Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 11

Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 BASE LONDON HERRASKÓR 16.995 BASE LONDON ST 40-46 Kringlunni 4c – Sími 568 4900 Ný sending af gallabuxum frá MARC LAUGE Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég hafði nóterað hjá mér í mínum málflutningspunktum að muna eftir að leiðrétta þetta. Síðan fyrir mistök mín ferst það fyrir,“ segir Einar Karl Hallvarðs- son, ríkislögmað- ur, um efnisatriði í dómsmáli sem ný- verið var leitt til lykta í Hæsta- rétti. Tilefnið er grein Kristjáns Gunnars Valdi- marssonar, lög- manns og lektors við lagadeild Há- skóla Íslands, sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Gagnrýndi Kristján Gunnar að ríkislögmaður skyldi í umræddu máli hafa fullyrt að ekkert stjórnmálasamband væri við Máritaníu. Hæstiréttur Íslands hefði byggt niðurstöðu sína á þessari full- yrðingu. Skal tekið fram að Kristján Gunnar var ekki lögmaður í málinu. Ætti ekki í stjórnmálasambandi Dómsmálið (418/2017) varðaði skattalega heimilisfesti Íslendings sem var skipverji á hentifánaskipi við Afríkustrendur árin 2006 til 2010. At- riðið sem Einar Karl gleymdi að leið- rétta varðaði sem áður segir fullyrð- ingu um að Ísland ætti ekki í stjórnmálasambandi við Máritaníu. Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðs- dóms Reykjavíkur. Krafðist áfrýjandi þess aðallega að felldur yrði úr gildi úrskurður ríkisskattstjóra frá 2016 um skattalega heimilisfesti hans og ótakmarkaða skattskyldu á Íslandi frá árinu 2006 til og með ársins 2010. Sagði í dómi Hæstaréttar að áfrýj- andi hefði lagt fram vottorð til sönn- unar á búsetu í Máritaníu árin 2006 til 2010. „Varðandi þessi gögn er þess að gæta, sem kemur fram í úrskurði rík- isskattstjóra 3. maí 2016 og málatil- búnaði stefnda, að Ísland á ekki í stjórnmálasambandi við Máritaníu auk þess sem hvorki hafa verið gerðir upplýsingaskipta- né tvísköttunar- samningar milli ríkjanna. Því sé ókleift fyrir íslensk stjórnvöld að sannreyna umrædda staðfestingu eða hvort hún sé gefin út af bæru stjórn- valdi,“ sagði í dóminum. Niðurstaðan var að umrædd gögn gætu því ekki komið til álita til að styðja við kröfur áfrýjanda. Hafði samband samdægurs Einar Karl segir spurninguna um stjórnmálasamband ríkjanna vera aukaatriði í málinu. Aðalatriðið sé að ekki sé í gildi tvísköttunar- og upplýs- ingaskiptasamningur milli Íslands og Máritaníu „auk margra annarra at- riða sem getið sé um í ítarlegum for- sendum héraðsdóms sem vísað var til í dómi Hæstaréttar“. Hann hafi kom- ið leiðréttingu á framfæri um leið og dómur féll. „Ég stóð í þeirri trú að leiðréttingin hefði komist á framfæri. Þegar ég sá dóminn setti ég mig samdægurs í samband við dómendur í málinu og lögmann áfrýjanda og reyndi að leita allra mögulegra leiða til að vinda ofan af þessu mistökum. Það varð til þess að ég bað um að það yrði komið á fundi með forseta Hæstaréttar þar sem leitað yrði leiða til að leiðrétta þetta. Forseti Hæstiréttar ásamt mér og lögmanni áfrýjanda funduðu síðan um málið. Síðan hef ég ekki heyrt frá lögmanninum. Þótt þetta hafi verið aukaatriði þá var allt reynt til að vinda ofan af þessu og koma því rétta á framfæri samdægurs,“ segir Einar Karl.  Ríkislögmaður harmar að hafa gert mistök varðandi Máritaníu í dómsmáli Einar Karl Hallvarðsson Setti sig strax í samband við dómarana BOX matarmarkaður var opnaður í Skeifunni í Reykjavík í hádeginu í gær. Á svæðinu er fjöldinn allur af söluaðilum sem bjóða upp á mat og drykk. Einnig verður á svæðinu risaskjár, tónlistaratriði og spretti- verslanir. BOX-Skeifunni verður opin alla fimmtudaga til sunnudaga í sumar, frá 7. júní til 29. júlí. Síðdegis í gær var opnunarhátíð BOX þar sem tónlistarmennirnir Aron Can, Herra Hnetusmjör, Egill Spegill og DJ B–Ruff komu fram, þá var vináttuleikur Íslands og Gana í knattspyrnu karla sýndur á risaskjá. Fengu sér í gogginn á matarmarkaði Morgunblaðið/Hari Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Reykjavíkurborg greiddi 4.183.920 kr. fyrir framleiðslu myndbanda um Borgarlínu og Miklubraut í stokk. Þetta kemur fram í svari borgar- innar við fyrir- spurn Mörtu Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins, um kostnað mynd- bandanna. Vekur Marta athygli á því í fyrirspurn sinni að svar hafi ekki borist fyrr en eftir kosningar og segir hún það athyglisvert að hér er um helstu kosningaloforð Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningarnar að ræða. Í svari Reykjavíkurborgar segir að gerð myndbanda sé hluti af nýrri nálgun við miðlun upplýsinga hjá borginni. Kynningarmynd- bandið um borgarlínu hafi verið hluti af þeirri nýmiðlun og hafi ver- ið framleitt í samráði við stjórn SSH. Myndband um Miklubraut í stokk hafi verið gert að frumkvæði umhverfis- og skipulagssviðs en samkvæmt upplýsingum frá sviðinu var kostnaðurinn við myndbandið 3.461.000 krónur. Að lokum segir í svarinu að gea megi ráð fyrir að í náinni framtíð verði myndbönd not- uð til þess að auka sýnileika og að- gengi að upplýsingum hjá Reykja- víkurborg. Sakar borgarfulltrúa meiri- hlutans um rangfærslur Í bókun borgarráðsfulltrúa Sam- fylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata segir að þrívíddarlíkan og myndband um Miklubraut í stokk hafi verið unnið fyrir umhverfis- og skipulagssvið sem hluti af frumhönnun og athug- un á framkvæmdinni. Segja borgar- fulltrúarnir að slíkt hafi verið gert með stuðningi allra flokka í borg- arstjórn og að tillögu Sjálfstæð- isflokksins. Marta Guðjónsdóttir segir það vera beinlínis rang- færslur og ósannindi að gerð mynd- bandsins sé að beiðni fulltrúa Sjálf- stæðisflokksins enda komi fram í svari við fyrirspurn hennar að um- hverfis- og skipulagssvið hafi átt frumkvæði að gerð myndbandsins. Borgin greiddi millj- ónir fyrir myndbönd Marta Guðjónsdóttir  Borgarlína og Miklabraut í stokk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.