Fréttablaðið - 01.10.2018, Page 39

Fréttablaðið - 01.10.2018, Page 39
Hryggðarmynd í sýningu í Leikhúsi draumanna Pressan á José Mourinho jókst enn frekar eftir 3-1 tap Manchester United fyrir West Ham í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn. United er í 10. sæti. Portú- galski stjórinn hefur verið í fýlu frá því í sumar og ekki fundið leiðir til að snúa gengi United við. Mourinho þykir vera orðinn valtur í sessi eftir slæma byrjun á tímabilinu. José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, var ekki upplitsdjarftur á laugardaginn þegar hans menn töpuðu fyrir West Ham á Lundúnaleikvanginum. Staða Portúgalans veikist með hverri vikunni. NordicPHotoS/Getty Tabula gratulatoria Jón Baldvin Hannibalsson áttræður Þann 21. febrúar 2019 verður hinn aldni leiðtogi íslenskra jafnaðar- manna, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi fjármála- og utanríkis- ráðherra, áttræður. Af því tilefni verður gefin út bók eftir Jón Baldvin þar sem hann mun einkum fjalla um frumkvæði Íslands að stuðningi við sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsþjóða, samningana við ESB um Evr- ópska efnahagssvæðið (EES) og Norræna módelið sem raunhæfan valkost við auðræði nýfrjálshyggjunnar. Velunnurum Jóns Baldvins gefst nú kostur á að skrá nafn sitt á heilla- óskaskrá í tilefni þessara tímamóta og að fá bókina á forlagsverði, eða á kr. 6.000 með sendingarkostnaði. Hægt er að panta verkið hjá út- gefandanum á netfanginu skrudda@skrudda.is eða í síma 552 8866. Bókin verður send í byrjun febrúar 2019. Til að panta bókina og fá nafn sitt jafnframt á heillaóskaskrána þarf að senda inn nafn, kennitölu og heimilisfang. Sé óskað eftir að greiða verkið með greiðslukorti þarf að senda kortanúmer og gildistíma, ann- ars verður stofnuð krafa í heimabanka. Nánari upplýsingar fást hjá forlaginu. SKRUDDA Hamarshöfða 1 110 Reykjavík skrudda@skrudda.is West Ham vann Man­ chester United með tveggja marka mun í deildarleik í fyrsta sinn síðan í október 1982. Þá unnu Hamrarnir einnig 3­1. Fyrsta markið var rangstaða, annað markið var sjálfsmark og það þriðja kom eftir dóm­ aramistök. José Mourinho West Ham, og mörgum öðrum leikj- um á tímabilinu, munu Börsungar ekki snerta á honum, nema með töngum. Pogba hefur engan veginn fylgt eftir góðri frammistöðu á HM. Ábyrgðin á slæmu gengi United í upphafi tímabils liggur ekki bara hjá Pogba og Mourinho heldur einnig hjá hæstráðendum félagsins. Ed Woodward virðist vera frábær við- skiptamaður en fótboltavitið reiðir hann ekki í þverpokum. Hann hefur þegar látið tvo knatt- spyrnustjóra, David Moyes og Louis van Gaal, fara síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá United fyrir fimm árum. Hann stendur nú frammi fyrir þeirri stóru spurningu hvað hann eigi að gera við Mour- inho, mann sem hann réð til að koma United aftur á toppinn. Þótt Woodward hafi staðið þétt við bakið á Mourinho, allavega út á við, gróf hann undan honum þegar hann neitaði að kaupa þá miðverði sem voru efstir á óskalista Portú- galans. Mourinho getur þó ekki kvartað yfir því að hafa ekki fengið fjár- muni til að spila úr síðan hann tók við United. Samt er árangurinn ekki merkilegur og liðinu hefur farið aftur. Þótt United hafi lent í 2. sæti á síðasta tímabili, sem er besti árangur liðsins síðan Fergu- son hætti, var bilið á milli þeirra og toppliðs Manchester City 19 stig. Mourinho hefur aðeins einu sinni verið lengur en þrjú tímabil hjá liði og þá var hann rekinn þegar fjórða tímabilið var nokkurra vikna gam- alt. Það kæmi mikið á óvart að hann yrði við stjórnvölinn hjá United þegar næsta tímabil hefst, og jafn- vel þegar árið 2019 gengur í garð. Mögulegir eftirmenn eru hins vegar ekki margir, nema Zinedine Zidane, sem ku samkvæmt fjölmiðlum ytra vera byrjaður að læra ensku, og það er mögulega það eina sem heldur Mourinho í starfi. Uppskeran og spilamennskan það sem af er tíma- bili gerir það allavega ekki mikið lengur. ingvithor@frettabladid.is Þriðja þrennan fyrir Augsburg fótbolti Alfreð Finnbogason skoraði þrennu þegar Augsburg bar sigur orð af Freiburg, 4-1, á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Þetta var fyrsti leikur Alfreðs á tímabilinu en hann hefur verið frá vegna meiðsla. Þetta er þriðja þrennan sem Alfreð skorar fyrir Augsburg. Hann skoraði einnig þrennu gegn Frei burg og Köln á síðasta tímabili. Alfreð hefur alls skorað 25 deildar- mörk fyrir Augsburg og er orðinn markahæsti leikmaður liðsins í þýsku úrvalsdeildinni frá upphafi. Tobias Werner átti metið (23 mörk). Caiuby kom Augsburg yfir á 19. mínútu í leiknum í gær. Fimm- tán mínútum síðar bætti Alfreð öðru marki við með laglegri hælspyrnu. Freiburg minnkaði muninn í upphafi seinni hálfleiks þegar Jon- athan Schmid skoraði sjálfsmark. Á 68. mínútu jók Alfreð muninn aftur í tvö mörk með marki úr vítaspyrnu. Þegar sjö mínútur voru til leiks- loka skoraði Alfreð svo þriðja mark sitt og fjórða mark Augsburg með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Andre Hahn. – iþs Öruggur sigur Evrópumanna golf Evrópa vann Ryder-bikarinn 2018 eftir 17,5-10,5 sigur á Banda- ríkjunum á Le Golf National vell- inum í París. Þetta er í fjórða sinn í síðustu fimm keppnum sem Evrópa vinnur Ryder-bikarinn. Evrópa var með vænlega for- ystu fyrir lokadaginn. Bandaríkin byrjuðu hann hins vegar vel og minnkuðu forystuna niður í eitt stig, 10,5-9,5. En nær komst bandaríska liðið ekki. Jon Rahm og Thorbjörn Olesen unnu sína leiki og Ítalinn Francesco Molinari tryggði Evrópu sigurinn þegar hann sigraði Phil Mickelson á 16. holu, 4/2. Hann varð þar með fyrsti Evrópubúinn í sögu Ryder- bikarsins til að vinna alla fimm leikina í einni keppni. Molinari lék einkar vel í Ryder-bikarnum í ár og samvinna hans og nýliðans Tommys Fleetwood var frábær. – iþs HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? Frettabladid.is færir þér nýjustu fréttir dagsins og ítarlega umöllun um málefni líðandi stundar. Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinu á Facebook Save the Children á Íslandi thomas Bjørn, fyrirliði evrópu, lyftir ryderbikarnum. NordicPHotoS/Getty Alfreð fagnar fyrsta marki sínu gegn Freiburg. NordicPHotoS/Getty S p o r t ∙ F r É t t A B L A ð i ðf b l 19M Á N U D A g U r 1 . o k t ó b e r 2 0 1 8 0 1 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 F 3 -5 8 F 4 2 0 F 3 -5 7 B 8 2 0 F 3 -5 6 7 C 2 0 F 3 -5 5 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 9 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.