Fréttablaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 17.09.2018, Blaðsíða 40
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Sveinn Gíslason vélvirki lést mánudaginn 10. september síðastliðinn. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 18. september kl. 15. Þakkir eru færðar læknum og starfsfólki taugalækningadeildar Landspítalans. Sigrún Pálsdóttir Hilmar Þórðarson Páll Tómasson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Haraldur Gísli Sigfússon fv. leigubifreiðarstjóri frá Stóru-Hvalsá, Hrútafirði, Álfheimum 44, Reykjavík, lést þriðjudaginn 11. september. Útförin fer fram fimmtudaginn 20. september kl. 13 í Langholtskirkju. Hreinn Haraldsson Ólöf Erna Adamsdóttir Hanna Dóra Haraldsdóttir Bjarni Jón Agnarsson Sigfús Birgir Haraldsson Hanna Jóhannsdóttir barnabörn og fjölskyldur þeirra. Elskuleg móðir mín, amma og langamma, Helga Þórdís Benediktsdóttir hjúkrunarfræðingur, Stórholti 22, lést á Droplaugarstöðum þann 30. ágúst síðastliðinn. Útförin fer fram í kyrrþey. Guðbjörg B. Petersen Benedikt G. Ófeigsson Þórunn Ósk Þorgeirsdóttir Helga Þórdís og Hlynur Þorri Það hefur verið mjög fram-sækið að stofna samtökin á sínum tíma. Við finnum fyrir því að það er mjög mik-ill áhugi á þessu í dag. Okkur langar þess vegna til að efla samtökin og setja þau í fastari skorður,“ segir Björn Hákon Sveinsson, formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl. Samtökin hafa verið rekin sem frjáls félagasamtök en ekki haft fasta félaga- skrá. „Við erum öflug samtök í dag en það er enginn að greiða félagsgjöld. Það getur líka verið erfiðara að sækja um styrki þegar það er engin félagaskrá.“ Björn segir að allir séu velkomnir í samtökin, líka þeir sem eiga bíl. „Við erum að vinna að því að fólk hafi val um ferðamáta. Fólk á að geta nýtt sér almenningssamgöngur og hjólreiðar en líka farið fótgangandi. Þetta tengist mikið skipulagsmálunum. Það skiptir miklu máli hvernig borgin og sveitar- félög eru skipulögð.“ Að mati Björns felast ákveðin lífsgæði í því að eiga ekki bíl. „Þú sparar bæði peninga og tíma og losnar við mikinn streituvald. Við fjölskyldan erum með rafmagnsbíl núna en vorum alveg bíllaus í tvö og hálft ár þegar ég bjó nær vinnu- staðnum. Í framtíðinni stefnum við að því að verða alveg bíllaus.“ Núverandi vinnustaður Björns er á Bíldshöfða en hann býr í Vesturbænum. „Ég hjóla í vinnuna eins oft og ég get. Maður stjórnar þessu auðvitað sjálfur og þetta er líka spurning um hugarfar. Það er alveg hægt að klæða veðrið af sér.“ Á fundinum verður kynning á Bygg- ingarfélagi Samtaka um bíllausan lífsstíl. Félagið sótti um að fá að byggja bíllaust hverfi á Sjómannaskólareitnum við Háteigsveg. Reykjavíkurborg auglýsti nokkrar lóðir sem óhagnaðardrifin félög gátu sótt um. „Þessi hópur hefur unnið mikla vinna við hönnun og skipulagningu hverfisins. Þetta er mjög spennandi verkefni en það kemur í ljós í október hver fær svæðið úthlutað.“ Nýlega voru kynntar tillögur stjórn- valda í loftslagsmálum. Meðal annars á að banna nýskráningar bensín- og dísil- bíla frá 2030 en einnig á að efla almenn- ingssamgöngur og hjólreiðar. „Þetta eru mál sem við erum að skoða og munum jafnvel álykta um á fundinum. Persónu- lega er ég ekki hrifinn af boðum og bönnum. Mér finnst frekar að það eigi að gera innviðina þannig að fólk hafi raun- hæfan valkost við einkabílinn.“ sighvatur@frettabladid.is Bíllaus fagna tíu ára starfi Samtök um bíllausan lífsstíl fagna í dag tíu ára afmæli. Af því tilefni verður haldinn afmælis­ aðalfundur á Kexi Hosteli klukkan 17.30. Björn Hákon Sveinsson, formaður samtakanna, segir að fyrir tíu árum hafi þetta verið jaðarskoðanir en í dag séu þær orðnar mun almennari. Björn Hákon Sveinsson, formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, vill að fólk hafi val um ferðamáta. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Við fjölskyldan erum með rafmagnsbíl núna en vorum alveg bíllaus í tvö og hálft ár. Merkisatburðir 1630 Borgin Boston í Bandaríkjunum er stofnuð af breskum landnemum. 1631 Gústaf Adolf 2. Svíakonungur vinnur sigur á her- sveitum Tillys í orrustunni við Breitenfeld. 1844 Fyrstu alþingiskosningar eru haldnar í Reykjavík. Sveinbjörn Egilsson hlýtur flest atkvæði, 15, en neitar þingsetu og því verður Árni Helgason þingmaður með 11 atkvæði. 1896 Eldur sést í hafi frá Landeyjum, suðvestur af Hellisey. 1966 Vegur fyrir Ólafsfjarðarmúla er formlega opnaður. 1988 Sumarólympíuleikar eru settir í Seoul í Suður-Kóreu. 1992 Landsbankinn tekur eignir Sambands íslenskra sam- vinnufélaga upp í skuldir og innlimar þar með Samvinnu- bankann. 2001 Kauphöllin í New York opnar fyrir viðskipti á ný eftir hryðjuverkin þann 11. september sama ár. 2011 Occupy Wall Street-hreyfingin formlega stofnuð í New York-borg og mótmælir misskiptingu auðs. Meðlimur Occupy Wall Street-hreyfingarinnar lætur í sér heyra á götu í New York árið 2011. NORDICPHOTOS/GETTY Vanessa Williams komst í sögubækur þennan dag fyrir 35 árum þegar hún var fyrst blökkukvenna krýnd Ungfrú Ameríka. Í fyrsta skipti í sögu keppninnar varð sigurvegarinn skotmark hótana og hatursbréfa kynþáttahatara. Tíu mánuðum eftir krýninguna var Vanessu skýrt frá nektarmyndum sem væru að fara í birtingu. Myndirnar taldi hún vera í glatkistunni enda hefði hún aldrei skrifað undir birtingarleyfi. Tilurð myndanna má rekja til ársins 1982 þegar Vanessa vann sem förðunar- fræðingur fyrir Tom Chiapel, ljósmyndara í New York. Hann fékk Vanessu til að sitja fyrir undir því yfirskini að prófa ætti nýja tækni við skuggamyndatöku með tveimur fyrirsætum, en Vanessu myndaði hann með nakinni konu í mis- munandi uppstillingum. Myndirnar draga upp milda mynd af ástalífi samkynhneigðra, sem var afar umdeilt á þessum tíma. Hugh Hefner, út- gefanda Playboy, voru boðnar myndirn- ar til birtingar en hann afþakkaði. Seinna sagði hann Playboy ekki hafa viljað valda nýkrýndri Ungfrú Ameríku vandræðum, því myndirnar hefðu greinilega verið teknar án samþykkis til birtingar. Nokkru síðar tilkynnti Bob Gucc ione, útgefandi Penthouse, að hann hygðist birta myndirnar í septemberheftinu 1984. Eftir fjölmiðlafár jókst þrýstingur á Vanessu að afsala sér krúnunni, sem hún og gerði á blaðamannafundi 23. júlí 1984. Í september sama ár hóf hún málsókn gegn Chiapel og Guccione, en lét málið niður falla með orðunum: „Sætasta hefndin er velgengni.“ Þ ETTA G E R Ð I ST : 1 7 . S E P T E M B E R 1 9 8 3 Fyrsta blökkukonan krýnd fegurðardrottning Vanessa Willams. 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 7 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 D 7 -8 E 0 4 2 0 D 7 -8 C C 8 2 0 D 7 -8 B 8 C 2 0 D 7 -8 A 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.