka 1932.
Afgreidd voru heimildarlög handa
ríkisstjórninni til ríkisrekstrar á útvarpi.
Eftir þeim skipar atvinnumálaráðherra
fimm manna útvarpsráð til tveggja ára,
og velur ráðherra formann þess. At-
vinnumálaráðherra skipar útvarpsstjóra
að fengnum tillögum útvarpsráðs, og
ennfremur skinar hann aðra starfsmenn
við útvarnsstöðina, eftir því, sem þörf
krefur. í lögum þessum eru ákvæði um
einkasölu á útvamstækium svohljóð-
andi: „Ríkisstiórninni er heimilt að á-
kveða einkasölu á útvarnstækium. Skal
þó engum öðrum en ríkisstiórninni, eða
þeim, sem hún felur það, heimilt að
flytja inn í landið útvarpstæki nje versla
með þau“. — Þessi útvarpslög eiga að
komast til framkvæmda nú með haust-
inu, og jafnframt er einkasölunni þegar
komið á,