Morgunblaðið - 05.06.2018, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018
Team Iceland sem er hluti af Inspi-
red by Iceland markaðsherferðinni
birtir í vikunni sex myndbönd í lönd-
um sem eiga það sameiginlegt að
eiga ekki fulltrúa á heimsmeistara-
móti karla í knattspyrnu í Rússlandi í
sumar. Þetta eru Írland, Kanada,
Bandaríkin, Skotland, Ítalía og Hol-
land. Í myndböndunum munu grínist-
arnir Steindi Jr. og Anna Svava
hvetja íbúa landanna til að styðja Ís-
land á HM og ganga í Team Iceland.
Skilaboðin eru staðfærð fyrir hvert
land.
Tilgangurinn er að fanga þá miklu
athygli sem fylgir þátttöku Íslands á
HM til að kynna landið og styðja við
íslenskt atvinnulíf, segir í tilkynningu
frá Íslandsstofu sem sér um fram-
kvæmd verkefnisins. Markmið þess
er að auka vitund um Ísland sem góð-
an stað til að heimsækja. Ellefu dag-
ar eru í að Ísland leiki sinn fyrsta leik
á HM gegn Argentínu og umfjöllun
erlendra miðla um Ísland eykst stöð-
ugt eftir því sem nær dregur keppni.
Hvött til að
styðja Ís-
land á HM
Sex ný Team
Iceland myndbönd
Ljósmynd/Íslandsstofa
HÚ! Steindi Jr og Anna Svava skora
á þjóðir að ganga í Team Iceland.
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 23,8%
fylgi ef gengið yrði til alþingis-
kosninga nú, samkvæmt nýjum
Þjóðarpúlsi Gallup, 1,4 prósentu-
stigum minna fylgi en í byrjun
kjörtímabils. Stuðningur við ríkis-
stjórnina minnkar um 4 prósent á
liðnum mánuði.
Samfylkingin mælist næststærst
með ríflega 17,9% fylgi en flokk-
urinn naut 12,1% fylgis í byrjun
kjörtímabils. Fylgi Vinstri grænna
hefur minnkað um 3,6% frá al-
þingiskosningum og mælast
Vinstri græn nú með 13,3% fylgi
eins og Píratar. Framsóknar-
flokkurinn mælist með 8,9%, Mið-
flokkurinn 8,5%, Viðreisn 8,4% og
Flokkur fólksins er með 4,1%.
Nærri 2% segjast myndu kjósa
aðra flokka en þá sem eiga sæti á
Alþingi í dag.
Tæplega 7% svarenda segjast
myndu skila auðu eða ekki kjósa,
færu kosningar til Alþingis fram í
dag og 9% taka ekki afstöðu eða
neita að gefa hana upp. Mest
breyting hefur verið á fylgi Pír-
ata, sem jókst um 2% á einum
mánuði, frá 1. maí til 1. júní. Fylgi
annarra flokka helst nokkuð
óbreytt.
Ríkisstjórnin nýtur minnkandi
stuðnings hjá landsmönnum sam-
kvæmt þessari könnun eða um
54% þeirra sem taka afstöðu
styðja ríkisstjórnina m.v. 58% fyrir
mánuði. Stuðningur við ríkis-
stjórnina hefur jafnframt minnkað
um 10 prósentustig á síðastliðnum
4 mánuðum, þar af 4 prósentustig
síðastliðinn mánuð.
Færri styðja ríkisstjórnina
Morgunblaðið/Hari
Alþingi Stuðningur við ríkisstjórnina hefur minnkað samkvæmt Gallup.
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur með 23,8% hjá Gallup
Formlegri vett-
vangsrannsókn
er lokið í Kinnar-
fjöllum við Skjálf-
anda þar sem
flugvél með tvo
einstaklinga
innanborðs brot-
lenti um helgina.
„Vettvangs-
rannsókn er lokið
en flugvélin er
ennþá þarna uppi,“ sagði Þorkell
Ágústsson, rannsóknarstjóri hjá
Rannsóknarnefnd samgönguslysa, í
samtali við mbl.is. Óvíst er hvenær
verður hægt að sækja vélina, en hún
stakkst á nefið ofan í snjóinn í
Kinnarfjöllum.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-
GNA, sótti fólkið sem hafði komist
út úr vélinni af sjálfsdáðum og færði
það á Sjúkrahúsið á Akureyri til að-
hlynningar, en það reyndist vera ó-
slasað.
Vettvangs-
rannsókn á
flugslysi lokið
Kinnarfjöll Vélin
stakkst á nefið.