Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 1
F Ö S T U D A G U R 8. J Ú N Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 133. tölublað 106. árgangur
WAPPIÐ VEGVÍS-
IR GÖNGUFÓLKS
UM LANDIÐ ALLT
GRILL EÐA EKKI
GRILL – ENGIN
SPURNING
YFIRLITSSÝNING
UM LIST GERÐAR
HELGADÓTTUR
MATARBLAÐ MBL.IS FJÁRSJÓÐUR 30ÚTIVISTARAPP 12
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gamalt Hugsanlegt er að undir reitnum
aftan við Stjórnarráðshúsið finnist minjar
frá fyrstu árum Íslandsbyggðar.
Fornleifarannsókn á baklóð
Stjórnarráðshússins hefst í haust
ef allt gengur eftir. Talið er að
mögulega finnist mannvistarleifar
frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar,
en í nýlegri skýrslu Minjastofn-
unar um Stjórnarráðsreitinn segir
að fornleifarannsóknir sem gerðar
hafa verið nálægt húsinu sýni að á
svæðinu sé að finna ummerki um
búsetu manna frá 9. öld.
Stjórnarráðshúsið er eitt elsta
hús Reykjavíkur, en það var byggt
árið 1765. Nú stendur yfir sam-
keppni milli arkitekta um hönnun
viðbyggingar á reitnum fyrir aft-
an húsið, en dómarar í keppninni
leggja áherslu á ímynd og hlut-
verk hússins og sögulegt mikil-
vægi þess.
Fornleifarannsóknin og bygg-
ingaframkvæmdirnar haldast í
hendur. »7
Fornleifarannsókn
og viðbygging á
Stjórnarráðsreit
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
„Þetta var gert með almannaheill í
huga. Það var einfaldlega ekki hægt
að bjóða íbúum upp á þetta ástand
lengur.“ Þetta segir Magnús H. Guð-
jónsson, dýralæknir og framkvæmda-
stjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja,
HES. Fyrir nokkrum árum ákvað
eftirlitið að hundi, sem bæði lögregla
og HES höfðu haft ítrekuð afskipti af
vegna lausagöngu, árása og ógnandi
hegðunar, yrði lógað. Á ýmsu hafði
gengið áður en það var gert, t.d. þorði
fullorðið fólk vart út úr húsum sínum,
leikskólabörnum var haldið innan-
dyra og Magnús segir að hundurinn
hafi haldið hverfinu í gíslingu. Eig-
endur hundsins kærðu verknaðinn til
úrskurðarnefndar umhverfis- og auð-
lindamála á grundvelli þess að um
brot á stjórnsýslulögum hefði verið að
ræða. Niðurstaða nefndarinnar var
að HES var gert að greiða þeim hálfa
milljón króna í bætur.
Magnús tekur heilshugar undir orð
þeirra Hafrúnar Önnu Sigurbjörns-
dóttur og Óskars Veturliða Sigurðar-
sonar í Morgunblaðinu í gær um að
óljóst sé hvernig koma eigi ábending-
um um grimma hunda á framfæri.
Þau eru móðir og fósturfaðir Sólons
Brimis, drengs í Kópavogi sem varð
fyrir árás hunds. „Ég leyfi mér að
fullyrða að ekkert heilbrigðiseftirlit á
landinu grípur til aðgerða gegn
grimmum hundum eftir þetta mál
okkar,“ segir Magnús. „Við höfum
enga lagalega heimild til að koma í
veg fyrir almannavá sem getur skap-
ast af völdum hunda.“
Hundur hélt hverfi í gíslingu
Heilbrigðiseftirliti var ekki heimilt að lóga hundi sem ítrekað ógnaði og beit Dæmd
til að greiða bætur Engin lagaleg heimild til að koma í veg fyrir vá af völdum hunda
MEngin úrræði … »6
Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Ískönnunarleiðangur Landhelgis-
gæslan kannar legu íssins
Hafís sem borist hefur frá austur-
strönd Grænlands er næst landi í að-
eins sjö sjómílna fjarlægð norður af
Hornströndum. Núverandi vindátt
veldur því að ísinn færist sífellt nær
og er því ekki ólíklegt að jaka beri að
landi. Landhelgisgæslan og lög-
reglan á Vestfjörðum fylgjast náið
með málum og eru í viðbragðsstöðu,
m.a. vegna ísbjarna. „Ísbirnir una
sér best á ís og því kemur mikil
bráðnun íss sér illa fyrir þá. Erfitt er
að áætla hvort og hvenær ísbirni
rekur hingað en það er alltaf mögu-
leiki,“ segir Ingibjörg Jónsdóttir
landfræðingur. »4
Ekki ólíklegt að hafís-
jaka reki að landi
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu heldur til
Rússlands á morgun á sitt fyrsta heimsmeistara-
mót með ekkert sérstaklega gott veganesti.
Liðið lék vel í fyrri hálfleik gegn Gana á Laugar-
dalsvelli í gær og var 2:0 yfir að honum loknum,
með mörkum Kára Árnasonar og Alfreðs Finn-
bogasonar. Í seinni hálfleik jafnaði Gana hins
vegar metin og íslenska liðið kveður því landið
án sigurs í síðustu leikjum. » Íþróttir
Morgunblaðið/Eggert
Gott og
slæmt í
kveðjuleik
Tækniframfarasjóður veitir
styrki til hugmynda og fyrirtækja
upp á allt að 2,3 milljarða árlega.
Hrund Gunnsteinsdóttir, stjórnar-
formaður Tækniþróunarsjóðs, tel-
ur að aukin áhersla á nýsköpun í
samfélaginu skili sér inn í hag-
kerfið. Nauðsynlegt sé að styðja við
nýsköpunarfyrirtæki til að tryggja
fjölbreytt og sjálfbært atvinnulíf.
„Hagkerfið er byggt á hugviti,“
segir Hrund sem segir umsóknum
fara sífellt fjölgandi en í ár bárust
sjóðnum 377 umsóknir og 64 hlutu
styrki. »14
Nýsköpun í mikilli
sókn á Íslandi
Formenn allra stjórnmálaflokka á Al-
þingi hittust á fundi kl. 22 í gærkvöldi
í von um að ná samkomulagi um
hvaða mál verða sett á dagskrá Al-
þingis fyrir þinglok. Nokkur stór mál
eru enn undir en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins eru flokkarnir
að ræða um allt að 50 mál sín á milli.
Þinglok eru í augsýn, að sögn Stein-
gríms J. Sigfússonar, forseta Alþing-
is. Umræður um ríkisfjármálaáætlun
fóru fram í gær og voru enn í gangi
þegar Morgunblaðið fór í prentun.
Önnur mál, eins og nýja persónu-
verndarlöggjöfin, eru enn í nefnd.
Páll Magnússon, formaður alls-
herjar- og menntamálanefndar, segir
nefndina vinna hörðum höndum að
því að ljúka við persónuverndarlög-
gjöfina en líklegt er að nefndin starfi
áfram inn í helgina. Persónu-
verndarlöggjöfin er nú þegar orðin
viðmið í sambandi við meðferð á per-
sónuupplýsingum í Evrópulöndum
og verður málið að klárast fyrir þing-
lok, annars eru sektir og aðrar refs-
ingar yfirvofandi. Katrín Jakobs-
dóttir forsætisráðherra hefur boðið
stjórnarandstöðunni að halda veiði-
gjöldum óbreyttum fram að áramót-
um ef samkomulag náist um önnur
mál. »2
Stíf fundahöld en
þinglok í augsýn
Kristrún Stefánsdóttir vann fyrir
sænskum dómstólum réttinn til að
skrá sig sem foreldri dóttur sinnar
og Ingu Óskar Pétursdóttur í Sví-
þjóð á dögunum.
Inga Ósk fæddi dóttur þeirra
haustið 2012 eftir að þær leituðu til
Art Medica. Fjölskyldan fluttist síð-
ar til Svíþjóðar en við komuna í
landið var ekki hægt að skrá Krist-
rúnu sem foreldri dótturinnar hjá
þjóðskrá Svíþjóðar. Þær eru allar
þrjár íslenskir ríkisborgarar og kom
svarið þeim í opna skjöldu og taldi
fjölskyldan sér vera mismunað.
Hjónin hafa nú sigrað sænsku þjóð-
skrána á tveimur dómstigum en
málið, sem er mögulega fordæmis-
gefandi, hefur vakið mikla athygli í
Svíþjóð og hafa samtök samkyn-
hneigðra þar í landi m.a. boðið þeim
lögfræðiaðstoð. »15
Hjón vinna tíma-
mótamál í Svíþjóð