Fréttablaðið - 17.09.2018, Side 9

Fréttablaðið - 17.09.2018, Side 9
Don't enlarge the this template. The size of this template can be reduced. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 KOMDU OG REYNSLUAKTU NÝJUM NISSAN MICRA NISSAN MICRA VERÐ FRÁ: 2.350.000 KR. NISSAN hlaut viðurkenningu bílasöluritsins AutoTrader sem BEST BÚNI BÍLLINN 2018. Viðurkenningin er byggð á könnun meðal rúmlega 40 þúsund bíleigenda á því hvaða framleiðandi uppfylli best þarfir um staðalbúnað í nýjum bifreiðum. E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 7 6 4 N is s a n M ic ra 5 x 2 0 a lm e n n s e p t 2 *M ið að v ið u pp ge fn ar tö lu r f ra m le ið an da u m e ld sn ey tis no tk un í bl ön du ðu m a ks tr i. B íll á m yn d N is sa n M ic ra T ek na . V er ð 2 .7 9 0 .0 0 0 k r. Yfirmaður minn einu sinni var mikið og skært nýstirni í íslensku við­skiptalífi. Hann þótti rosagóður í bissness. Hug­myndaríkur og áræðinn. Mér fannst þetta fínn náungi svona í daglegri viðkynningu og vona að hann sé að gera það gott núna og sé búinn að finna jafnvægið í lífinu. Það hefur lítið spurst til hans. Þetta var nokkrum árum fyrir hrun. Mér finnst það svo ótrúlega bitastætt, nú þegar ég lít til baka og velti fyrir mér stöðu viðskipta­ stjarnanna í íslensku viðskiptalífi, að síðasta símtalið sem ég átti við þennan unga mann, sem undirmaður hans, var þegar hann hringdi í mig úr tíkallasíma á Kvíabryggju. Hann var alveg hress og allt það, en hann hringdi semsagt til þess að segja mér að peningarnir væru því miður búnir — starfsemin hefði farið of geyst af stað — og nú þyrfti ég að fara að segja upp fólki. Hann var sjálfur að afplána dóm sem hann hafði fengið nokkru fyrr út af peningamál­ um. Ég vatt mér í verkefnið. Fólk grét og þetta var erfitt. Skömmu síðar var mér sagt upp. Á afmælisdaginn minn. Rétt eftir það hætti svo starfsemin alveg. Hún fjaraði út í peningaskorti. Hvað gerðist? Ég velti stundum fyrir mér og ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um svarið: Hvað er góður viðskiptamaður? Hvað er góður stjórnandi í fyrirtæki? Nú hefur maður lesið af athygli og með þónokkurri undrun fréttir af íslensku flugfélögunum. Þeim hafa stýrt á undanförnum árum miklir mógúlar í viðskiptalífinu. Ég hugsa að þetta séu alveg ágætismenn. Hugmyndaríkir og áræðnir. Snjallir í tölunum. En vanga­ velturnar sem æpa á mig eru samt sem áður þessar: Það hefur beinlínis orðið fordæmalaus sprenging í túrisma á Íslandi á undanförnum árum. Fjöldi ferðafólks hingað til lands hefur aukist stjarnfræðilega. Flugfélögin hafa flutt hingað fólkið frá öllum heimshornum. Eldsneytisverð hefur verið í sögulegum lægðum. Hafa ekki ríkt kjörskilyrði til þess að reka flugfélag? Af hverju eiga félögin, eftir svona langan og góðan uppgangstíma, ekki haug af seðlum? Innistæðulaust tal Glætan spætan. Eldsneytisverð hækkar (eins og við mátti búast, ekki satt?) og vá. Allt er í steik. Ég veit ekki hvernig á að reka flugfélag. Kannski er samkeppn­ in svo mikil að öll flugfélög eru í raun nauðbeygð til að verðleggja sig í þrot. Það kann að vera. Ef til vill hafði Richard Branson rétt fyrir sér þegar hann sagði að besta leiðin fyrir milljarðamæring til þess að verða milljónamæringur sé að eiga flugfélag. En hversu heimsku­ legt er þetta samt? Sem Íslendingur er maður orðinn æði vanur því að fólk í viðskiptum sé dásamað og vöxtur fyrir­ tækja þeirra álitinn ríkulegt aðdáunar­ efni. Valdir eru viðskiptamenn ársins og tekin drottningarviðtöl um framtíðar­ áætlanir og hvernig ebitada og skúbi­ dada og cashflow og margína muni skrilljónfaldast. Í hruninu var þjóðin rækilega minnt á það hvernig allt svona tal getur verið algjörlega innistæðulaust. Að baki velsældinni eru alltaf skuldir. Á bak við allt lán er lán. Eftir hrun liðu nokkur ár þar sem beinlínis allt fólk í viðskiptum var litið hornauga. Á tíma­ bili fannst mér eins og stemningin væri þannig að enginn mætti yfirhöfuð hafa nein áform um neitt, ekki fjárfesta í neinu, ekki byggja neitt, nema kannski mögulega frú Vigdís Finnbogadóttir. Allir aðrir voru tortryggilegir. Það má eitthvað á milli vera. Við þurfum góð, vel rekin fyrirtæki. Þá kom einmitt ferðaþjónustan og allur upp­ gangurinn. Maður gladdist yfir því að leiðsögufólk í lopapeysum náði loksins að græða fé. Konur á fjallahjólum stofn­ uðu fyrirtæki. Iðnaðarhúsnæði varð gistihús. Líf spratt. Var ljóðrænt réttlæti að verki? Nýtt heilbrigt viðskiptalíf að verða til? Sami lærdómurinn Stinga þá ekki þessir viðskiptamenn ársins aftur upp kollinum. Hressir. Öruggir. Búnir að hugsa þetta. Staðan er borðleggjandi. Þetta getur ekki klikkað. Þeirra tími er kominn. Í framtíðinni verður flug ókeypis. Ársreikningar sýna trausta stöðu. Frábær milliuppgjör. Fregnirnar af vandræðum WOW í liðinni viku sýndu manni enn og aftur hversu fyndið og fáránlegt allt þetta tal er í raun og veru. Einn daginn eru peningarnir bara búnir. Allir hressir samt. Svona er lífið. Sjitt happens. Þetta reddaðist ekki. Kannski reddast WOW og kannski reddast Icelandair. Eftir stendur þó enn einn harður lærdómurinn um sífellt það sama: Þeir sem fljúga hæst falla hraðast. Einhvern tímann verður von­ andi í fararbroddi í viðskiptalífinu fólk sem er raunsærra, jarðbundnara, ekki of bjartsýnt. Það má vel vera eldhugar. Oft er hæfilegt óraunsæi drifkraftur framkvæmda. Það má vera áræðið. Það má vera hugmyndaríkt. Bara ekki hringja í okkur hin úr tíkallasímanum á Kvíabryggju enn eina ferðina til að segja okkur að peningarnir séu búnir. Viðskiptamenn ársins Ef til vill hafði Rich- ard Branson rétt fyrir sér þegar hann sagði að besta leiðin fyrir millj- arðamæring til þess að verða millj- ónamæring- ur sé að eiga flugfélag. Guðmundur Steingrímsson Í DAG S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 1 7 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D 7 -8 E 0 4 2 0 D 7 -8 C C 8 2 0 D 7 -8 B 8 C 2 0 D 7 -8 A 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.