Morgunblaðið - 05.06.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.06.2018, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018 ✝ Ingibjörg Þor-leifsdóttir fæddist á Gjögri í Árneshreppi 5. september 1924. Hún lést á Hrafn- istu 28. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru Þorleifur F. Friðriksson, f. 1891, d. 1964, og Hjálmfríður R.S. Hjálmarsdóttir, f. 1896, d. 1973. Þau bjuggu á Gjögri í Árneshreppi, síðar á Litlanesi og loks í Vestmanna- eyjum. Systkini Ingibjargar voru: a) Lilja, f. 1922, d. 2008, húsfreyja í Eyjum. Maður hennar er Brynj- úlfur Jónatansson. Þau eignuð- ust sjö börn og ólu upp fóst- urbarn. b) Klara, f. 1926, d. 2011, starfsm. á Landspítalan- um. Klara eignaðist son með Jóni Hjaltasyni. c) Hjálmar, f. 1927, d. 2011, rafvirki í Eyjum. Kona hans er Kristín Björns- dóttir. Þau eignuðust fjögur börn. Foreldrar Ingibjargar ólu auk þess upp tvö fósturbörn, Sigrúnu Guðmundsdóttur og Auðun H. Jónsson. Maður Ingibjargar var Haraldsson og sonur Úlfar Bjarni. 2) Þorgeir, f. 1951, sál- fræðingur. Kona hans er Erla Guðjónsdóttir, kennari og fv. skólastjóri. Börn þeirra: a) Brynja, f. 1974, fjölmiðlakona og nemi, synir hennar Jökull Breki Arnarson og Þorgeir Nói Atlason. b) Þóra Margrét, f. 1980, viðskiptalögfræðingur. Maður hennar er Ögmundur Hrafn Magnússon og börn Þor- gerður Erla, Magnús og Theo- dór Hrafn. 3) Þorleifur Friðrik, f. 1955, byggingameistari. Kona hans er Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur. Börn þeirra: a) Ari, f. 1982, bygginga- fræðingur. Kona hans er Soffía Arna Ómarsdóttir og synir þeirra Ómar og Emil. b) Ingi- björg, f. 1988, líffræðingur. Sambýlismaður hennar er Guð- mundur Helgi Harðarson. 4) Viðar, f. 1960, húsasmiður. Kona hans er Sigríður Elín Thorlacius flugfreyja. Börn þeirra: a) Ólafur Thorlacius, f. 1987, flugmaður. Kona hans er Sunna Lind Jónsdóttir og sonur Birkir Jaki Thorlacius. b) Björk Thorlacius, f. 1991, nemi. 5) Snorri, f. 1960, ungbarnasund- kennari og þroskaþjálfi. Kona hans er Elín Steiney Krist- mundsdóttir flugumferðar- stjóri. Börn þeirra: a) Berglind, f. 1990, flugfreyja og b) Steiney, f. 1990, flugfreyja. Útför Ingibjargar verður gerð frá Garðakirkju í dag, 5. júní 2018, og hefst klukkan 13. Magnús Þorgeirs- son vélfræðingur, f. 1920, d. 2001. Hann var sonur Þorgeirs Þórðarsonar og Önnu Magnús- dóttur sem lengi bjuggu í Garða- hverfi. Þau Ingi- björg hófu búskap árið 1951, bjuggu fyrst við Andakíls- árvirkjun, síðan lengi á Akranesi og í Garðabæ frá 1995. Þau eignuðust fjóra syni en fyrir átti Ingibjörg dóttur: 1) Hjálmfríður R. Sveinsdóttir, f. 1948, lengi skólastjóri í Eyjum og deildarstjóri við Öldutúns- skóla. Faðir hennar var Sveinn Guðmundsson. Börn Hjálm- fríðar: a) Magnús Friðrik Val- geirsson, f. 1968, vélfræðingur. Kona hans er Dagný S. Guðmundsdóttir og börn þeirra Ingunn Ósk, Ragnheiður Lilja og Alex Grétar. b) Ingibjörg Ey- borg Hjálmfríðardóttir, f. 1973, viðskiptafræðingur. Maður hennar er Óskar B. Óskarsson og börn Magnús Loki og Hjálm- fríður Rán. c) Sigrún Bjarna- dóttir, f. 1988, hjúkrunarfræð- ingur. Maður hennar er Andri Við lát móður minnar er fallið frá síðasta systkinið frá Litla- nesi í Árneshreppi. Þau voru fjögur talsins auk tveggja fóst- ursystkina, öll mótuð af lífskjör- um sem eitt sinn ríktu en eru okkur nútímafólki illskiljanleg. Lífsbarátta þessa fólks sner- ist um frumþarfirnar, húsaskjól- ið, að fæða og klæða hópinn, að halda heilsu. Samheldnin ein- kenndi mannlífið á Gjögri við Reykjarfjörð, samhjálpin var sjálfsögð og í raun forsenda þess að fólk lifði af. Við þessar aðstæður lærði móðir mín það hlutverk sem hún gegndi alla tíð síðan af mikilli samviskusemi, en það var að annast um aðra, bera ábyrgð á heimili og fjölskyldu, sjá sér og sínum farborða. Þjónustan við þá sem næstir standa reyndist alla tíð hennar hlutskipti, að vera sjálfbjarga og koma sínum til þroska, það var markmiðið. Líf hennar varð enda farsælt og gæfan fylgdi henni og föður mín- um flestar stundir. Iðju- og reglusemin, samúðin og sam- viskusemin, réttsýnin og metn- aðurinn skilaði sér í velgengni hennar fólks og það var eigin- lega það eina sem hún óskaði sér. Því sama gegndi raunar um systkini hennar öll, allt var þetta ábyrgt og raungott dugnaðar- fólk sem mátti ekki vamm sitt vita. Hafi þau öll heila þökk fyrir lífsstarf sitt og móðir mín sér- staklega fyrir gæsku sína við mig og mína. Starfsfólki Hrafn- istu í Hafnarfirði og Vífilsstaða sendum við systkinin alúðar- þakkir fyrir umönnun hennar síðustu mánuðina. Þorgeir Magnússon. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Ingibjörg tengdamóðir mín hefur nú kvatt okkur sem áttu hana að í síðasta sinn, að ég held sátt við það og að fá að hitta sína á öðrum stað í tilverunni. Nú eru komin 43 ár frá því að ég kynntist henni þegar ég og Þorleifur sonur hennar ákváðum að binda trúss okkar saman. Á svona löngum tíma verða til minningar um góðar stundir og þátttöku hennar í öllu því sem fylgir fjölskyldustundum. Ekki verður annað sagt en að Ingibjörg hafi verið góð kona og trygg sínum. Hún var ástrík og sinnti fjölskyldu sinni vel á svo margan máta, fylgdist vel með vegferð allra og gladdist með okkur öllum yfir þeim áföngum sem fylgja svo stórri fjölskyldu. Ingibjörg var með afbrigðum iðin og verklagin og prjónaskap- ur hennar hefur veitt okkur yl, mörgum landsmönnum og út- lendingum þar sem peysur henn- ar voru til sölu hjá Handprjóna- sambandinu. Þegar Magnús maður hennar kvaddi fannst mér við hæfi að vitna í Hávamál sem eru ráð- leggingar frá Óðni um hvernig við eigum að hegða okkur í lífinu. Þar er þetta sagt um góðar manneskjur: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Ég þakka Ingibjörgu fyrir samfylgdina. Nú er stillt og rótt ein stjarna á himni skín, sú stjarna leiðir huga minn til þín. (Ól. Jóh. Sig.) Anna Björg Aradóttir. Elsku amma er nú búin að kveðja þennan heim eftir langa og farsæla ævi. Amma var ein- stök kona, hreinskilin og sönn sjálfri sér, einlæg og hjartahlý. Þegar við hugsum um hana ömmu minnumst við helst sam- verustundanna á Akranesi, fjöruferða með þeim ömmu og afa og síðdegishressingar í Vall- holti. Fjölskylduferð til sólarlanda stendur líka upp úr sem og góðar minningar úr Boðahleininni þar sem þau afi bjuggu eftir að þau fluttust frá Akranesi og þar sem hún eyddi efri árunum. Amma tók vel á móti Soffíu í fjölskylduna og deildu þær og Imma áhuga á prjónaskap. Pönnukökurnar hennar ömmu slógu alltaf í gegn og svo gladdi það hana alltaf mikið að sjá Nemó – „mikið er hann snoppu- fríður hundur“, sagði hún og stakk að honum kleinubita. Eins er það ómetanlegt að hafa fengið að sjá hana ömmu með langömmustrákunum sínum. Þú varst góð amma og við vilj- um þakka þér fyrir þær stundir sem við áttum saman. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Ari Þorleifsson, Ingibjörg Þorleifsdóttir. Hún elsku amma er nú sofnuð svefninum langa, Strandakonan sem alla tíð tengdist heimahög- unum sterkum böndum. Í hug- anum hljóma hlátrasköll hennar og Klöru systur hennar á ferða- lagi okkar um Strandirnar fyrir áratug. Fáir aðrir staðir voru þeim jafn kærir. Veðrabrigðin þar þekkti amma svo vel að hún gat þrefað við afa Magnús um hvort lognið sem ríkti á Reykjarfirðinum eitt júlíkvöldið væri stafalogn eða rjómalogn. Þá má ímynda sér að Strandabakgrunnurinn hafi átt þátt í að amma skellti sér á hval- veiðar með afa á fertugsafmælis- daginn. Það var merkilegt og gefandi fyrir okkur systur að spjalla við ömmu um lífshlaup hennar. Í þessari 93 ára konu kjarnast saga 20. aldarinnar á Íslandi, lífsbaráttan við ysta haf, síldar- ævintýrið, hernámið, verkalýðs- og kvenfrelsisbaráttan og sú gjörbylting sem hefur orðið á lífsháttum á Íslandi. Það var okkur dýrmætt að fá aðgang að þessari reynslu hennar, enda fækkar þeim óðum sem henni deila. Hún var ein af alþýðukonum 20. aldar, framlag þeirra fór oft- ast hljótt og dult en var um leið allt. Amma var gáfuð kona og hefði svo gjarnan viljað mennta sig, en þurfti barnung að byrja að vinna fyrir sér sem vinnukona á heim- ilum annarra, þar til hún stofn- aði sitt eigið. Yfir henni var alla tíð mikil reisn. Hún var hávaxin, myndarleg og bein í baki, óað- finnanlega tilhöfð á hverjum degi. Yfir heimili hennar og afa var sama reisn, allt var vandað þótt gert væri af litlum efnum í upphafi og alltaf var þar nóg af góðum bókum. Í lok heimsókna til ömmu og afa stóðu þau hjónin alltaf úti á hlaði og veifuðu uns maður var horfinn sjónum þeirra; einföld kveðjuathöfn sem var full af hlýju. Amma hélt þessum fallega sið meðan hún gat. Nú hefur elsku amma veifað okkur í hinsta sinn og við lítum til baka með djúpum söknuði og þakklæti, ásamt miklu stolti af þessari merkilegu konu. Þóra Margrét og Brynja Þorgeirsdætur. Elsku amma mín fékk loksins sína hvíld, mikið verður nú tóm- legt án hennar. Hún amma mín var góð og dugleg kona sem passaði vel upp á börnin sín, barnabörnin og barnabarnabörnin. Ég var það heppin að fá að verja miklu af mínum frítíma uppi á Skaga hjá ömmu og afa, þetta voru ófá sumur, jól og páskar. Það var bara fastur liður að fara upp á Skaga á Vallholt 9. Þar fékk ég skilyrðislausa um- hyggju og ást. Minnist sérstak- lega þess að fá alltaf kvöldkaffi áður en ég fór að sofa, sem sam- anstóð af mjólk og köku, síðan var burstað og farið í rúmið. En þegar nóttin skall á þá oftar en ekki var laumast upp í til ömmu og afa, það var gott að komast í hlýjuna til þeirra. Þegar ég var aðeins nokkurra mánaða passaði amma mig þar sem mamma þurfti að fara að kenna og amma talaði oft um það að þegar mamma fór með mig í rúmið til ömmu á morgnana, þá var það fyrsta sem ég gerði að líta til hliðar til að athuga hvort amma væri nú ekki við hlið mér. Þegar það var staðfest þá gat ég sofnað róleg og örugg. Hvort þetta er satt eða ekki þá þótti mér alltaf gaman að heyra hana segja mér frá þessu. Á Skaganum kynntist maður fullt af krökkum og það var mik- ið líf við götuna og má þar helst nefna Öddu Lilju og Kristján á Vallholti 11. Alltaf voru allir krakkarnir velkomnir á heimili ömmu og afa og öllum gert jafn hátt undir höfði, því þannig var hún amma. Þau amma og afi voru sam- hent og heyrði ég þau aldrei ríf- ast, afi kannski bara lækkaði í heyrnatækinu glottandi þegar amma var farin að nöldra of mik- ið að hans mati. Þeir voru ófáir bíltúrarnir sem farið var í og honum afa þótti það nú ekki leiðinlegt. Eftir að hann féll frá sagði amma mér hvað það hefði tekið á sig að ganga frá fötunum hans og fara með þau í Rauða kross- inn, ég man sorgina í augunum á henni, það þótti mér erfitt að sjá. Á seinni árum átti hún amma það til að segja hlutina svolítið umbúðalaust. Sem dæmi ef ein- hver var ekki nógu vel til hafður þá fékk sá alveg að heyra það, en hún amma var alltaf vel til höfð og ég held svei mér þá að hún hafi byrjað að fara í lagningu áð- ur en hún varð fertug. Elsku amma, glæsilega kona, þín verður saknað, ég mun heim- sækja þig og afa í fallega garð- inn. Ég veit að þið bæði munuð vaka yfir okkur eins og áður. Nú kveð ég þig með bæninni sem þú kenndir mér og við fór- um svo oft með saman Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Ingibjörg Eyborg. Ingibjörg Þorleifsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA SIGURJÓNSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður að Sjafnargötu 12, Reykjavík, lést á Hrafnistu að morgni 23. maí. Útför hennar fer fram frá Hjallakirkju fimmtudaginn 7. júni klukkan 13. Edda G. Björgvinsdóttir Birgir Björgvinsson Ásta Edda Stefánsdóttir Áslaug Högnadóttir Páll Haraldsson Andri Björn Birgisson Johanna Velásquez Brynja Dóra Birgisdóttir Ragnar B. Ragnarsson Týr Fáfnir Stefánsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, MAGNÚS GUÐJÓNSSON prentari, Engjavöllum 5a, Hafnarfirði, lést á Landakotsspítala föstudaginn 1. júní. Útförin verður auglýst síðar. Þórunn Haraldsdóttir Bylgja Magnúsdóttir Þórunn Maggý Jónsdóttir Birta Sól Utley og Rebekka Huld Utley Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG JÓHANNA VAGNSDÓTTIR, Fífumóa 1d, Njarðvík, er látin. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Guðsteinn Einarsson Kristín Einarsdóttir Haukur Einarsson Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRAGI EINARSSON, Yrsufelli 2, Reykjavík, andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 30. maí. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 8. júní klukkan 15. Soffía Bragadóttir Sigurður Daníelsson Sigrún Bragadóttir Knútur G. Hauksson Helga Bragadóttir Kjartan Broddi Bragason Ása B. Stefánsdóttir Brynhildur Bragadóttir Ingólfur Kristjánsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir og amma, BJÖRG BJARNDÍS SIGURÐARDÓTTIR frá Hesteyri, Boðahlein 15, Garðabæ, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, fimmtudaginn 31. maí. Útförin fer fram föstudaginn 8. júní klukkan 11 frá Garðakirkju, Garðabæ. Soffía Margrét Jónsdóttir Guðmundur Jón Jónsson Hjördís Alexandersdóttir Marín Rún Jónsdóttir Brynjúlfur Erlingsson Gunnar Jónsson Steinar S. Jónsson Sigrún Gissurardóttir Rósa Ingibjörg Jónsdóttir Oddgeir Björnsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.