Morgunblaðið - 05.06.2018, Page 23

Morgunblaðið - 05.06.2018, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2018 ✝ Aðalbjörg Pét-ursdóttir fæddist á Stóru- Borg í Þverár- hreppi 6. janúar 1942. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga 26. maí 2018. Foreldrar henn- ar voru Pétur Aðalsteinsson, f. 12. ágúst 1920, d. 9. maí 2003, og Margrét Björnsdóttir, f. 22. mars 1919, d. 18. ágúst 1996. Aðalbjörg var elst fjögurra systkina en bræður hennar eru Björn, f. 1943, Haraldur, f. 1945, og Vilhjálmur, f. 1952. Eiginmaður Aðalbjargar var Jakob Gísli Ágústsson, f. 6.8. 1921, d. 20.9. 1994. Börn Aðalbjargar eru: 1) Fjóla Berglind Helgadóttir, f. 21. nóvember 1959, maki Guðjón Ólafsson, f. 1962. Börn Fjólu eru Þóra Margrét Vilhjálms- dóttir, f. 1983, og Bragi Freyr maki Ingólfur Bragi Arason. Börn þeirra: Stúlka, f. 4.1. 1991, d. 5.1. 1991, stúlka, f./d. 9.10. 1991, Glódís, f. 1995, drengur, f./d. 8.8. 1998. Barnabörn Helgu og Ingólfs eru tvö. 5) Ágúst Frímann Jakobsson, f. 7. mars 1972, maki Sólrún Dögg Árnadóttir. Börn þeirra: Jakob Gísli, f. 1998, Guðbjört Lind, f. 2002, og Kári Hrafn, f. 2004. Aðalbjörg ólst upp á fæðingarstað sínum á Stóru- Borg í Vesturhópi þar sem foreldrar hennar bjuggu. Hún giftist Jakobi Gísla Ágústssyni frá Gröf á Vatnsnesi og hóf með honum búskap. Þau stofn- uðu nýbýlið Lindarberg úr landi Grafar og þar starfaði Aðalbjörg við heimilis- og bú- skaparstörf. Árið 1979 hættu Aðalbjörg og Jakob búskap en bjuggu enn á Lindarbergi og stunduðu vinnu á Hvamms- tanga en þar vann Aðalbjörg m.a. við kjötvinnslu og mat- reiðslu. Ári eftir andlát Jak- obs, árið 1995, fluttist Aðal- björg til Hvammstanga og bjó þar síðan, fyrst á Strandgötu 7 og síðar Hjallavegi 4. Útför Aðalbjargar fer fram frá Hvammstangakirkju í dag, 5. júní 2018, klukkan 14. Vilhjálmsson, f. 1986. Börn Guð- jóns eru Ólafur Þórir, f. 1985, og Svandís, f. 1990. Fjóla og Guðjón eiga tvö barna- börn. 2) Margét Þóra Jakobsdóttir, f. 14. desember 1963. Dætur Mar- grétar eru Lilja Dögg Þorbjörns- dóttir, f. 1986, og Guðrún Eyja Erlingsdóttir, f. 1990. Barna- börn Margrétar eru fjögur. 3) Aðalsteinn Jakobsson, f. 9. desember 1964, maki Ingi- björg Signý Kristinsdóttir, f. 1965. Sonur þeirra er Fannar Steinn, f. 2000. Dóttir Að- alsteins er Svala, f. 1986, og dætur Ingibjargar Signýjar eru Rósalind Signýjar Krist- jánsdóttir, f. 1982, og Hólm- fríður Kristjánsdóttir, f. 1988. Aðalsteinn og Signý eiga fjög- ur barnabörn. 4) Helga Jak- obsdóttir, f. 28. október 1965, Elsku mamma, ég kveð þig með söknuði en líka gleði og þakklæti fyrir allt sem við áttum. Þú varst svo margt: Amma sem alltaf var með litlu ungana sína í fanginu. Húsmóðir sem lét aldrei verk úr hendi falla, matur á borð- um og nýbakað bakkelsi. Dugn- aðarforkur sem gekk í þau störf sem vinna þurfti. Náttúrubarn sem helst vildi týnast á milli berjaþúfna í Brautarhöfðanum og talaði oft um eyrarrósina sína. Sennilega hafið þið afi átt það sameiginlegt að vilja týnast á bak við klettinn, hugsanlega á Stóru- Borg, og drekka í ykkur náttúr- una og staðinn sem ykkur þótti svo vænt um. Því kveð ég þig með ljóði eftir afa. Hvíl í friði elsku mamma. Bak við klettinn er skjól fyrir næðingnum er skjól fyrir augum mannanna. Þar er ég öllum týndur. Ég hef legið hér í grasinu og horft á far skýjanna. Ég hef séð borgir rísa og englana dansa. Ég hef heyrt nið tímans og söng þagnarinnar. Ég hef fundið lífskraft jarðarinnar streyma til mín og moldina gleypa þreytu mína. Hér á bak við klettinn endurnýjast sál mín og fjarlægðir hverfa í hugarflugi óendanlegs dags. (Pétur Aðalsteinsson) Margrét (Magga). Elsku amma dugnaðarforkur, þú varst mér svo mikilvæg. Hjá þér var mitt annað heimili alla barnæskuna, hvergi fannst mér betra að vera. Það var svo notalegt hjá okkur og ég fékk alltaf kakósúpu og harðfisk, það sem mér þótti best. Við fórum alltaf í berjamó í Brautarhöfða á hverju hausti með nesti, þar naustu þín svo vel og ég skildi aldrei hvað þú nenntir að sitja lengi við hverja þúfu. Í seinni tíð fórum við reglulega til þín yfir helgi og alltaf var til bakkelsi og harðfiskur í frystinum. Þú sagðir svo oft við mig að ég þyrfti að drífa í því að eignast barn áður en þú dræpist (eins og þú orðaðir það sjálf). Hilmir kom svo í þennan heim og þú hittir hann í fyrsta skipti á afmælisdaginn þinn, þegar hann var tveggja daga gamall. Það var svo dýrmætt að fá að hafa þig hjá okkur í Reykjavík á þessum tíma. Ég er svo þakklát fyrir tímann okkar saman og fyrir að hafa fengið að fylgja þér seinustu klukkustundir lífs þíns. Hvíldu í friði, elsku amma. Þín Lilja Dögg. Elsku amma mín. Nú ertu flogin á vit ævintýr- anna og ég er viss um að afi tók vel á móti þér þegar þú komst yfir. Mér finnst sárt til þess að hugsa að ég muni ekki geta heim- sótt þig framar á Hjallaveginn. Ég sakna þess líka að geta ekki aftur borðað með þér ómælt magn af súkkulaðirúsínum eins og við gerðum svo oft, enda báðar súkkulaðigrísir af Guðs náð. Ég sakna þess að leggjast upp í rúm á Hjallaveginum, með þig í næsta herbergi og heyra óminn af Álfta- gerðisbræðrum úr útvarpstæk- inu frammi, en þú fórst aldrei upp í rúm á kvöldin án þess að kveikja á fallegri tónlist. Það var alls konar tónlist sem ég hlustaði á með þér og mömmu og þetta tónlistaruppeldi hafði það í för með sér að ég, 27 ára gömul, elska Álftagerðisbræður. Elsku amma mín – söknuðurinn er mikill en á sama tíma er ég með hjartað fullt af þakklæti fyrir allt sem við áttum og gerðum saman síðustu árin þó heilsa þín hafi ekki verið upp á marga fiska. Ég er líka þakklát fyrir að þinni baráttu er lokið því þetta hefur svo sannarlega ekki verið þér auðvelt en þú sýndir ótrúleg- an baráttuvilja. Ég fékk tækifæri til að vera hjá þér og halda í hlýju höndina þína síðustu sólarhringana og þar til yfir lauk. Mér finnst það ein- staklega dýrmætt. Hvíldu í friði, elsku amma mín. Þín ömmustelpa, Guðrún Eyja. Elsku amma. Nú ertu farin frá okkur, en eft- ir standa ótal minningar, hver annarri betri. Öll sumarfríin, páskafríin og vetrarfríin sem ég eyddi hjá þér einkenndust af góð- um mat, notalegheitum og ömmudekri. Það var alltaf gott að koma í ömmuhús, og þú stjanaðir í kringum okkur ömmubörnin eins og þér einni var lagið. Það er sárt að hugsa til þess að þessar minningar verði ekki fleiri, en nú hefur þú fengið hvíldina löngu sem þú varst farin að þrá. Þín verður sárt saknað og við munum ávallt minnast þín með hlýju og þakklæti. Ástarkveðjur, Glódís og fjölskylda. Mér er þakklæti efst í huga þegar ég hugsa til elsku Aðal- bjargar. Fyrir ótrúlega mörgum árum unnum við saman aðra hverja helgi í eldhúsinu á sjúkra- húsinu á Hvammstanga. Í fyrstu reyndi hún að telja mér trú um að ég væri óheppin að lenda á vakt með henni því hún væri ekki mik- ið fyrir að tala. Það breyttist samt fljótt og það var alltaf tilhlökk- unarefni að fara í mat og kaffi með henni og spjalla um lífið og tilveruna. Aðalbjörg hafði einstaklega góða nærveru, var hlý og kær- leiksrík. Við heimsóttum stund- um hvor aðra og það voru alltaf ánægjustundir. Þegar Aðalbjörg vissi að ég væri að fara í bústað í sumarfríinu, árið sem við unnum saman, mætti hún með háan stafla af volgum dásamlegum flatkökum til að hafa með í fríið. Fyrstu árin eftir að ég flutti frá Laugarbakka héldum við sam- bandi en það varð alltaf lengra á milli, eins og gengur, ég hugsaði samt oft til hennar og alltaf með hlýju. Síðasta sumar átti ég leið um Hvammstanga en náði ekki að kíkja til Aðalbjargar eins og mig langaði en hét því að fara nú í sumar. Það er ekki sjálfgefið að fólk sé á lífi næst þegar maður ætlar að heimsækja það, greini- lega betra að gera það strax. Megi minning yndislegrar konu lifa. Ástvinum og vinum sendi ég innilegar samúðar- kveðjur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný (Þórunn Sigurðardóttir) Svanhildur Sif Haraldsdóttir (Hilda). Þá er Aðalbjörg farin frá okkur, ég veit hún vildi ekki að sagt væri margt um sig, en ég set hér smá þakklæti fyrir okkar kynni. Aðalbjörg var góður ná- granni og það var mjög gott að biðja hana bónar, alltaf sagt já er hún gat gert það. Aðalbjörg var hljóðlát og hún hafði mjög góðan húmor. Bestu þakkir fyrir samveruna í Lillukórnum og samleiðina í líf- inu. Set hér ljóð eftir pabba þinn sem mér finnst svo fallegt. Heldur er að halla degi, hljóðlát nóttin bíður mín. Í draumum mínum oft ég eygi annan heim, í leiftursýn. Á fljótsins bakka ferja bíður flytur mig á aðra strönd. Ekki hamlar straumur stríður styrk er ferjumannsins hönd. Gott væri að deyja í drauminn á dagmálunum enda för. Hverfa hljótt og halda í strauminn, hafa fengið óræk svör. Vinna í garði vona sinna vaxa að kærleik, gleði og trú. Vera í fangi vina minna að vexti og þroska öruggt hlú. (Pétur Aðalsteinsson frá Stóru-Borg) Við Lillukórskonur vottum fjölskyldu Aðalbjargar dýpstu samúð. Þín söngsystir og nágranni, Ingibjörg Pálsdóttir (Lilla Páls). Aðalbjörg Pétursdóttir áttum saman þó svo að hann hafi varað stutt, en minningarnar eru vel geymdar. Þú varst einn sá góðhjartaðasti vinur sem ég hef kynnst, alltaf til staðar fyrir vini þína, með þitt smitandi bros, yndislegur í alla staði. Þín verður sárt saknað, þú munt ávallt eiga stað í hjarta mínu, elsku gull, og ég veit að þú vakir yfir þínum eins og þú hefur gert í gegnum tíðina. Kara Lind Sigþórsdóttir. Elsku Einar minn. Ég man alltaf eftir þegar ég hitti þig fyrst, þegar þú komst í skólann okkar með þinn mikla persónuleika sem veitti svo hlýja og góða nærveru. Þú gerðir þitt og varst þú sjálfur, alveg sama þótt öðrum hafi fundist það asna- legt. Þú geislaðir, á vegu sem erf- itt er að útskýra, varst alltaf svo einlægur, hress og góður við allt og alla í kringum þig. Vinátta þín var mér afar kær og hefði ég ekki getað hugsað mér betri vin. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur vini þína og er það ómetanlegt. Alltaf þegar eitthvað kom upp á þá varstu aldrei langt undan og ávallt tilbúinn að hlusta og veita góð ráð sem lét mér strax líða betur. Mér þótti alltaf vænt um að ef ég var reið eða leið þá gerðir þú alltaf þitt besta til þess að láta mig brosa. Elsku Einar, ég verð ævinlega þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og fengið að kallað þig vin minn. Minning þín lifir í hjarta mínu um ókomna tíð. Ég mun ávallt sakna þín og elska að eilífu, yndið mitt. Þú ert bjartasta stjarnan á himni þú ert ljósið í lífi margra lýsa munt leið okkar allra. Kominn er tími að kveðja aldrei mun ég þér gleyma bjartasta stjarna okkar allra. Ég brosi í gegnum tárin, og mun ég ávallt sakna þín en aldrei mun þér gleyma. Þú ert ljósið mitt og yndi ég veit þú ert hjá mér held fast í þig, elsku yndislega ljósið mitt. Horfir þú niður og passar mig þar til við hittumst aftur, elsku vinur. Sesselja Rós Guðmundsdóttir. Elsku fallegi Einar Darri. Það er erfitt að sætta sig við að þú sért farinn frá okkur, alltof snemma þegar líf þitt var rétt að hefjast. Svona á ekki að gerast en lítið sem maður fær við það ráðið. Minningarnar hafa birst mér stöðugt undanfarna daga en al- veg frá því þú fæddist hefur þú verið hluti af lífi okkar. Margt brölluðum við fjölskyldurnar saman í gegnum tíðina og var það okkar blessun hversu náin þið systkinin voruð mínum börnum, það styrkti tengsl okkar enn frek- ar. Þú og Andrés Kári minn voruð svo góðir og fallegir vinir sem ætluðuð ykkur stóra hluti í fram- tíðinni. Notalegt var að sjá þig reglulega birtast heima með Andrési og vinunum, gista og hafa það eins og þú vildir. Þannig fylgdist maður með þér og dáðist að því hversu flottir ungir menn þið voruð orðnir. Þú hreyfðir við öllum sem í kringum þig voru, Einar minn, með fallegu augunum þínum og brosi sem ekki var hægt að stand- ast. Fallegur að utan sem innan, elsku drengurinn minn. Mér finnst hluti af okkur vera farin og sársaukinn er svo mikill en margar góðar og skemmtileg- ar minningar sem hægt er að rifja upp og jafnvel brosa í gegnum tárin. Þú munt alltaf eiga stað í hjart- anu mínu, minningarnar um þig eru þar og verða að eilífu. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar, elsku besta vinkona Bára og Óskar, Andrea, Aníta og Árni. Elín Matthildur Andrésdóttir. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Eiginmaður minn, faðir og vinur, PÉTUR EINAR TRAUSTASON, Skriðustekk 12, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili okkar 28. maí. Útför hans fer fram frá Breiðholtskirkju miðvikudaginn 6. júní klukkan 15. Nanna Sigurðardóttir Þórunn Eir Pétursdóttir Sigurður Freyr Kristinsson, Marý Karlsdóttir foreldrar, systkini og aðrir aðstandendur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐRÚNAR KRISTÍNAR SIGURJÓNSDÓTTUR, Gnoðarvogi 28, Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjúkrunarheimilisins Eirar, þriðju hæðar norður, fyrir einstaka alúð og umhyggju. Hólmfríður Þórarinsdóttir Jón Þórir Jóhannesson Valdimar Ingi Þórarinsson Elísabet Guðrún Þórarinsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, mamma, tengdamamma, amma og langamma, RAGNA RÓSBERG, Ásfelli 1, Hvalfjarðarsveit, lést mánudaginn 28. maí í faðmi fjölskyldunnar á Sjúkrahúsi Akraness. Útförin fer fram í Akraneskirkju mánudaginn 11. júní klukkan 13. Stefán Skagfjörð Óskarsson Hjalti Hauksson Benedikt Hólm Hauksson Jóhanna Steinunn Hauksd. Haukur Magnússon Guðný Ósk Stefánsdóttir Sveinbjörn Reyr Hjaltason Sigrún Mjöll Stefánsdóttir Bjarni Rúnar Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, MAGNÚS GUÐJÓNSSON prentari, Engjavöllum 5a, Hafnarfirði, lést á Landakotsspítala föstudaginn 1. júní. Útförin verður auglýst síðar. Þórunn Haraldsdóttir Bylgja Magnúsdóttir Þórunn Maggy Jónsdóttir Birta Sól Utley Rebekka Huld Utley

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.