Fréttablaðið - 17.09.2018, Side 12

Fréttablaðið - 17.09.2018, Side 12
Grindavík - Fjölnir 1-0 0-1 Valmir Berisha (4.). KR - Keflavík 3-1 0-1 Frans Elvarsson (34.), 1-1 Pálmi Rafn Pálmason (35.), 2-1 Atli Sigurjónsson (74.), 3-1 Pálmi Rafn (84.) Víkingur R. - FH 1-1 1-0 Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (74.), 1-1 Jákúb Ludvig Thomsen (79.). Rautt spjald: Steven Lennon, FH. (90+1.). Valur - ÍBV 5-1 0-1 Atli Arnarson (20.), 1-1 Patrick Pedersen (55.), 2-1 Haukur Páll Sigurðsson (59.), 3-1 Patrick (61.), 4-1 Patrick (65.), 5-1 Guðjón Pétur Lýðsson (88.). Nýjast Pepsi-deild karla Meira til skiptanna Valur - Grótta 21-15 Valur: Róbert Aron Hostert 8, Ýmir Örn Gíslason 3, Agnar Smári Jónsson 2. Grótta: Vilhjálmur Geir Hauksson 3, Sveinn José Riviera 2, Sigfús Páll Sigfússon 2. KA - Haukar 31-20 KA: Aki Egilsnes 9, Dagur Gautason 6, Jón Heiðar SIgurðsson 6, Allan Nordberg 3. Haukar: Orri Freyr Þorkelsson 6, Atli Már Báruson 4, Halldór Ingi Jónasson 4. ÍBV - Stjarnan 35-32 ÍBV: Sigurbergur Sveinsson 8, Kristján Örn Kristjánsson 7, Theodór Sigurbjörnsson 6. Stjarnan: Aron Dagur Pálsson 8, Garðar B. Sigurjónsson 7, Leó Snær Pétursson 6 . FH - Fram 29-27 FH: Ásbjörn Friðriksson 8, Arnar Freyr Ársælsson 5, Birgir Már Birgisson 5. Fram: Andri Þór Helgason 6, Þorgrímur Smári Ólafsson 5, Valdimar Sigurðsson 5. Olís-deild karla KA/Þór - Valur 19-25 KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 7, Sólveig L. Kristjánsdóttir 4, Katrín Vilhjálmsdóttir 4 Valur: Íris Ásta Pétursdóttir 5, Lovísa Thompson 4, Sandra Erlingsdóttir 4. ÍBV - Stjarnan 27-25 ÍBV: Sandra Dís Sigurðardóttir 6, Greta Kav- aliuskaite 5, Karólína B. Lárusdóttir 4. Stjarnan: Þórey Anna Ásgeirsdóttir 9, Stefanía Theodórsdóttir 5. Olís-deild kvenna FÓTBOLTI Allt er þegar þrennt er má segja um fyrsta bikarmeistaratitil Stjörnunnar í knattspyrnu í karla- flokki sem vannst um helgina. Var þetta í þriðja sinn sem Stjarnan lék til úrslita og í annað sinn sem það réðst á vítaspyrnukeppni en í þetta skiptið voru það Garðbæingar sem fóru fagnandi heim. Þeir hafa hins vegar ekki langan tíma til að fagna, þeir eru í harðri baráttu við Val um Íslandsmeistaratitilinn þegar þrjár umferðir eru eftir og lifir því draum- urinn um að vinna tvöfalt góðu lífi í Garðabæ. „Við fengum aðeins leyfi til að fagna þessu í gær, fórum með stuðn- ingsmönnunum í félagsheimilið og þar var smá húllumhæ en menn voru ekkert að missa sig. Það eru þrír leikir eftir af mótinu og við sett- um fagnaðarlætin á ís í smá stund,“ sagði Jóhann Laxdal, bakvörður Stjörnunnar, léttur er Fréttablaðið sló á þráðinn til hans. Blikar reyndu að koma Stjörn- unni á óvart með því að breyta um leikkerfi og voru liðin varfærin í fyrri hálfleik. Gáfu fá færi á sér. Eftir því sem leið á leikinn færðist meiri hasar í leikinn en allar tilraunir sem rötuðu á markið voru stöðvaðar af góðum markvörðum liðanna, Har- aldi Björnssyni og Gunnleifi Gunn- leifssyni. Garðbæingar voru líklegri og fengu betri færi er Blikar þreyttust og lentu í meiðslum. Í markinu hélt Gunnleifur sínum mönnum inni í leiknum með ótrúlegri markvörslu og þurfti því að grípa til vítaspyrnu- keppni. Þar reyndist Haraldur Björns- son  hetja Garðbæinga.  Varði hann frá Arnóri Gauta Ragnarssyni stuttu eftir að Oliver Sigurjónsson skaut yfir markið. Var það því undir Eyjólfi Héðinssyni komið að koma titlinum til Garðbæinga og stóðst hann það próf með prýði. Þetta var þriðji bikarúrslitaleikur Jóhanns með Stjörnunni. „Við höfum oft verið nálægt þessu, töpum tvisvar í úrslita- leiknum og svo í undanúrslitunum í fyrra. Menn hafa oft verið súrir eftir að hafa dottið úr leik í bikarnum og við ætluðum okkur ekki að upplifa þá tilfinningu aftur.“ Búnir að þroskast Þetta var í þriðja sinn sem Stjarnan hafði betur gegn Breiðabliki á árinu. „Það var kannski ekki mikið flæði í sóknarleik liðanna enda í þriðja sinn sem liðin mætast og það er erf- itt að brydda upp á einhverju nýju.  Þetta fer svo í vítaspyrnukeppni sem er yfirleitt 50/50 en liðið eins og við erum með það í dag hefur þroskast á svo mörgum sviðum. Við erum með mun meira sjálfstraust í dag til að ná úrslitum. Til þess að vinna titla þarftu markmann sem getur unnið leiki fyrir þig líkt og Haraldur gerði.“ Þetta er annar stóri titill Stjörn- unnar í karlaflokki og fékk Jóhann að upplifa hann með uppeldisfélag- inu, æskuvinum sínum og bróður. „Það var æðislegt að taka þátt í öllu þessu með öllu fólkinu hjá félaginu. Það er heiður fyrir okkur bræðurna að hafa fengið að vera þarna allan þennan tíma og vinna þessa bikara,“ sagði Jóhann. Hann þurfti að fylgjast með af hliðarlínunni meiddur þegar Stjarnan vann Íslandsmeistaratitil- inn 2014 en var feginn að fá að taka þátt í þessu. „Það var mjög sérstakur tími, árið 2014 gladdist ég meira yfir því að þetta væri félagið mitt. Maður hefði fundið meira fyrir því sem leikmað- ur og ég finn það núna hversu sér- stök tilfinning það er að hafa unnið bikarinn sem leikmaður.“ Nú hefur Stjarnan unnið báða stærstu bikarana sem eru í boði í karlaflokki og Jóhann vonar að það gefi fordæmi fyrir komandi kyn- slóðir í Garðabænum. „Þetta byrjar þegar Bjarni [Jóhannsson] tekur við, hann legg- ur grunninn að þessu öllu saman. Stjarnan hefur verið að taka eitt skref í einu fram á við en það tekur tíma að byggja upp sigurhefð hjá félögum. Þetta gerist ekki á einni nóttu og þetta er margra ára barátta sem margir eiga þátt í. Sem dæmi kemur Baldur inn í þetta fyrir þrem- ur árum, gríðarlega reynslumikill og kemur með heilmargt inn í félagið.“ kristinnpall@frettabladid.is  Höfum þroskast heilmikið sem lið á undanförnum árum Stjarnan vann sinn fyrsta bikarmeistaratitil í karlaflokki gegn Blikum um helgina. Markverðir liðanna voru í aðalhlutverki og þurfti vítaspyrnukeppni til að útkljá leikinn þar sem Garðbæingar höfðu betur, 4-1. Jó- hann Laxdal sagði að Garðbæingar hefðu verið ákveðnir í að tapa ekki þriðja bikarúrslitaleiknum í röð. Sigursælir Garðbæingar á Laugardalsvelli á laugardaginn þegar bikarmeistaratitillinn var í höfn. MYND/HAFLIÐI BREIÐFJÖRÐ Stjarnan hefur verið að taka eitt skref í einu, það tekur tíma að byggja upp sigurhefð. Jóhann Laxdal 1 7 . S E P T E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 7 -0 9 -2 0 1 8 0 4 :4 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 D 7 -7 5 5 4 2 0 D 7 -7 4 1 8 2 0 D 7 -7 2 D C 2 0 D 7 -7 1 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.