Fréttablaðið - 17.09.2018, Page 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800
Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Guðmundar
Brynjólfssonar
BAKÞANKAR
MIÐASALA Á
HARPA.is/JOLAGESTIR
Opið allan
sólarhringinn
í öllum verslunum
Það hefur þráfaldlega verið bent á ömurlegt ástand í húsnæðis-málum okkar minnstu bræðra
og systra. Fíklar og aðrir sem ekki
hafa náð að átta sig í/á brjáluðu
samfélaginu, til langframa eða tíma-
bundið, mæla göturnar. Geðveila
og fíknsjúkdómar ganga oft hönd í
hönd um strætin og hafa ekki í nein
hús að vernda.
Það kemur fyrir að þetta
ófremdarástand bögglist fyrir
brjósti ráðamanna. Og þá byrja
þeir að telja. Svo að þrátta. Fyrst eru
rónar taldir, eins og sauðfé í dilk,
og svo er þráttað um hver á hvað.
Kíkt er á markið og skoðað hvaðan
fénaðurinn kemur. Og dugmiklir
ráðamenn í höfuðborginni sjá að
af X mörgum rónum eru tveir frá
Akranesi, einn frá Húsavík, þrír frá
Selfossi og átján úr Kópavogi etc. etc.
Þannig finna menn út hvernig eigi að
skipta kostnaðinum. En þá vilja þeir
sem „eiga lömbin“ ekki borga. Þar
stoppar málið – fyrir utan fimm eða
sex skýrslur sérfræðinga. Kannski,
ef vel liggur á mönnum, er bætt við
gámi úti á Granda – í útnára byggðar
í Reykjavík. Þaðan telur kerfið að
styttra sé til himna. Enda er hefð fyrir
því að þar séu menn látnir deyja.
Jesús og minnstu bræðurnir og
sauðirnir og Samverjinn og allt það
stöff er gleymt. Enda er það í Nýja
testamentinu.
Þrátt fyrir ítrekaðar talningar
gerist ekki neitt. Því held ég að rétt
sé að snúa dæminu við.
Það er þekkt úr fótboltanum að
borgaðar séu uppeldisbætur. Væri
nú ekki sanngjarnt að þau bæjarfélög
sem lagt hafa til róna í miðbæjar-
mynd Reykjavíkur fengju slíkar
bætur fyrir sína menn frá borginni?
Eða hvað gerir höfuðborg að höfuð-
borg ef það er ekki róninn? Þá færi
líka borgin að finna það á pyngjunni
að þetta fólk er til. Það bítur oft.
Bítur jafnvel fastar en bragginn.
Rónateljarinn
1
7
-0
9
-2
0
1
8
0
4
:4
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
D
7
-7
5
5
4
2
0
D
7
-7
4
1
8
2
0
D
7
-7
2
D
C
2
0
D
7
-7
1
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K