Víkurfréttir - 30.08.2018, Page 18
18 LJÓSANÆTURBLAÐ VÍKURFRÉTTA f immtudagur 30. ágúst 2018 // 33. tbl. // 39. árg.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Háaleitisskóli – Baðvörður drengja
Leikskólinn Tjarnarsel – Leikskólakennari
Málefni aldraðra – Deildarstjóri :
Hjúkrunarfræðingur í dagdvalir
Heilsuleikskólinn Heiðarsel – Leikskólakennari/
starfsmaður
Háaleitisskóli – Skólaliðar
Leikskólinn Hjallatún – Deildarstjóri og annað starfsfólk
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru
jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Vetur í Reykjanesbæ - vetur.rnb.is
Hvað verður í boði fyrir ungt fólk og foreldra í Reykjanes-
bæ í vetur? Upplýsingar um námskeið og afþreyingu send-
ist á hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is sem allra fyrst.
Hæfingarstöðin - opið hús
Í tilefni Ljósanætur verður Hæfingarstöðin opin gestum
kl. 13-16 föstudaginn 31. ágúst. Vörur úr Hæfó prentsmiðju,
hin víðfræga chili sulta, kaffi og með því. Allir velkomnir.
Bókasafn Reykjanesbæjar - viðburðir framundan
Fimmtudagur 30. ágúst kl. 16:30: Opnun á „List sem gjald-
miðill/ARTMONEY NORD“. Föstudagur 31. ágúst kl. 16:00:
Tónleikar með S.hel og sýning á Battleship Potemkin.
Björgin - Geðræktarmiðstöð Suðurnesja er falin perla við skrúðgarðinn
í Keflavík. Þar er rekin grunnendurhæfing og athvarf fyrir einstaklinga
með einhverskonar geðheilsuvanda. Fólk sækir þangað til að koma í veg
fyrir félagslega einangrun. Þar er opið yfir daginn og fólki frjálst að koma
þegar það vill til að hitta annað fólk og taka þátt í því starfi sem þar fer
fram. Skjólstæðingar Bjargarinnar ætla að vera með Geðveikt kaffihús
og Geðveikan markað á Ljósanótt í Reykjanesbæ.
Starfsemi Bjargarinnar er rekin af
Reykjanesbæ en þjónustan sem þar
er veitt er fyrir einstaklinga frá öllum
sveitarfélögum Suðurnesja. Írena
Guðlaugsdóttir, félagsráðgjafi hjá
Björginni, segir í samtali við Víkur-
fréttir að Suðurnesjafólk sé duglegt
að sækja úrræðið. Í Björgina koma
30-50 manns á dag og yfir mánuðinn
eru það um 90 einstaklingar sem eru
virkir í starfinu.
Það getur verið erfitt fyrir fólk að
brjóta ísinn og koma í Björgina í
fyrsta skiptið. Það staðfestir Tinna
Sigurósk Pálsdóttir, starfsmaður
Bjargarinnar. Hún var áður skjól-
stæðingur Bjargarinnar og kom
þangað í fyrsta skiptið í febrúar í
fyrra. Hún segist hafa gert margar
tilraunir áður en henni tókst að stíga
skrefið og mæta í Björgina. „Þetta
voru þung og erfið skref,“ segir hún
og segir að margar spurningar hafi
sótt á sig: „Á ég heima hérna og hvaða
fólk er hérna,“ segir hún. Tinna segir
að á þessu eina og hálfa ári sem hún
eigi að baki í Björginni, þá hafi líf
hennar algjörlega snúist við og til
betri vegar. „Þetta er besti staður
sem ég veit um,“ segir Tinna.
Þrír ráðgjafar starfa hjá Björginni
og aðstoða skjólstæðinga hennar
við ýmis réttindamál og fjölbreytta
hluti hins daglega lífs. Þá er ákveð-
in dagskrá í gangi sem hefur tekið
miklum breytingum síðustu vikur
og mánuði en stofnuð hefur verið
„Bjargarnefnd“ sem vinnur að fjöl-
breyttu starfi. Nefndin starfrækir
einnig sjoppu innan Bjargarinnar
og hagnaðurinn af henni er nýttur
til að auka á fjölbreytni í starfinu
og standa straum af kostnaði við
það. Á ljósanótt verður Björgin t.a.m.
með Geðveikt kaffihús í Hvammi við
Suðurgötu og einnig markaður þar
sem ýmis varningur verður boðinn
til sölu. Skjólstæðingar Bjargarinnar
hafa síðustu daga verið að baka fyrir
kaffihúsið, auk þess sem rjúkandi
rjómavöfflur verða á boðstólnum
þá daga sem kaffihúsið verður opið.
Kaffihúsið verður opið föstudag,
laugardag og sunnudag kl. 13:00
til 18:00.
Nánar verður fjallað um starfsemina
í Björginni í Sjónvarpi Víkurfrétta
í haust.
- á vegum skjólstæðinga Bjargarinnar á Ljósanótt
Tinna Pálsdóttir starfsmaður og félagsráðgjafarnir Írena Guðlaugsdóttir og Elín Arnbjörnsdóttir framan
við húsnæði Bjargarinnar við Suðurgötu í Keflavík. VF-mynd: Hilmar Bragi
Geðveikt kaffihús og Geðveikur markaður
Lögreglumaðurinn Sigvaldi Arnar Lárusson lauk nýverið
leiðbeinandanámskeiði í skyndihjálp frá Rauða Krossi
Íslands. Eftir að hann fékk réttindi sem leiðbeinandi
í skyndihjálp hefur hann haldið nokkur námskeið en
Sigvaldi stofnaði Skyndihjálparkennsluna þar sem
einstaklingar og starfsmenn fyrirtækja geta fengið
kennslu í skyndihjálp.
„Ástæðan fyrir því að ég skráði mig á þetta námskeið hjá
Rauða krossinum er sú að ég hef bjargað mannslífi með
því að kunna skyndihjálp. Tilfinningin að bjarga manns-
lífi er mögnuð og þess vegna vildi ég öðlast réttindi til að
kenna skyndihjálp svo aðrir geti upplifað þessa tilfinningu
komi til þess að þeir verði í sömu sporum og ég var í,“
segir Sigvaldi í samtali við Víkurfréttir.
„Í starfi mínu sem lögreglumaður sl. 18 ár hef ég oft
þurft að beita skyndihjálp og hef því talsverða reynslu
af þessum málum“.
Margar tegundir af námskeiðum eru í boði og einnig getur
Sigvaldi sett saman námskeið eftir þörfum hvers og eins.
Hann hvetur fólk til að setja sig í samband hafir það
áhuga á að kynna þér þetta frekar. Sigvaldi er með skyndi-
hjálparnámskeiðin á Facebook undir skyndihjálpar-
kennslan. Einnig er hægt að senda tölvupóst á skyndi-
hjalparkennslan@gmail.com eða bara með því að slá á
þráðinn í síma 854-0401.
„Tilfinningin að bjarga
mannslífi er mögnuð“
- segir lögreglumaðurinn Sigvaldi Arnar Lárusson,
sem nú leiðbeinir um skyndihjálp
Sigvaldi Arnar Lárusson leiðbeinir einstaklingum og fyrirtækjahópum
um skyndihjálp. Hér er Sigvaldi með Guðna Th. Jóhannessyni forseta
Íslands á góðri stund í Reykjaneshöll.
LJÓSANÓTT Í BEINNI
Á FÉSBÓK VÍKURFRÉTTA
FYLGIST MEÐ DAGSKRÁNNI OKKAR Á VF.IS