Morgunblaðið - 08.06.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Ný námskeið hefjast 18. júní
Síðasta sumarhraðlestin!
TTHRAÐLEST
2 VIKUR -5X Í VIKU
STELPUR
KONUR
STAÐURINN
RÆKTIN
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ný álma hefur verið opnuð á Hótel
Örk í Hveragerði. Með henni bætast
78 herbergi við hótelið og hafa 50
verið tekin í notkun. Stefnt er að því
að nýja álman verði komin í fulla
notkun um næstu mánaðamót.
Jakob Arnarson, hótelstjóri á
Hótel Örk, segir að eftir stækkunina
séu alls 157 herbergi á hótelinu. Það
stækki um 3.200 fermetra og verði
alls 8.700 fermetrar.
Ásgeir Ásgeirsson, arkitekt hjá
T.ark arkitektum, teiknaði viðbygg-
inguna. Hann hefur jafnframt teikn-
að nýtt útlit á veitingastað og ráð-
stefnusal í gömlu byggingunni.
Hófust í fyrrasumar
Grímur Jónsson, eigandi GJ verk-
taka, var byggingarstjóri. Rafbogi
var rafverktaki og Tröllalagnir sáu
um lagnavinnu. Framkvæmdir hóf-
ust í júní í fyrrasumar.
Jakob segir frekari endurbætur á
gömlu byggingunni fyrirhugaðar. Þá
verði sundlaugargarðurinn tekinn í
gegn. Breytingarnar séu liður í að
auka gæðin stig af stigi. Hótelið sé
nú fjórar stjörnur.
Dökkir litir einkenna nýju her-
bergin. Húsgögnin eru sérsmíðuð og
frá Ítalíu. Svalir fylgja mörgum her-
bergjum. Þau eru í ýmsum stærðar-
flokkum. Meðal annars er boðið upp
á svítur í tveimur flokkum og eru
þær stærri 55 fermetrar.
Jakob segir bókunarstöðuna í maí
hafa verið svipaða og í fyrra. Nýja
álman var þá ekki komin í notkun.
Um 50 manns starfa nú á hótelinu
en átta stöðugildi hafa bæst við í
sumarbyrjun.
Jakob segir aðspurður að vel líti
út með bókanir frá Íslendingum. Til
dæmis sé haustið orðið ágætlega
bókað fyrir ráðstefnur og mannfagn-
aði. Hefur ráðstefnusalurinn allur
verið tekinn í gegn og endurnýjaður.
Breytingar Veitingastaðurinn Hver var nýverið opnaður á hótelinu.
Móttakan Hótel Örk hefur fengið nýtt yfirbragð með endurbótum.
Viðbygging Nýja álman snýr til austurs. Verkinu lýkur um mánaðamótin.
Ný Hótel Örk opnuð fyrir gestum
Hótelstjóri segir bókunarstöðu góða Íslensk hönnun og ítalskar innréttingar 78 ný herbergi
Morgunblaði/Arnþór
Hótelstjóri Jakob Arnarson segir bókunarstöðuna líta ágætlega út.
Hönnun Dökkir litir einkenna herbergin. Þau eru af ýmsum stærðum.
Baðið Herbergin hafa snyrtingu.