Morgunblaðið - 08.06.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
Skapaðu þinn eigin stíl með
Edge skápaeiningunum frá
Hammel. Ótal möguleikar á
uppröðun og útfærslum. Þú
velur hvort þú hengir
skápana upp á vegg eða
setur fætur undir. Dönsk
hönnun og framleiðsla.
Ellefu konur og sex karlar sitja í nýrri ríkisstjórn
sósíalista á Spáni sem tók við völdum í gær. Aldrei hafa
verið fleiri konur í ríkisstjórn Spánar og aðeins ein
ríkisstjórn í Evrópu, sú sænska, hefur fleiri konur
innanborðs, eða 12 talsins.
Hin nýja ríkisstjórn er sú ríkisstjórn sem hefur fæsta
þingmenn á bak við sig, 84 af 350, frá því lýðræði var
tekið upp í landinu að nýju árið 1970.
Á myndinni að ofan tekur Nadia Calvinu, nýr efna-
hagsráðherra, við ráðherraembættinu af forvera
sínum, Roman Escolano, með hefðbundnum og tákn-
rænum hætti.
AFP
Aldrei fleiri konur verið ráðherrar
Ný ríkisstjórn Spánar tók við völdum í gær
Þingmenn
stjórnarandstöð-
unnar í Gvate-
mala hafa farið
fram á að Sergio
Cabañas, yfir-
manni almanna-
varna í landinu,
verði sagt upp
störfum. Telja
þeir að hann hafi
vanrækt skyldur
sínar og varað of seint við hættu af
eldgosi í eldfjallinu Fúegó sem
byrjaði að gjósa á sunnudag. Minnst
99 létust í eldgosinu og 200 er enn
saknað. Borin hafa verið kennsl á
25 hinna látnu.
3.000 íbúar þorpa við fjallsræt-
urnar þurftu að yfirgefa heimili sín,
en Cabañas er sakaður um að hafa
gefið óskýr fyrirmæli um rýmingu
hættusvæða við eldfjallið. Enn
fremur að fyrirmælin hafi verið
send út of seint.
Forsvarsmenn jarðvísindastofn-
unar Gvatemala hafa borið af sér
sakir og sagst hafa gefið út við-
vörun með miklum fyrirvara. Al-
mannavarnir hljóti að vera ábyrgar
enda hafi ráðamenn þar hunsað
viðvaranir vísindamannanna.
Almannavarnir hafi
varað of seint við
eldgosi í Fúegó
Leit Hjálparsveitar-
maður við Fúegó.
Tíu létust þegar
lítil flugvél fórst í
Kenía. Flak henn-
ar fannst í miðju
landinu í gær, en
hennar hafði þá
verið saknað í tvo
daga. Enginn lifði
af.
Veðurskilyrði í
Kenía hafa verið
slæm undanfarna
daga, víða mikil þoka og úrkoma.
Hamlaði þetta leitinni.
Vélin var rekin af flugfélaginu
East African Safari Air Express og
hóf sig á loft frá bænum Kitale á
þriðjudag. Förinni var heitið til
höfuðborgarinnar Naíróbí. Til stóð
að vélin lenti á alþjóðaflugvellinum í
Naíróbí en hún hvarf af ratsjám 80
mínútum eftir flugtak í Kitale.
Forseti landsins, Uhuru Kenyatta,
vottaði fjölskyldum hinna látnu virð-
ingu sína og bauð þeim alla aðstoð
ríkisins sem möguleg er.
130 þúsund flugfélar taka á loft og
lenda í Kenía á hverju ári og eru 35
flugfélög starfandi í landinu. Alþjóða-
flugsamgöngustofnunin (IATA) met-
ur flugsamgönguinnviði í Keníu sem
þá sjöttu bestu í Afríku með tilliti til
gæða.
Tíu látnir eftir
flugslys í Kenía
Uhuru
Kenyatta
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Spenna er í loftinu fyrir fund G7-
ríkjanna í Kanada á föstudag og haft
hefur verið á orði að nákvæmara
heiti væri G6+1 vegna óvinsælda
Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
Meðal deiluefna í hópnum er upp-
sögn kjarnorkusamkomulags við Ír-
an og nýlegir innflutningstollar
Trump. Þá hefur verið bent á fjölda
smærri mála þar sem forsetinn hefur
gengið fram af leiðtogum hinna
ríkjanna. Shinzo Abe, forsætisráð-
herra Japan, átti fund með Trump í
Hvíta húsinu í gær og er samband
þeirra talið einna best af leiðtogum
G7-ríkjanna.
Sagður hafa móðgað Trudeau
Á síðasta ári sendi Trump Theresu
May, forsætisráðherra Breta, pillu
þegar hún hafði gagnrýnt færslu
hans með and-múslímskum mynd-
böndum á Twitter. Sagði Trump að
hún ætti að „einbeita sér að íslömsk-
um hryðjuverkahópum heima fyrir“.
Nýlega er Trump er sagður hafa
móðgað Justin Trudeau, forsætis-
ráðherra Kanada, í símtali með um-
mælum um að kanadískir hermenn
hefðu lagt eld að Hvíta húsinu árið
1812 og að illa hefði farið fyrir þeim.
Hið rétta er að Bretar voru að verki.
Hefur Trudeau einnig sagt að inn-
flutningstollar séu móðgun við kan-
adíska hermenn sem látist hafi við
hlið Bandaríkjamanna í stríði.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, hefur sagt að Evrópuríki þurfi
að taka örlög sín í eigin hendur, nú
þegar Trump sé kominn til valda.
Samskipti leiðtoganna á fundi þeirra
í Washington í apríl voru af grein-
endum talin stirð og köld.
Vík milli vina
í G7-hópnum
Trump hefur bakað sér óvinsældir
AFP
Leiðtogar Trump og Abe á fundi
sínum í Hvíta húsinu í gær.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Rakhmat Akilov, 40 ára gamall
hælisleitandi frá Úsbekistan, var í
gær dæmdur í lífstíðarfangelsi í Sví-
þjóð fyrir hryðjuverkaárás. Var
hann dæmdur fyrir fimm manndráp
af ásetningi og 119 tilraunir til
manndrápa með því að keyra sendi-
ferðabíl á ógnarhraða niður Drottn-
ingargötu í Stokkhólmi í apríl í fyrra.
Ætlan hans að lokum var að
fremja sjálfsvíg og deyja píslar-
vættisdauða. Sprengjubúnaður úr
gaskútum og nöglum sem Akilov
hafði sjálfur úbtbúið og haft í bílnum
virkaði ekki sem skyldi.
Meðal-lífstíðarfangelsi í Svíþjóð er
16 ár og hefur enginn setið lengur í
fangelsi þar en í 34 ár. Samkvæmt
dóminum verður Akilov vísað úr
landi eftir afplánun.
Vildi deyða sem flesta
Akilov var handsamaður nokkrum
klukkustundum eftir árásina og ját-
aði fljótlega í yfirheyrslum að hafa
framið verkið.
Í dómsorði er hann sagður hafa
framið verknaðinn með þann ásetn-
ing að deyða eins marga og hann
mögulega gæti. Í réttarhöldunum
sýndi hann enga iðrun fyrir dómstól-
um og er sagður hafa starað tómlega
út í loftið, jafnvel þegar blóðugar
myndir og myndbönd af árásinni
voru sýnd í réttarsalnum.
Kvaðst hann hafa heitið hryðju-
verkasamtökunum Íslamska ríkinu
hollustu sinni og að samtökin hefðu
gefið honum „grænt ljós“ til að
fremja sjálfsvígsárás í Stokkhólmi.
Hryðjuverkasamtökin hafa þó aldrei
lýst yfir ábyrgð á voðaverkunum.
Lífstíðardómur fyrir hryðjuverk
Dæmdur fyrir voðaverk á Drottningargötu í Stokkhólmi 5 manndráp og 119 manndrápstilraunir
Sýndi enga iðrun fyrir dómstólum Fór huldu höfði í Svíþjóð eftir að umsókn um hæli var hafnað
Að sögn yfirvalda í Svíþjóð var til-
gangurinn með árásinni að neyða
Svíþjóð til að hætta þátttöku í alþjóð-
legri herför gegn Íslamska ríkinu og
valda skelfingu hjá sænsku þjóðinni.
Akilov, sem er fjögurra barna fað-
ir, kom til Svíþjóðar árið 2014, en
kona hans og börn urðu eftir í Ús-
bekistan. Þegar umsókn hans um
hæli var hafnað fór hann huldu höfði
í Svíþjóð og hafa yfirvöld verið harð-
lega gagnrýnd fyrir að hafa ekki haft
hendur í hári hans. Stjórnvöld hafa
nú komið á fót auknu eftirliti í þessa
veru.
AFP
Dómur Niðurstöðu dómsins dreift
til fréttamanna eftir uppkvaðningu.