Fréttablaðið - 17.09.2018, Side 12
Grindavík - Fjölnir 1-0
0-1 Valmir Berisha (4.).
KR - Keflavík 3-1
0-1 Frans Elvarsson (34.), 1-1 Pálmi Rafn
Pálmason (35.), 2-1 Atli Sigurjónsson (74.),
3-1 Pálmi Rafn (84.)
Víkingur R. - FH 1-1
1-0 Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (74.),
1-1 Jákúb Ludvig Thomsen (79.).
Rautt spjald: Steven Lennon, FH. (90+1.).
Valur - ÍBV 5-1
0-1 Atli Arnarson (20.), 1-1 Patrick Pedersen
(55.), 2-1 Haukur Páll Sigurðsson (59.), 3-1
Patrick (61.), 4-1 Patrick (65.), 5-1 Guðjón
Pétur Lýðsson (88.).
Nýjast
Pepsi-deild karla
Meira til skiptanna
Valur - Grótta 21-15
Valur: Róbert Aron Hostert 8, Ýmir Örn
Gíslason 3, Agnar Smári Jónsson 2.
Grótta: Vilhjálmur Geir Hauksson 3, Sveinn
José Riviera 2, Sigfús Páll Sigfússon 2.
KA - Haukar 31-20
KA: Aki Egilsnes 9, Dagur Gautason 6, Jón
Heiðar SIgurðsson 6, Allan Nordberg 3.
Haukar: Orri Freyr Þorkelsson 6, Atli Már
Báruson 4, Halldór Ingi Jónasson 4.
ÍBV - Stjarnan 35-32
ÍBV: Sigurbergur Sveinsson 8, Kristján Örn
Kristjánsson 7, Theodór Sigurbjörnsson 6.
Stjarnan: Aron Dagur Pálsson 8, Garðar B.
Sigurjónsson 7, Leó Snær Pétursson 6 .
FH - Fram 29-27
FH: Ásbjörn Friðriksson 8, Arnar Freyr
Ársælsson 5, Birgir Már Birgisson 5.
Fram: Andri Þór Helgason 6, Þorgrímur
Smári Ólafsson 5, Valdimar Sigurðsson 5.
Olís-deild karla
KA/Þór - Valur 19-25
KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 7, Sólveig
L. Kristjánsdóttir 4, Katrín Vilhjálmsdóttir 4
Valur: Íris Ásta Pétursdóttir 5, Lovísa
Thompson 4, Sandra Erlingsdóttir 4.
ÍBV - Stjarnan 27-25
ÍBV: Sandra Dís Sigurðardóttir 6, Greta Kav-
aliuskaite 5, Karólína B. Lárusdóttir 4.
Stjarnan: Þórey Anna Ásgeirsdóttir 9,
Stefanía Theodórsdóttir 5.
Olís-deild kvenna
FÓTBOLTI Allt er þegar þrennt er má
segja um fyrsta bikarmeistaratitil
Stjörnunnar í knattspyrnu í karla-
flokki sem vannst um helgina. Var
þetta í þriðja sinn sem Stjarnan lék
til úrslita og í annað sinn sem það
réðst á vítaspyrnukeppni en í þetta
skiptið voru það Garðbæingar sem
fóru fagnandi heim. Þeir hafa hins
vegar ekki langan tíma til að fagna,
þeir eru í harðri baráttu við Val um
Íslandsmeistaratitilinn þegar þrjár
umferðir eru eftir og lifir því draum-
urinn um að vinna tvöfalt góðu lífi
í Garðabæ.
„Við fengum aðeins leyfi til að
fagna þessu í gær, fórum með stuðn-
ingsmönnunum í félagsheimilið og
þar var smá húllumhæ en menn
voru ekkert að missa sig. Það eru
þrír leikir eftir af mótinu og við sett-
um fagnaðarlætin á ís í smá stund,“
sagði Jóhann Laxdal, bakvörður
Stjörnunnar, léttur er Fréttablaðið
sló á þráðinn til hans.
Blikar reyndu að koma Stjörn-
unni á óvart með því að breyta um
leikkerfi og voru liðin varfærin í
fyrri hálfleik. Gáfu fá færi á sér. Eftir
því sem leið á leikinn færðist meiri
hasar í leikinn en allar tilraunir sem
rötuðu á markið voru stöðvaðar af
góðum markvörðum liðanna, Har-
aldi Björnssyni og Gunnleifi Gunn-
leifssyni.
Garðbæingar voru líklegri og
fengu betri færi er Blikar þreyttust
og lentu í meiðslum. Í markinu hélt
Gunnleifur sínum mönnum inni í
leiknum með ótrúlegri markvörslu
og þurfti því að grípa til vítaspyrnu-
keppni.
Þar reyndist Haraldur Björns-
son hetja Garðbæinga. Varði
hann frá Arnóri Gauta Ragnarssyni
stuttu eftir að Oliver Sigurjónsson
skaut yfir markið. Var það því undir
Eyjólfi Héðinssyni komið að koma
titlinum til Garðbæinga og stóðst
hann það próf með prýði.
Þetta var þriðji bikarúrslitaleikur
Jóhanns með Stjörnunni.
„Við höfum oft verið nálægt
þessu, töpum tvisvar í úrslita-
leiknum og svo í undanúrslitunum í
fyrra. Menn hafa oft verið súrir eftir
að hafa dottið úr leik í bikarnum og
við ætluðum okkur ekki að upplifa
þá tilfinningu aftur.“
Búnir að þroskast
Þetta var í þriðja sinn sem Stjarnan
hafði betur gegn Breiðabliki á árinu.
„Það var kannski ekki mikið flæði
í sóknarleik liðanna enda í þriðja
sinn sem liðin mætast og það er erf-
itt að brydda upp á einhverju nýju.
Þetta fer svo í vítaspyrnukeppni
sem er yfirleitt 50/50 en liðið eins
og við erum með það í dag hefur
þroskast á svo mörgum sviðum. Við
erum með mun meira sjálfstraust í
dag til að ná úrslitum. Til þess að
vinna titla þarftu markmann sem
getur unnið leiki fyrir þig líkt og
Haraldur gerði.“
Þetta er annar stóri titill Stjörn-
unnar í karlaflokki og fékk Jóhann
að upplifa hann með uppeldisfélag-
inu, æskuvinum sínum og bróður.
„Það var æðislegt að taka þátt
í öllu þessu með öllu fólkinu hjá
félaginu. Það er heiður fyrir okkur
bræðurna að hafa fengið að vera
þarna allan þennan tíma og vinna
þessa bikara,“ sagði Jóhann.
Hann þurfti að fylgjast með
af hliðarlínunni meiddur þegar
Stjarnan vann Íslandsmeistaratitil-
inn 2014 en var feginn að fá að taka
þátt í þessu.
„Það var mjög sérstakur tími, árið
2014 gladdist ég meira yfir því að
þetta væri félagið mitt. Maður hefði
fundið meira fyrir því sem leikmað-
ur og ég finn það núna hversu sér-
stök tilfinning það er að hafa unnið
bikarinn sem leikmaður.“
Nú hefur Stjarnan unnið báða
stærstu bikarana sem eru í boði í
karlaflokki og Jóhann vonar að það
gefi fordæmi fyrir komandi kyn-
slóðir í Garðabænum.
„Þetta byrjar þegar Bjarni
[Jóhannsson] tekur við, hann legg-
ur grunninn að þessu öllu saman.
Stjarnan hefur verið að taka eitt
skref í einu fram á við en það tekur
tíma að byggja upp sigurhefð hjá
félögum. Þetta gerist ekki á einni
nóttu og þetta er margra ára barátta
sem margir eiga þátt í. Sem dæmi
kemur Baldur inn í þetta fyrir þrem-
ur árum, gríðarlega reynslumikill og
kemur með heilmargt inn í félagið.“
kristinnpall@frettabladid.is
Höfum þroskast heilmikið sem
lið á undanförnum árum
Stjarnan vann sinn fyrsta bikarmeistaratitil í karlaflokki gegn Blikum um helgina. Markverðir liðanna voru
í aðalhlutverki og þurfti vítaspyrnukeppni til að útkljá leikinn þar sem Garðbæingar höfðu betur, 4-1. Jó-
hann Laxdal sagði að Garðbæingar hefðu verið ákveðnir í að tapa ekki þriðja bikarúrslitaleiknum í röð.
Sigursælir Garðbæingar á Laugardalsvelli á laugardaginn þegar bikarmeistaratitillinn var í höfn. MYND/HAFLIÐI BREIÐFJÖRÐ
Stjarnan hefur verið
að taka eitt skref í
einu, það tekur tíma að
byggja upp sigurhefð.
Jóhann Laxdal
1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
7
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
D
7
-7
5
5
4
2
0
D
7
-7
4
1
8
2
0
D
7
-7
2
D
C
2
0
D
7
-7
1
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K