Fréttablaðið - 01.10.2018, Side 40
Ástkæri maðurinn minn,
pabbi okkar, tengdapabbi og afi,
Árni Guðmundsson
Lyngprýði 2, Garðabæ,
lést á krabbameinsdeild LSH að
kvöldi fimmtudagsins 20. september
umkringdur ástvinum sínum.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn
3. október kl. 13.00. Sérstakar þakkir færum við öllu því
frábæra starfsfólki sem annaðist hann af alúð.
Sigríður Huld Konráðsdóttir
Guðmundur Örn Árnason Elísabet Mary Arnaldsdóttir
Erla María Árnadóttir Róbert Karl Hlöðversson
Íris Björk Árnadóttir Kristján Jón Jónatansson
Unnur Svanborg Árnadóttir
Sigríður Hulda Árnadóttir Sveinbjörn Claessen
Árni Konráð Árnason Birgitta Björt Garðarsdóttir
og barnabörn.
Danski tónlistarmaðurinn Kim Larsen andaðist í gær 72 ára að aldri. Kim hafði glímt við krabbamein í blöðruhálskirtli og sjúkdómurinn hafði að
lokum betur. Einn helsti aðdáandi kapp
ans á Íslandi segir að hálfgerð þjóðarsorg
sé nú í Danmörku.
„Ég var sjö ára þegar ég heyrði fyrst
af Kim Larsen. Þá var ég búsettur í Dan
mörku og hann átti að koma fram í spjall
þætti. Það voru allir að tala um þáttinn og
gera ráðstafanir hvar þeir ætluðu að horfa
á hann. Það var nánast eins og það væri
stórviðburður á borð við lok seinna stríðs
eða tungllendingin að eiga sér stað,“ segir
Kjartan Guðmundsson, fjölmiðlamaður
og poppfræðingur.
Vinur Kjartans brá á það ráð að taka
upp frammistöðu Larsens þetta kvöld
í þættinum og varð hinn versti þegar
einhver opnaði sælgætispoka meðan
tónlistar maðurinn flutti lög sín. Það kom
nefnilega niður á hljómgæðum kasett
unnar.
„Eftir því sem maður eltist gerði maður
sér betur grein fyrir því að Kim tókst að
tappa inn í dönsku þjóðarsálina með
hætti sem engum hefur tekist. Þó hann
hafi orðið stjarna náði hann alltaf að
halda sterkri tengingu við litla manninn
og náði að vera gæinn á götunni. Það er
erfitt að finna einhvern sem var illa við
hann,“ segir Kjartan.
Sem dæmi um slíkt nefnir Kjartan að
hann hafi alla tíð verið á móti konungs
veldinu og því prjáli sem því fylgir.
Afþakkaði hann meðal annars riddara
kross þeirra Dana af þeirri ástæðu. Þá tap
aði hann sér þegar Danir stefndu að því
að banna reykingar á opinberum stöðum
og varði miklum tíma og orku í að berjast
gegn því með kjafti og klóm. Sat hann
meðal annars fundi með ráðherrum og
stjórnmálamönnum vegna þessa. Það má
fylgja sögunni að reykingabannið danska
er talsvert smærra í sniðum en víða ann
ars staðar.
Aðspurður um eftirminnilegustu
minningu sína sem tengist Kim segir
Kjartan að það að sjá hann á sviði sé ofar
lega en það gerði hann alls fimm sinnum,
þrisvar í Danmörku og tvisvar á Íslandi.
Ein minning standi þó upp úr.
„Um aldamótin var ég búsettur í Kaup
mannahöfn og ætlaði að fara með vini
mínum, sem var í heimsókn, út á lífið.
Þegar við komum á staðinn sem við ætl
uðum á var búið að skella í lás. Ég bank
aði upp á til að kanna hvort dyravörður
inn sæi aumur á okkur,“ segir Kjartan.
Dyravörðurinn gerði gott betur en það
en hann tók á móti þeim líkt og kónga
fólk væri á ferðinni. Þegar hann leit til
baka sá hann að Kim og kona hans stóðu
fyrir aftan þá en þau voru mætt til að sjá
son sinn spila á staðnum.
„Dyravörðurinn hélt að við værum í
slagtogi með honum,“ segir Kjartan og
hlær. „Við spjölluðum örstutta stund
og svo kvöddumst við með því að ég gaf
honum eld.“
Tónlistarmaðurinn tilkynnti í desem
ber að hann væri veikur en fæstir vissu af
því að svo stutt væri í endalokin. Hann
spilaði á tónleikum í sumar en þurfti að
fresta nokkrum af heilsufarsástæðum. Þá
vann hann að nýrri plötu skömmu fyrir
andlátið og áttu því flestir von á því að
hann væri að ná heilsu.
„Ég held að fólk hafi ekki verið búið
undir þetta enda eru viðbrögðin úti
eftir því. Í minningarorðum Berlingske
Tidende var Kim Larsen lýst sem Dan
mörku. Það er nokkuð nálægt sannleik
anum,“ segir Kjartan. joli@frettabladid.is
Kim Larsen snerti dönsku
þjóðina beint í hjartað
Danir syrgja nú tónlistarmanninn og alþýðuhetjuna Kim Larsen sem lést í gær. Banamein
hans var krabbamein í blöðruhálskirtli. Fáum hefur tekist að tappa sig jafnlangt inn í
dönsku þjóðarsálina og Kim Larsen segir einn helsti aðdáandi hans hér á landi.
Danski tónlistarmaðurinn Kim Larsen lék oftar en einu sinni á tónleikum hér á Ísland, meðal annars áriðð 2005. FréttabLaðið/Heiða
Kjartan Guðmundsson er meðal þeirra sem syrgja Kim Larsen sárt. FréttabLaðið/eyþór
Ég held að fólk hafi ekki
verið búið undir þetta
enda eru viðbrögðin úti eftir því.
Kjartan Guðmundsson, fjölmiðlamaður
og poppfræðingur
Merkisatburðir
1786 Séra Oddur Gíslason, prestur á Miklabæ í Skagafirði,
hvarf. Talið var að draugurinn Miklabæjar-Sólveig hefði
verið þar að verki.
1800 Spánverjar afhenda Frökkum Louisiana-landsvæðið.
Þeir seldu Bandaríkjunum svæðið um þrjátíu mánuðum
síðar.
1814 Vínarþingið, sem ætlað var að draga landamæri
Evrópuríkja upp á nýtt eftir ósigur Napóleons Bonaparte,
formlega sett.
1874 Kvennaskólinn í Reykjavík tekur til starfa.
1891 Kennsla hefst í hinum bandaríska Stanford-háskóla.
1918 Arabískar hersveitir, undir forystu T. E. Lawrence, ná
sýrlensku borginni Damaskus á sitt vald.
1931 George Washington-brúin, sem tengir New York og
New Jersey, opnuð fyrir umferð.
1933 Ásta Magnúsdóttir tekur fyrst kvenna við opinberu
embætti hér á landi er hún er skipuð ríkisféhirðir.
1936 Francisco Franco tekur við völdum á Spáni.
1946 Eftirlifandi stjórnendur úr röðum nasista hljóta dóm
eftir réttarhöld í Nürnberg.
1949 Mao Zedong lýsir yfir stofnun Kínverska alþýðulýð-
veldisins.
1952 Hljóðritun á ræðum á Alþingi hefst.
1958 Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, stofnuð.
1960 Nígería fær sjálfstæði frá Bretum.
1969 Concorde nær að rjúfa hljóðmúrinn fyrsta sinni.
1975 Muhammad Ali hefur betur gegn Joe Frazier í bar-
daga í Maníla á Filippseyjum.
1977 Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið (SÁÁ)
stofnuð.
1978 Túvalú fær sjálfstæði frá Bretum.
1979 Lögræðisaldur lækkaður niður í átján ár úr tuttugu
árum.
1979 Mesta sólarhringsúrkoma sem mælst hefur hér á
landi, 243 millimetrar, fellur á Kvískerjum í Öræfum.
1982 Helmut Kohl tekur við af Helmut Schmidt sem
kanslari Þýskalands eftir að sá síðarnefndi tapaði van-
traustskosningu.
1987 Ríkissjónvarpið hefur sjónvarpsútsendingar á
fimmtudögum en fram að því höfðu þeir verið sjónvarps-
lausir dagar.
1989 Samkynhneigðir Danir geta skráð sig í staðfesta
samvist í fyrsta sinn.
2003 Eyririnn lagður niður en síðan þá hefur ein króna
verið minnsta gjaldmiðilseining landsins.
2012 38 farast og 102 særast þegar tvær ferjur rekast á
fyrir utan Hong Kong.
2014 Sprenging verður í búlgarskri byssupúðursverk-
smiðju. 15 týna lífi.
2015 280 farast í skriðuföllum í Gvatemala sem voru af-
leiðing gífurlegs vatnsveðurs.
2017 Katalónar kjósa um hvort héraðið eigi að lýsa yfir
sjálfstæði frá Spáni.
2017 58 myrtir og 851 særist í skotárás á hóteli í Las
Vegas.
1 . o k t ó b e r 2 0 1 8 M Á N U D A G U r20 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
1
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
F
3
-5
D
E
4
2
0
F
3
-5
C
A
8
2
0
F
3
-5
B
6
C
2
0
F
3
-5
A
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
9
_
2
0
1
8
C
M
Y
K