Morgunblaðið - 05.06.2018, Síða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 130. tölublað 106. árgangur
INNSETNING
SEM REYNIR Á
ÖLL SKYNFÆRIN
HÆSTA
FJALLIÐ
LEIT BJARKAR
AÐ ALHEIMS-
ÚTÓPÍU
TÖFRAR Á TOPPNUM 12 NÁTTÚRAN Í FORGRUNNI 33SHOPLIFTER TIL FENEYJA 30
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Þingmenn stjórnarandstöðu fóru
mikinn í ræðum sínum í eldhúsdags-
umræðum á Alþingi í gærkvöldi en
þingmenn stjórnarmeirihlutans vörð-
ust gagnrýni minnihlutans. Ljóst er
að þingstörfum verður fram haldið
lengur en áætlað var. Tillaga meiri-
hluta atvinnuveganefndar um endur-
reikning veiðigjalds er á dagskrá Al-
þingis í dag og verður tekin til fyrstu
umræðu af þremur.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
munu taka sér tíma til að ræða málið
að sögn Oddnýjar G. Harðardóttur,
þingflokksformanns Samfylkingar.
Gagnrýni í garð Katrínar
Við umræðurnar í gærkvöldi voru
mest rædd velferðarmál, samstarf
ríkisstjórnarflokkanna og málamiðl-
anir þeirra.
Ágúst Ólafur Ágústsson, þing-
maður Samfylkingar, sagði að ríkis-
stjórnarflokkarnir væru úr takt við
kjósendur sína, sérstaklega Vinstri-
græn.
Áðurnefnd lækkun veiðigjalda
kom einnig til umræðu, var tíma-
setning málsins einkum gagnrýnd og
sett í samhengi við sveitarstjórnar-
kosningar. Bergþór Ólason, þing-
maður Miðflokksins, sagði að hefði
málið komið fram fyrr hefðu Vinstri-
græn ekki fengið mann kjörinn inn í
borgarstjórn frekar en Framsóknar-
flokkur.
Ólafur Þór Magnússon, þing-
maður Vinstri-grænna, sagði að með
þátttöku í ríkisstjórn öxluðu Vinstri-
græn ábyrgð og hefðu áhrif á alla
ákvarðanatöku.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra sagði það ábyrgðar-
hluta að veljast til forystu í lands-
málum og varði málamiðlanir.
Gagnrýni stjórnarandstöðunnar í
garð Katrínar Jakobsdóttur væri í
senn ósmekkleg og ómálefnaleg.
Tókust fast á í umræðunum
Morgunblaðið/Eggert
Ræða Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, impraði með myndrænum hætti á stefnu flokksins í málefnum fátækra.
Nokkur hiti í þingmönnum á eldhúsdegi Veiðigjöldin rædd á Alþingi í dag
MFöstum skotum var skotið »4
Hækkun fasteignamats mun gera
fasteignaeigendum kleift að endur-
fjármagna íbúðalánin á hagstæðari
kjörum.
Þetta segir Elvar Orri Hreins-
son, hagfræðingur hjá Íslands-
banka.
Hann segir lántakendur hafa get-
að tekið aðallán fyrir fasteign og
svo viðbótarlán á lakari kjörum til
að brúa bilið. Lánin taki mið af fast-
eignamati. Með því að fasteigna-
matið hækki geti þessir lántak-
endur tekið nýtt aðallán í staðinn
fyrir það gamla og viðbótarlánið.
Úr verði hagstæðari lánakjör.
Hækkað um 2.000 milljarða
Fasteignamat íbúða á Íslandi
hefur hækkað úr 3.844 milljörðum
2016 í 5.727 milljarða árið 2019, eða
um tæpa 2.000 milljarða á nafnvirði.
Ásgeir Jónsson, dósent í hag-
fræði við Háskóla Íslands, segir
lántakendur ekki geta búist við því
að íbúðaverð hækki mikið meira í
bráð. Miklar launahækkanir séu að
baki og komið að hagræðingu í
mörgum greinum vegna hægari
vaxtar.
Samkvæmt því munu íbúða-
eigendur ekki njóta tvöfalds ávinn-
ings vegna verðhækkana og betri
lánakjara vegna hækkunar á fast-
eignamati. baldura@mbl.is » 11
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjavík Íbúðaverð hefur hækkað.
Fái betri
lán með
nýju mati
Nýtt fasteignamat
sagt skapa tækifæri
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Einn lést og níu slösuðust í hörðum
tveggja bíla árekstri á Vesturlands-
vegi skammt frá Enni á Kjalarnesi
um áttaleytið í gærkvöldi. Bílarnir
komu hvor úr sinni áttinni með fyrr-
greindum afleiðingum en níu sjúkra-
bifreiðir voru sendar á vettvang. Sjö
þeirra fluttu slasaða á slysadeild
Landspítalans.
Mikill viðbúnaður var vegna slyss-
ins en auk sjúkrabifreiða voru tvær
tækjabifreiðir kallaðar út. Þá var
fjölmennt lið björgunarsveitar-
manna, slökkviliðsmanna, sjúkra-
flutningsmanna og lögreglu á
staðnum.
Engar upplýsingar hafa fengist
um tildrög slyssins en fólkið var ann-
ars vegar í lítilli sendibifreið og hins
vegar í fólksbíl. Samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu er ekki hægt að
greina frá líðan þeirra sem slösuðust
að svo stöddu, en um tíma var gult
viðvörunarstig sett á vegna hópslyss
á Landspítalanum.
Í kjölfar slyssins var Vesturlands-
vegi lokað í um tvær klukkustundir
frá Þingvallavegi að Hvalfjarðarvegi
á meðan viðbragðsaðilar aðhöfðust á
vettvangi. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu og rannsóknarnefnd sam-
gönguslysa munu sjá um rannsókn
slyssins.
Einn lést í umferðar-
slysi á Vesturlandsvegi
Níu slasaðir eftir árekstur Gul viðvörun á Landspítala
Morgunblaðið/Valli
Umferðarslys Mikill viðbúnaður var vegna áreksturs tveggja bifreiða á Vesturlandsvegi í gærkvöldi. Einn er látinn.
Ábúendur á hinni sögufrægu eyju
Vigur við Ísafjarðardjúp hafa sett
hana á sölu. Salvar Baldursson
bóndi og kona hans segja nú skilið
við búsetustað sinn til 38 ára. Þar
hefur um árabil verið stundaður
búskapur og ferðaþjónusta. Salvar
býst við að það verði mikil viðbrigði
að flytja í land. »10
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vigur Stundum kölluð perlan í djúpinu.
Eyjan Vigur til sölu
„Þingeyjarsýsla er orðin eitt af
öruggustu svæðum landsins,“ sagði
Guðmundur Ingi Ásmundsson, for-
stjóri Landsnets, við Morgunblaðið í
gær þegar því var fagnað að stærsta
verkefni í sögu Landsnets er lokið.
Verkið fólst í að því að tengja
Þeistareykjavirkjun við landsnetið
og iðnaðarsvæðið á Bakka og koma
upp þremur yfirbyggðum tengi-
virkjum. Framkvæmdin kostaði um
8,5 milljarða króna.
Við athöfn í nýju tengivirki við
Bakka gáfu Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir iðnaðarráðherra og
Sigrún Björk Jakobsdóttir, for-
maður stjórnar Landsnets, skipun
um að spennusetja spenni fyrir
seinni ljósbogaofninn í verksmiðju
PCC á Bakka. helgi@mbl.is »6
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tenging Háspennulínur við Bakka.
Stærsta
verkefninu
lokið
Kostaði um 8,5
milljarða króna