Morgunblaðið - 08.06.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
Audi Q5 Sport Quattro
Listaverð 8.650.000 kr.
Tilboðsverð frá 7.290.000 kr.
18” álfelgur 5-arma design, bílhitari með fjarstýringu, dráttarbeisli
innfellanlegt, LED aðalljós og LED afturljós, þriggja svæða miðstöð, Audi
Sound System, Audi Smartphone interface, sportsæti með tauáklæði,
rafmagnsopnun á skotthlera, skynjarar að framan og aftan, bakkmyndavél,
hraðastillir.
Audi Q5
Notadrjúgur og glæsilegur
Sérstaklega vel búinn og tilbúinn
fyrir íslenskar aðstæður.
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Engin úrræði eru fyrir starfsmenn
heilbrigðiseftirlita þegar kemur að
því að taka á hundum sem bíta og
ógna fólki. Þetta segir Magnús H.
Guðjónsson, dýralæknir og fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja, HES. Hann segist taka
heilshugar undir gagnrýni Hafrúnar
Önnu Sigur-
björnsdóttur og
Óskars Veturliða
Sigurðssonar,
móður og fóstur-
föður Sólons
Brimis, drengs í
Kópavogi sem
varð fyrir árás
hunds, um að
óljóst sé hvernig
koma eigi ábend-
ingum um
grimma hunda á framfæri, en þau
voru í viðtali í Morgunblaðinu í gær.
Árið 2013 var HES gert að greiða
eigendum hunds, sem það lét aflífa,
bætur, en starfsmenn eftirlitsins
mátu hundinn afar hættulegan. „Ég
leyfi mér að fullyrða að ekkert heil-
brigðiseftirlit á landinu grípur til að-
gerða gegn grimmum hundum eftir
þetta mál okkar,“ segir Magnús.
„Við höfum enga lagalega heimild til
að koma í veg fyrir almannavá sem
getur skapast af völdum hunda.“
Forsaga málsins er að bæði lög-
reglu og HES höfðu í nokkur ár bor-
ist ítrekaðar kvartanir og kærur
vegna hundsins, sem var Schäfer-
tík. Árið 2010 barst sveitarfélaginu
Vogum, þar sem eigendur hundsins
voru þá búsettir, bréf frá Matvæla-
stofnun þar sem eftirlitsdýralæknar
stofnunarinnar vekja athygli á því að
tíkin „geti verið varhugaverð“, eins
og segir í bréfinu. Þar segir að tíkin
hafi verið flutt inn frá Evrópu og við
móttökuskoðun á Keflavíkurflugvelli
hafi hún sýnt mjög ógnandi hegðun.
Engu að síður var hún útskrifuð úr
einangrunarstöð þar sem hún var
vistuð í nokkrar vikur og eiganda
gerð grein fyrir „alvarleika málsins“.
Hljóp inn í bílskúr og beit mann
Næstu árin kom tíkin alloft við
sögu lögreglunnar og heilbrigðis-
eftirlitsins á Suðurnesjum en ítrekað
var tilkynnt um bit, árásir og lausa-
göngu hennar. Til dæmis kom hún
inn í bílskúr manns sem var þar við
vinnu sína og beit hann. Annar íbúi
tilkynnti um að hundurinn hefði ver-
ið laus, geltandi og urrandi úti á götu
og þorði íbúinn ekki út úr húsi. Þá til-
kynnti karlmaður nokkur að hund-
urinn hefði ráðist að sér þar sem
hann var fyrir utan hús sitt og tókst
manninum að flýja inn í hús sitt við
illan leik. Tiltal lögreglu við eigendur
hundsins eftir þessi atvik bar tak-
markaðan árangur, samkvæmt
skýrslum lögreglu.
Það var svo um miðjan mars 2013
að lögreglu barst tilkynning frá leik-
skóla í Reykjanesbæ um að „stór
þýskur fjárhundur væri í lausagöngu
við leikskólann“. Hann væri mjög
ógnandi og ekki væri hægt að fara
með börnin út úr húsinu. Lögregla
kallaði til hundafangara sem kom á
staðinn og var bitinn af hundinum.
Kallað var á liðsauka, auk dýralækn-
is, og að lokum tókst að fanga hund-
inn. Koma átti honum fyrir á hunda-
hóteli, en starfsmenn þar neituðu að
taka við honum. Ekki þótti ásætt-
anlegt að senda hundinn á heimili
sitt og var þá sú ákvörðun tekin að
hundinum yrði lógað sem var gert.
Hélt hverfi sínu í gíslingu
Eigendur hundsins kærðu það til
úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála. Í kærunni kemur m.a.
fram að þeir hefðu aldrei fengið
neinar tilkynningar um að hundur-
inn hefði bitið fólk og að þeim hefði
ekki verið tilkynnt um að til stæði að
aflífa hann. Ekki hefði verið staðið
rétt að málum, þetta væri brot á
stjórnsýslulögum og farið var fram á
fjárbætur fyrir hundinn.
Í málsrökum HES var m.a. skír-
skotað til þess að hundurinn hefði
verið óskráður, sem er brot á sam-
þykkt um hundahald á svæðinu.
Heimilt væri, samkvæmt samþykkt-
inni, að aflífa óskráða hunda, en þótt
hann hefði verið skráður hefði það
engu breytt um afdrif hans, þar sem
hann hefði verið stórhættulegur um-
hverfi sínu og hefði eigendunum átt
að vera það ljóst. „Hundurinn hafði
lengi haldið hverfi sínu í gíslingu
með lausagöngu og ógnandi atferli,
en kærandi hafði lítið gert til að
koma í veg fyrir það,“ segir í máls-
skjölum og þar hafnar HES jafn-
framt ásökunum um brot á
stjórnsýslulögum.
Með almannaheill í huga
Nefndin úrskurðaði eigendum
hundsins í hag, lagastoð hefði skort
fyrir fyrirvaralausri aflífun hundsins
og verulegir annmarkar hefðu verið
á meðferð málsins. HES var gert að
greiða þeim 500.000 krónur.
Magnús hefur starfað sem dýra-
læknir í 30 ár og segist aldrei á
starfsævi sinni hafa séð jafn hættu-
legan hund. Niðurstaða Úrskurðar-
nefndar umhverfis- og auðlindamála
hafi komið honum og öðrum hjá
HES verulega á óvart. Þeim hafi
þótt málið liggja svo ljóst fyrir að
þeim hafi ekki komið til hugar að
leita liðsinnis lögfræðings.
„Þetta var gert með almannaheill í
huga,“ segir hann um aflífun hunds-
ins „Það var einfaldlega ekki hægt
að bjóða íbúum upp á þetta ástand
lengur og þegar ekki var hægt að
leyfa litlum leikskólabörnum að vera
úti þá var ekkert annað í stöðunni.“
Magnús segir að ef áþekkt tilvik
kæmi upp í dag myndi HES halda að
sér höndum. „Við höfum engin tök á
að greiða skaðabætur sem þessar.
Eftir þennan úrskurð vitum við fyrir
víst að ef við fengjum spurnir af
grimmum hundi, sem væri óáreiðan-
legur og gengi laus, þá vissum við að
við gætum ekkert gert í því.“
Engin úrræði gegn grimmum hundum
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja var dæmt til bótagreiðslu vegna lógunar hunds sem ógnaði og beit
Engin lagaleg heimild var til að taka á hættulegum hundum Leikskólabörnum haldið innandyra
Hundur „Það var ekki hægt að bjóða íbúum upp á þetta,“ segir Magnús.Magnús H.
Guðjónsson