Fréttablaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 9
Don't enlarge the this template.
The size of this template can be reduced.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSAN MICRA
NISSAN MICRA
VERÐ FRÁ: 2.350.000 KR.
NISSAN hlaut viðurkenningu bílasöluritsins AutoTrader sem BEST BÚNI BÍLLINN 2018.
Viðurkenningin er byggð á könnun meðal rúmlega 40 þúsund bíleigenda á því hvaða
framleiðandi uppfylli best þarfir um staðalbúnað í nýjum bifreiðum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
9
7
6
4
N
is
s
a
n
M
ic
ra
5
x
2
0
a
lm
e
n
n
s
e
p
t
2
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
B
íll
á
m
yn
d
N
is
sa
n
M
ic
ra
T
ek
na
. V
er
ð
2
.7
9
0
.0
0
0
k
r.
Yfirmaður minn einu sinni var mikið og skært nýstirni í íslensku viðskiptalífi. Hann þótti rosagóður í bissness. Hugmyndaríkur og áræðinn.
Mér fannst þetta fínn náungi svona í
daglegri viðkynningu og vona að hann
sé að gera það gott núna og sé búinn
að finna jafnvægið í lífinu. Það hefur
lítið spurst til hans. Þetta var nokkrum
árum fyrir hrun. Mér finnst það svo
ótrúlega bitastætt, nú þegar ég lít til
baka og velti fyrir mér stöðu viðskipta
stjarnanna í íslensku viðskiptalífi, að
síðasta símtalið sem ég átti við þennan
unga mann, sem undirmaður hans, var
þegar hann hringdi í mig úr tíkallasíma
á Kvíabryggju. Hann var alveg hress og
allt það, en hann hringdi semsagt til
þess að segja mér að peningarnir væru
því miður búnir — starfsemin hefði
farið of geyst af stað — og nú þyrfti ég
að fara að segja upp fólki. Hann var
sjálfur að afplána dóm sem hann hafði
fengið nokkru fyrr út af peningamál
um. Ég vatt mér í verkefnið. Fólk grét
og þetta var erfitt. Skömmu síðar var
mér sagt upp. Á afmælisdaginn minn.
Rétt eftir það hætti svo starfsemin
alveg. Hún fjaraði út í peningaskorti.
Hvað gerðist?
Ég velti stundum fyrir mér og ég verð að
viðurkenna að ég hef ekki hugmynd um
svarið: Hvað er góður viðskiptamaður?
Hvað er góður stjórnandi í fyrirtæki?
Nú hefur maður lesið af athygli og með
þónokkurri undrun fréttir af íslensku
flugfélögunum. Þeim hafa stýrt á
undanförnum árum miklir mógúlar í
viðskiptalífinu. Ég hugsa að þetta séu
alveg ágætismenn. Hugmyndaríkir og
áræðnir. Snjallir í tölunum. En vanga
velturnar sem æpa á mig eru samt sem
áður þessar: Það hefur beinlínis orðið
fordæmalaus sprenging í túrisma á
Íslandi á undanförnum árum. Fjöldi
ferðafólks hingað til lands hefur aukist
stjarnfræðilega. Flugfélögin hafa flutt
hingað fólkið frá öllum heimshornum.
Eldsneytisverð hefur verið í sögulegum
lægðum. Hafa ekki ríkt kjörskilyrði til
þess að reka flugfélag? Af hverju eiga
félögin, eftir svona langan og góðan
uppgangstíma, ekki haug af seðlum?
Innistæðulaust tal
Glætan spætan. Eldsneytisverð hækkar
(eins og við mátti búast, ekki satt?) og
vá. Allt er í steik. Ég veit ekki hvernig á
að reka flugfélag. Kannski er samkeppn
in svo mikil að öll flugfélög eru í raun
nauðbeygð til að verðleggja sig í þrot.
Það kann að vera. Ef til vill hafði Richard
Branson rétt fyrir sér þegar hann sagði
að besta leiðin fyrir milljarðamæring
til þess að verða milljónamæringur sé
að eiga flugfélag. En hversu heimsku
legt er þetta samt? Sem Íslendingur er
maður orðinn æði vanur því að fólk í
viðskiptum sé dásamað og vöxtur fyrir
tækja þeirra álitinn ríkulegt aðdáunar
efni. Valdir eru viðskiptamenn ársins og
tekin drottningarviðtöl um framtíðar
áætlanir og hvernig ebitada og skúbi
dada og cashflow og margína muni
skrilljónfaldast. Í hruninu var þjóðin
rækilega minnt á það hvernig allt svona
tal getur verið algjörlega innistæðulaust.
Að baki velsældinni eru alltaf skuldir.
Á bak við allt lán er lán. Eftir hrun liðu
nokkur ár þar sem beinlínis allt fólk í
viðskiptum var litið hornauga. Á tíma
bili fannst mér eins og stemningin væri
þannig að enginn mætti yfirhöfuð hafa
nein áform um neitt, ekki fjárfesta í
neinu, ekki byggja neitt, nema kannski
mögulega frú Vigdís Finnbogadóttir.
Allir aðrir voru tortryggilegir.
Það má eitthvað á milli vera. Við
þurfum góð, vel rekin fyrirtæki. Þá kom
einmitt ferðaþjónustan og allur upp
gangurinn. Maður gladdist yfir því að
leiðsögufólk í lopapeysum náði loksins
að græða fé. Konur á fjallahjólum stofn
uðu fyrirtæki. Iðnaðarhúsnæði varð
gistihús. Líf spratt. Var ljóðrænt réttlæti
að verki? Nýtt heilbrigt viðskiptalíf að
verða til?
Sami lærdómurinn
Stinga þá ekki þessir viðskiptamenn
ársins aftur upp kollinum. Hressir.
Öruggir. Búnir að hugsa þetta. Staðan er
borðleggjandi. Þetta getur ekki klikkað.
Þeirra tími er kominn. Í framtíðinni
verður flug ókeypis. Ársreikningar sýna
trausta stöðu. Frábær milliuppgjör.
Fregnirnar af vandræðum WOW í
liðinni viku sýndu manni enn og aftur
hversu fyndið og fáránlegt allt þetta
tal er í raun og veru. Einn daginn eru
peningarnir bara búnir. Allir hressir
samt. Svona er lífið. Sjitt happens. Þetta
reddaðist ekki.
Kannski reddast WOW og kannski
reddast Icelandair. Eftir stendur þó enn
einn harður lærdómurinn um sífellt
það sama: Þeir sem fljúga hæst falla
hraðast. Einhvern tímann verður von
andi í fararbroddi í viðskiptalífinu fólk
sem er raunsærra, jarðbundnara, ekki
of bjartsýnt. Það má vel vera eldhugar.
Oft er hæfilegt óraunsæi drifkraftur
framkvæmda. Það má vera áræðið.
Það má vera hugmyndaríkt. Bara ekki
hringja í okkur hin úr tíkallasímanum á
Kvíabryggju enn eina ferðina til að segja
okkur að peningarnir séu búnir.
Viðskiptamenn ársins
Ef til vill
hafði Rich-
ard Branson
rétt fyrir sér
þegar hann
sagði að
besta leiðin
fyrir millj-
arðamæring
til þess að
verða millj-
ónamæring-
ur sé að eiga
flugfélag.
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8
1
7
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
7
-8
E
0
4
2
0
D
7
-8
C
C
8
2
0
D
7
-8
B
8
C
2
0
D
7
-8
A
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K