Fréttablaðið - 17.09.2018, Page 8
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Karlveldið
hefur gríðar-
lega margt á
samviskunni
og með réttu
má kenna má
því um
ýmislegt, en í
þessu máli ber
það ekki sök.
Við höfum
allt til alls á
landinu
okkar ef við
viljum. En þá
þarf að hætta
að dekra við
sérhagsmuni
og sjálftöku-
liðið.
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um
kjör fulltrúa Verkalýðsfélagsins Hlífar á 43. þing Alþýðusambands
Íslands, sem haldinn verður dagana 24-26. október 2018. á Hilton
Nordica, Reykjavík
Tillögum með nöfnum 5 aðalfulltrúa og 5 varafulltrúa ber að skila
á skrifstofu Hlífar fyrir kl. 16:00, mánudaginn 24. september n.k.
Tillögunum ber að fylgja meðmæli minnst 60 félagsmanna.
Kjörstjórn Hlífar
Ísland er að mörgu leyti gott samfélag. Menn-ingarlíf landsmanna er í blóma, stutt er í óviðjafnanlega náttúrufegurð og yfirleitt er mikil nálægð við fjölskyldu og vini. Hins vegar er sumt sem er þyngra en tárum taki. Í hverri viku deyr einn Íslendingur vegna ofneyslu
lyfja og annar mun fremja sjálfsvíg. Í dag búa 6.000
íslensk börn við fátækt og um hundrað eldri borgarar
búa á spítalanum því önnur úrræði eru ekki fyrir
hendi.
Þetta þarf ekki að vera svona. Við erum einungis
350 þúsund og við erum 11. ríkasta land í heimi.
Við þurfum ekki láta eldri borgara og fjölskyldur
þeirra búa við óvissu og bág kjör. Við þurfum ekki
að refsa öryrkjum fyrir að vinna. Við þurfum ekki að
setja minni fjármuni í háskólana en nágrannaþjóðir
okkar gera. Við þurfum ekki að láta ljósmæður fara í
kjaradeilu. Við þurfum ekki að láta löggæslu og sam-
göngur drabbast niður. Við þurfum ekki að hafa sam-
félag þar sem ríkasta 1% landsmanna á meira en 80%
þjóðarinnar. Við þurfum ekki að hafa bæjarstjórann
í Þorlákshöfn á hærri launum en borgarstjórann í
London. Við þurfum ekki að lækka veiðileyfagjöld
helmingi meira en það sem stendur til að hækka
persónuafslátt fólks. Og við þurfum ekki að vera eitt
dýrasta land í heimi.
Við lestur á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er
ljóst að stórútgerðarmenn þurfa ekki að fara í mikla
kjaradeilu við þessa ríkisstjórn eins og ljósmæður
þurftu að gera.
Enn á að refsa öryrkjum fyrir samfélagsþátttöku
sína og eldri borgarar þurfa áfram að bíða eftir
mannsæmandi kjörum. Barnabætur eru enn skil-
greindar sem fátækrastyrkur og framhaldsskólarnir
fá beinlínis lækkun á fjárframlögum milli ára.
Við höfum allt til alls á landinu okkar ef við viljum.
En þá þarf að hætta að dekra við sérhagsmuni og
sjálftökuliðið.
Hlúum að hinum venjulega Íslendingi og gerum
lífið auðveldara og ódýrara.
Gerum lífið betra
Ágúst Ólafur
Ágústsson
þingmaður Sam-
fylkingarinnar
Stórstjörnum í hinum alþjóðlega íþrótta-heimi fyrirgefst margt, enda gagnrýnislaus aðdáun á þeim mikil. Sumar eru nánast í guða tölu og engu er líkara en þær geti ekki gert neitt rangt. Raunin er þó önnur því skrifa mætti heilu doðrantana um þær íþrótta-
hetjur sem hafa orðið uppvísar að ýmsu misjöfnu.
Þær sleppa þó yfirleitt vel. Aðdáendum stendur til
dæmis nákvæmlega á sama um það þótt forríka og
glæsilega knattspyrnuhetjan þeirra sé afhjúpuð fyrir
stórfelld skattsvik, eins og er stöðugt að gerast úti í
hinum stóra heimi. Fótboltastjörnur eins og Lionel
Messi og Cristiano Ronaldo eru dáðar fyrir leikni sína
á vellinum og skattsvik þeirra eru ekkert sérstaklega til
umræðu og fyrirgefast fremur auðveldlega. Ekkert slær
heldur á aðdáun fólks á alkunnum hórkörlum eins og
Tiger Woods og Wayne Rooney. Þeir kunna jú ýmislegt
fyrir sér í sinni íþróttagrein.
Svo eru aðrar íþróttahetjur, dáðar um allan heim,
sem kunna að lifa sómasamlega. Þær virðast hinar full-
komnu fyrirmyndir og ekkert sýnist geta steypt þeim af
stallinum. Svo dag einn reynast þær versti óvinur sjálfs
sín. Það henti Serenu Williams á dögunum í úrslitaleik
bandaríska meistaramótsins í tennis. Hún braut tennis-
spaða sinn og hellti sér yfir dómarann með ópum og
öskrum þegar henni varð ljóst að hún myndi ekki vinna,
eins og hún virðist sjálf hafa talið fyrirfram öruggt. Það
er ekki á hverjum degi sem stórstjarna sést taka æðiskast
fyrir framan kvikmyndatökuvélar og þar sem þetta var
ansi voldugt kast var þetta hið besta sjónvarpsefni um
allan heim og endursýnt hvað eftir annað.
Í stað þess að skammast sín fyrir forkastanlega
framkomu hélt Williams, sem sannarlega braut reglur,
því fram að dómarinn hefði svínað á henni vegna
þess að hún er kona og þar að auki svört. Karlveldið
hefur gríðarlega margt á samviskunni og með réttu má
kenna því um ýmislegt, en í þessu máli ber það ekki
sök, eins og upptökur sanna. Heimsþekkt íþróttakona,
sem er vön að sigra og telur sig greinilega réttborna
til þess, mætti ofjarli sínum. Það kemur kvennakúgun
ekkert við. Hin japanska Naomi Osaka sigraði tennis-
drottninguna á sannfærandi hátt. Hún á einnig hrós
skilið fyrir að búa yfir nægum sálarstyrk til að þola
frekjuköst stórstjörnunnar meðan á leik stóð. Það er
sérlega aðdáunarvert vegna þess að Osaka hefur sjálf
sagt að Williams sé fyrirmynd sín. Þarna var Williams
þó engin fyrirmynd. Framkoma hennar var einmitt
skólabókardæmi um það hvernig á ekki að bregðast
við þegar ljóst er að leikurinn er að tapast.
Það skrýtna í þessu máli er að engu máli virðist
skipta að Williams hegðaði sér eins og fordekruð
frekjudós. Í nafni kvennasamstöðu og baráttu gegn
karlveldinu hefur Serena Williams verið hyllt, þrátt
fyrir að hafa ítrekað brotið reglur og orðið sér til
háborinnar skammar á vellinum.
Þetta kallast að snúa hlutunum rækilega á hvolf. Um
leið skipta staðreyndir engu máli og réttmætar áminn-
ingar og refsistig karlkynsdómara eru einungis sögð til
marks um illa meðferð á konum í íþróttaheiminum.
Þvílík endemis þvæla!
Fýlukast
Fögnuður
Síðasta vika var viðburðarík
innan veggja WOW air en
á föstudag tilkynnti félag-
ið að tekist hefði að tryggja
fjármögnun þess fyrir næstu
misseri. Á tímabili virtist útlitið
tvísýnt, markaðir fóru á ferð
og flug og Seðlabankinn greip
inn í gjaldeyrismarkað. Það var
því skiljanlega þungu fargi létt
af stjórnendum þegar allt var í
höfn. Áfanganum var fagnað á
Kexi Hosteli og Snaps á föstu-
dagskvöldið og mátti greinilega
merkja spennufall á stjórn-
endum eftir ókyrrðina dagana
á undan. Sá kaldi þetta kvöldið
var vafalaust verðskuldaðri en
flestir slíkir dagana og mánuð-
ina á undan.
Táknin
Þingflokkur Viðreisnar lagði á
ný fram nýtt frumvarp til laga
um mannanafnanefnd. Hið fyrra
dó drottni sínum í nefnd eftir
fyrstu umræðu. Frumvarpið
galopnar á frelsi við nafngjöf
fyrir utan að það skyldar fólk
til að heita minnst eiginnafni
og kenninafni. Hver og einn
má taka upp það ættarnafn
sem honum sýnist og virðist
þá einu gilda að einhver annar
hafi brúkað það áður. Þá opnar
frumvarpið líka á að nota tákn
og óhefðbundið letur við nafn-
giftir. Algjörlega vanhugsað
segja einhverjir, löngu tímabær
gleðitíðindi segja aðrir.
joli@frettabladid.is
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
7
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
7
-9
C
D
4
2
0
D
7
-9
B
9
8
2
0
D
7
-9
A
5
C
2
0
D
7
-9
9
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K