Morgunblaðið - 05.06.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*-�-��,�rKu�,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
æli- & frystiklefar
í öllum stærðum
K
lopapeysur sem ég sel. Útlending-
arnir kaupa þetta hefðbundna, það
erum helst við Íslendingar sem
sækjum í fánalitina og hina flóruna,“
segir hin reynslumikla prjónakona
en hún hefur selt fjöldann allan af
sjölum, peysum og sokkum á hand-
verksmarkaði. ninag@mbl.is
Spurð hvort hún ætli að fylgjast
vel með HM segir hún það ekki
spurningu, hún verði límd við skjá-
inn heima og líklegast með prjóna
við höndina en hún er vön því að
prjóna yfir íþróttaleikjum. „Ég er
með eitt sjal á prjónunum núna og
svo er ég að prjóna hefðbundnar
Steinunn Hjartardóttir, fv. heil-
brigðisfulltrúi og kennari á Sauðár-
króki, er mikil prjóna- og hannyrða-
kona. Hún hefur í aðdraganda
Heimsmeistaramótsins verið iðin við
kolann og prjónað sjöl í fánalitunum
en hugmyndina fékk hún á Face-
book. „Ég sá svona HM sjal á Face-
book eftir hana Möggu Gísla hann-
yrðakonu og bara sauð upp mína
uppskrift út frá því.“ Í kjölfarið setti
hún inn færslu á Facebook þar sem
hún frumsýndi sína eigin útgáfu af
sjalinu. „Upp úr því fékk ég fyrir-
spurnir frá öðrum konum um að
gera fleiri HM-sjöl. Ég geri alls kon-
ar handavinnu en núna finnst mér
skemmtilegast að prjóna og þessi
sjöl eru engin undantekning.“
Dugleg að sækja
íþróttaviðburði
Steinunn vonast til þess að nota
sjalið á meðan HM stendur yfir en
verði of heitt fyrir það mun hún geta
notað sjalið á öðrum útileikjum
heima fyrir. Steinunn er mikil
áhugamennskja um íþróttir og sækir
oft íþróttaviðburði á Sauðárkróki.
„Tindastóll er mitt lið auðvitað, og
ég hef alla tíð fylgst vel með þeim,“
segir hún. Þá hafa börnin hennar
æft fótbolta, frjálsar og körfu, en
þau eru komin vel á legg og fylgist
hún vel með barnabörnunum.
Morgunblaðið/Björn Jóhann Björnsson
Prjónakona Steinunn er mikil áhugamanneskja um íþróttir og hefur prjónað íslensk sjöl í tilefni af HM.
Íslenskt sjal fyrir HM
Prjónaði sjöl í fánalitunum í tilefni Heimsmeistaramótsins
Íslenskt Steinunn hefur mikla reynslu af prjónastörfum og hefur m.a. selt
lopapeysur til útlendinga. Hún ætlar að fylgjast vel með mótinu í Rússlandi.
11 DAGAR Í FYRSTALEIK ÍSLANDS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Stærsta verkefni í sögu Landsnets er formlega
lokið. Því var fagnað í gær við athöfn í nýju
tengivirki við Bakka um leið og Sigrún Björk
Jakobsdóttir, formaður stjórnar Landsnets, og
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir iðnaðar-
ráðherra gáfu stjórnstöð Landsnets skipun um
að spennusetja spenni fyrir seinni ljósboga-
ofninn í verksmiðju PCC á Bakka.
Verkið fólst í því að tengja Þeistareykjavirkj-
un við landsnetið og iðnaðarsvæðið á Bakka og
koma upp þremur yfirbyggðum tengivirkjum.
Framkvæmdin kostaði um 8,5 milljarða króna
og stóðst kostnaðaráætlun. Tímaáætlun stóðst
einnig nokkurn veginn þrátt fyrir miklar tafir
vegna þess að framkvæmdaleyfi sveitarfélaga
voru ógilt og þurfti að vinna þau upp á nýtt.
Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri
Landsnets, segir að þótt megintilgangur verk-
efnisins hafi verið að tengja virkjunina og skapa
skilyrði fyrir nýtingu hennar á iðnaðarsvæðinu
og víðar skapi hún tækifæri til að auka til muna
afhendingaröryggi raforku á svæðinu. Þar er
um að ræða möguleika á að tengja Húsavík við
Bakka og leysa af hólmi eina elstu flutningslínu
landsins og tengingu Kópaskers og Laxárvirkj-
unar inn á þetta nýja kerfi. „Þingeyjarsýsla er
orðin eitt af öruggustu svæðum landsins. Með
hringtengingu sem ráðist verður í þegar Þeista-
reykjavirkjun verður stækkuð og notkun eykst
á Bakka eykst öryggið enn frekar,“ segir Guð-
mundur Ingi.
Fyrirhuguð tenging svæðisins við Austurland
og síðar Eyjafjörð mun styrkja raforkukerfið á
Norðausturlandi enn frekar.
Tækifæri fyrir almenna uppbyggingu
Þórdís Kolbrún iðnaðarráðherra segir mikil-
vægt að framkvæmdunum á Norðausturlandi
verði lokið þannig að það verði öflugt. Hún
minnir á að búið sé að ákveða að atvinnuupp-
bygging verði á Bakka og þar séu tækifæri en
einnig séu möguleikar til almennrar uppbygg-
ingar fyrir fólk og fyrirtæki á þessu svæði.
Orðið eitt öruggasta svæði landsins
Háspennulínur frá Þeistareykjavirkjun og tilheyrandi tengivirki eru mesta verkefni í sögu Landsnets
Húsavík, Kópasker og Laxárvirkjun verða tengd inn á nýja kerfið auk iðnaðarsvæðisins á Bakka
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Spennusetning Sigrún Björk Jakobsdóttir stjórnarformaður og Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir iðnaðarráðherra sinna skyldustörfum í tengivirki Landsnets á Bakka.
Alls munu 284 þreyta inntökupróf í
læknisfræði við Háskóla Íslands en
prófið fer fram 7. og 8. júní næst-
komandi. Þetta kemur fram á vef
læknadeildar Háskóla Íslands en
þar segir einnig að 50 nemendur
verði teknir inn í námið í ár. Þrátt
fyrir að flestir framhaldsskólar hafi
útskrifað tvo árganga í vor var nem-
endaplássum einungis fjölgað um
tvö.
„Við vorum búin að búa okkur
undir að við myndum finna mikinn
mun,“ segir Guðrún Ásta Guð-
mundsdóttir, verkefnastjóri hjá
læknadeild, spurð hvort meiri að-
sókn hafi verið í ár en fyrri ár.
„Þetta er bara svipaður áhugi og
hefur verið á undanförnum árum,“
bætir hún við.
Ekki hægt að taka við fleirum
Fjöldi þeirra sem boðið er að
stunda nám við deildina miðast við
afkastagetu sjúkrahúsa en hluti
námsins fer fram í formi verknáms.
„Það er náttúrlega ekki hægt að
taka inn fleiri en klíníkin getur tekið
á móti,“ segir Guðrún.
Hún segir að þrátt fyrir að ekki
hafi verið tekið saman hversu marg-
ir þreyta prófið í fleiri en eitt skipti
viti hún að ýmis dæmi séu um slíkt.
„Það eru alltaf einhverjir sem eru að
koma í annað eða þriðja skipti,“
segir Guðrún.
64 hafa skráð sig í inntökupróf í
sjúkraþjálfun en þar eru 35 nem-
endur teknir inn. Báðir hópar taka
sama prófið en það tekur tvo daga
og samanstendur af fjórum tveggja
tíma próflotum. Einnig er tekið A-
próf, almennt próf fyrir háskólastig.
teitur@mbl.is
Læknisfræði
enn vinsæl
Tæplega 300 vilja verða læknar
Morgunblaðið/Eggert
Umframeftirspurn Mikill áhugi er
fyrir læknisfræði að vanda.