Fréttablaðið - 17.09.2018, Side 39

Fréttablaðið - 17.09.2018, Side 39
KAUPTU PEUGEOT S ENDIBÍL Í S EPTEMBER MEÐ 300.000-50 0.000 KR. AF SLÆTTI! peugeotisland.is Nýir og notaðir bílar: Söludeildir opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 8 Sími 515 7040 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 500.000 kr. afsláttur ALLT AÐ: ALLT AÐ: PARTNER TILBOÐ SVERÐ FRÁ: 1.999.999 2.480.000 KR. ME Ð VSK. KR. ÁN VSK. EXPERT MILLILAN GUR TILBOÐSVER Ð FRÁ: 2.987.900 3.705.000 KR. ME Ð VSK. KR. ÁN VSK. EXPERT LANGUR TILBOÐSVERÐ FR Á: 3.036.290 3.765.000 KR. ME Ð VSK. KR. ÁN VSK. Peugeot_sendibilar_tilbod_5x15.indd 1 14/09/2018 14:37 FÓTBOLTI Albert Guðmundsson hjá AZ Alkmaar og Kristófer Ingi Krist- insson hjá Willem II skoruðu báðir fyrstu mörk sín í hollensku efstu deildinni um helgina. Það dugði ekki liðum þeirra til sigurs heldur þurftu báðir að sætta sig við jafntefli. Albert var í byrjunarliði AZ Alkmaar í fyrsta sinn eftir vista- skipti frá PSV í sumar þegar AZ tók á móti Feyenoord á heimavelli. Kom hann liði sínu yfir á 4. mínútu leiks- ins með snyrtilegu skoti og lék allan leikinn en Feyenoord náði að taka stig með sér heim til Rotterdam. Á laugardaginn kom Kristófer inn af bekknum þegar Willem II var 0-2 undir en hann skoraði og reyndist það markið sem bjargaði stigi fyrir Willem. Hann fékk fyrstu tækifæri sín hjá félaginu síðasta vor og hefur verið á bekknum í fyrstu leikjum tímabilsins en þetta var fyrsta mark hans fyrir aðalliðið. – kpt Kristófer og Albert brutu ísinn í Hollandi Albert Guð- mundsson. KÖRFUBOLTI Íslenska karlalands- liðið í körfubolta hóf undankeppni EuroBasket 2021 á svekkjandi þriggja stiga tapi 80-77 fyrir Portú- gal ytra í gær. Var þetta fyrsti leikur Íslands í riðlakeppninni en ásamt Portúgal og Íslandi er Belgía í C-riðli. Fer eitt lið áfram á lokastig undan- keppninnar og er Portúgal efst og eina liðið sem hefur leikið tvo leiki. Næsti leikur Íslands er gegn Belgíu í nóvember á heimavelli þar sem Ísland þarf á sigri að halda. Leikurinn var afar jafn í fyrri hálf- leik, liðin skiptust á forskotinu og náði Ísland mest fimm stiga forskoti þó að Portúgal væri aldrei langt undan. Náði Portúgal forskotinu skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks og ellefu stiga forskoti í upphafi fjórða leikhluta eftir slæman leikkafla hjá íslenska liðinu en Íslendingarnir neituðu að gefast upp. Gerðum of mörg mistök Elvar Friðriksson og Kári Jóns- son áttu stóran þátt í því að Ísland komst aftur inn í leikinn og náði forskotinu en á lokametrunum sigu Portúgalar fram úr. Settu þeir fjögur síðustu stig leiksins og unnu nauman þriggja stiga sigur. Ísland fékk gott færi til að komast yfir þegar ellefu sekúndur voru eftir en niður vildi boltinn ekki og með því fóru möguleikar Íslands. Þjálfari landsliðsins, Craig Peder- sen, var skiljanlega hundsvekktur er Fréttablaðið sló á þráðinn til hans til Portúgals. „Tilfinningin er ekki góð og ég er afar vonsvikinn, við gerðum marga jákvæða hluti í leiknum en gerðum of mörg mistök til að vinna þennan leik. Við vorum að tapa boltanum á stöðum sem gáfu þeim auðveldar körfur, það er óboðlegt að gefa svona liði körfur þar sem þú getur ekki varist þeim,“ sagði Craig og hélt áfram: „Í varnarleiknum vorum við heldur ekki nægilega duglegir að ýta þeim út til að aðstoða Tryggva. Þeir fá stóra körfu upp úr sóknafrá- kasti þar sem menn gleyma sér sem má ekki gerast. Sú karfa gerði út af við okkur, þar voru menn einfald- lega ekki nógu beittir til að klára leikinn. Þetta var leikur þar sem smáatriðin skipta máli og ein sókn gerði útslagið. Við þurftum eina körfu til viðbótar og fengum færi til þess en það vantaði herslumuninn.“ Ísland átti góðar rispur í sóknar- leiknum. „Í sókninni vorum við að fá fína möguleika, skapa okkur skot sem við viljum fá en náðum ekki að nýta þau nægilega vel.“ Það er ljóst að Ísland þarf helst að vinna alla þrjá leikina sem eftir eru til að komast áfram. „Þeir eru með gott lið með leik- menn úr frábærum liðum en við sýndum það í dag að við getum unnið Portúgal. Þetta er jafn og spennandi riðill og það geta allir unnið alla,“ sagði Craig og hélt áfram: „Þeir fengu færi til að vinna Belg- íu, rétt eins og við fengum tæki- færi til að vinna hér í Portúgal. Nú verðum við að einbeita okkur að Belgíuleiknum og verja heimavöll okkar, við verðum að vinna þann leik,“ sagði Craig svekktur að lokum. Hann hefur nægan tíma til að fara yfir hvað fór úrskeiðis enda næsti leikur Íslands, gegn Belgíu á heima- velli, ekki fyrr en í nóvember. kristinnpall@frettabladid.is Mistök kostuðu okkur leikinn Íslenska körfuboltalandsliðið þurfti að sætta sig við svekkjandi þriggja stiga tap fyrir Portúgal í gær. Hann tók ýmislegt jákvætt úr leiknum þrátt fyrir tapið en sagði að fjöldi mistaka liðsins hefði gert út um leikinn. Martin Hermannsson fór fyrir liði Íslands í stigaskorun líkt og oft áður en hann var gríðarlega óheppinn að snið- skot hans fór ekki niður sem hefði líklegast dugað Íslandi til sigurs á lokasekúndum leiksins. NORDICPHOTOS/GETTY Stig Íslands: Martin Hermanns- son 20/8 stoðsendingar, Tryggvi Hlinason 15, Hörður Axel Vil- hjálmsson 14, Elvar Már Friðriks- son 11, Kári Jónsson 11, Kristófer Acox 4, Hlynur Bæringsson 2/8 fráköst PORTÚGAL 80 34 ÍSLAND 77 33 KÖRFUBOLTI Körfuboltalið Kefla- víkur fékk gríðarlegan liðsstyrk fyrir komandi tímabil þegar Mike Craion skrifaði undir hjá félaginu. Snýr hann aftur til Íslands eftir að hafa leikið í Frakklandi undanfarin ár. Staðfesti hann í samtali við Karfan.is að hann væri búinn að semja við Keflavík. Lék hann í tvö ár með Keflavík og tvö ár með KR á sínum tíma og var einn besti leikmaður deildar- innar. Vann hann tvo Íslands- meistaratitla með KR og var með 22 stig og ellefu fráköst að meðal- tali í leik. – kpt Craion snýr aftur í Keflavík S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M Á N U D A G U R 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 1 7 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 7 -8 9 1 4 2 0 D 7 -8 7 D 8 2 0 D 7 -8 6 9 C 2 0 D 7 -8 5 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.