Morgunblaðið - 08.06.2018, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þær fregnirbárust í gærað banda-
ríska utanríkis-
ráðuneytið hefði
þurft að flytja suma
af sendiráðsstarfs-
mönnum sínum frá
sendiskrifstofu
sinni í borginni Guangzhou í
suðurhluta Kína. Ástæðan var
sú að starfsmennirnir voru farn-
ir að finna fyrir óþægindum sem
sneru að hljóðum og minntu ein-
kenni þeirra helst á þau sem
sendiráðsstarfsmenn Banda-
ríkjanna á Kúbu hafa sagst hafa
orðið fyrir á síðustu misserum.
Á Kúbu hafa minnst 24 sendi-
starfsmenn eða meðlimir fjöl-
skyldna þeirra orðið fyrir skaða
vegna þessa hljóðáreitis sem svo
er lýst og hefur einkennunum
meðal annars verið líkt við að
fólkið hafi fengið heilahristing
án þess að nokkur skýring feng-
ist á honum.
Reynist þessi lýsing rétt er
um grafalvarlegt mál að ræða.
Friðhelgi sendiráðsstarfsmanna
er ein af grundvallarreglum al-
þjóðasamskipta. Í ágætri grein
Finns Magnússonar hæsta-
réttarlögmanns í Viðskipta-
mogganum í gær var fjallað um
þetta og bent á að ríki leggi „sig
fram um að virða meginreglur
Vínarsamningsins um stjórn-
málasamband frá 1961 enda
ljóst að ef þau brjóta gegn
ákvæðum samn-
ingsins þá er ekki
sjálfgefið að sendi-
erindrekar þeirra
njóti sömu réttinda
á erlendri grundu“.
Komi í ljós að þarna
hafi erlent ríki ráð-
ist beint að skiln-
ingarvitum sendierindreka með
áreiti verður slíkt væntanlega
ekki látið óátalið.
Fyrir sitt leyti hafa bæði
gistiríkin, Kúba og Kína, neitað
því að þau beri nokkra sök í mál-
inu, en Bandaríkjamenn töldu
það ekki trúverðugt í tilfelli
Kúbu og vísuðu 15 sendistarfs-
mönnum þeirra úr landi vegna
málsins á síðasta ári. Enn er þó
margt óupplýst um þessar árás-
ir og hugsanlega ástæðu þeirra.
Sú spurning hefur vaknað
vestanhafs hvort að þessi atvik
tengist þeim viðkvæmu að-
stæðum sem nú ríkja á milli Kín-
verja og Bandaríkjamanna varð-
andi viðskipti, Suður-Kínahaf og
Kóreudeiluna. Það gæti þó varla
verið annað en dómgreindar-
skortur á hæsta stigi ef það
reyndist rétt að Kínverjar væru
að reyna að ná yfirhöndinni
gagnvart Bandaríkjunum með
aðferðum sem minna einna helst
á lélega njósnareyfara. Að sama
skapi er brýnt að komist verði
sem fyrst að rótum þessara
„árása“ svo hægt verði að koma í
veg fyrir þær í framtíðinni.
Komast þarf til
botns í hvort „hljóð-
árásir“ á Kúbu og í
Kína eiga við rök að
styðjast}
Ráðgáta breiðist út
Hvort sem þaðer vitandi vits
eða lýtur leiðsögn
undirvitundarinnar
þá er fullyrt að
manneskjan sé sú dýrategund
sem sé uppteknust af því að
elta hamingjuna uppi. Sam-
kvæmt endalausum viðtölum
telja margir sig hafa iðulega
náð í skottið á henni. Því er lýst
með tungutaki nútímans sem
kann svo að verða ríkjandi um
aldir: „Ég er svo ótrúlega ham-
ingjusöm eða svo ofboðslega
hamingjusamur að það er svo
ótrúlega ofboðslega ótrúlegt.“
Sem er gaman að heyra.
Í gær birti háskóli í Valencia
á Spáni ítarlega rannsókn á því
hvaða þjóðir Evrópu væru ham-
ingjusamastar samkvæmt vís-
indalegum mælikvarða. Var
tekið fram að könnun skólans
væri með mun öruggari vís-
indalegar undirstöður en fyrri
kannanir annarra um efnið,
enda byggt á aðgengilegum og
sambærilegum opinberum hag-
talnagrunni. Þrettán ham-
ingjusömustu þjóðir í Evrópu
voru gefnar upp og miðað við
100 sem hina taumlausu og
endanlegu hamingju (ekki orða-
lag vísindamann-
anna). Þau ríki sem
mældust með 50
stig af hundrað eða
meir töldust í hópi
hinna hamingjusömustu. Þær
voru:
13) Portúgal 50 stig
12) Lettland 51 stig
11) Litháen 58 stig
10) Króatía 60 stig
9) Slóvenía 61 stig
8) Kýpur 62 stig
7) Tékkland 63 stig
6) Spánn 63 stig
5) Frakkland 66
4) Bretland 69
3) Austurríki 74
2) Svíþjóð 76
1) Ísland 76
Útbreitt breskt blað taldi að
þessi „úrslit“ yrðu augljóslega
áfall fyrir Merkel kanslara.
Auðvitað af þeirri ástæðu að
forystuland álfunnar kæmist
ekki á blað yfir hamingjusöm-
ustu þjóðir þar. Og svo hitt að
þrjár af fjórum hamingjusöm-
ustu þjóðum Evrópu væru ekki
með evru. Það gæti varla verið
tilviljun.
En kannski hefur Ítalía
höndlað hamingjuna næst þeg-
ar vísindamenn mæla hana.
Hamingjusamasta
þjóðin eftir „hrun“}
Hamingjukeppni hentar
betur en söngvakeppni
U
m þessar mundir ganga glaðir
stúdentar út í lífið fullir tilhlökk-
unar eftir fjölda ára í námi. Þeirra
bíður nú að taka ákvörðun um
hvort leggja eigi stund á frekara
nám, hvort tími sé kominn til að sækja út á
vinnumarkaðinn af fullum krafti eða jafnvel
leggja land undir fót, fá reynslu og upplifun úr
öðrum menningarheimum.
Flest ungt fólk er að eðlisfari bjartsýnt. Það
hefur væntingar um framtíðina, að það fái að
njóta góðra lífskjara og því bjóðist tækifæri á
vinnumarkaði þar sem þau geta nýtt menntun
sína, virkjað hæfileika, metnað og áhuga.
Ungt fólk á að gera ríkar kröfur til okkar sem
sitjum á Alþingi. Við þurfum að tryggja frjóan
jarðveg til framtíðar og að valfrelsi til orða og at-
hafna sé tryggt. Það er stórt verkefni að marka
stefnu um hvernig við búum ungt fólk undir það
að mæta kröfum framtíðarinnar. Háskólamenntuðum ein-
staklingum hefur fjölgað hratt en á sama tíma þarf sér-
hæfðum störfum að fjölga bæði á almennum og opinberum
vinnumarkaði svo að ábati menntunarinnar minnki ekki.
Það er ekki hlutverk stjórnvalda að skapa störf, en það
er hlutverk stjórnvalda að haga málum þannig að um-
gjörðin hér á landi ýti undir að hugvit og nýsköpunar-
starfsemi blómstri. Það eru gömul sannindi og ný að frum-
kvöðullinn er drifkraftur framfara og bættra lífskjara.
Hann kemur auga á tækifærin, býður upp á nýja vöru og
þjónustu, skapar ný störf og eykur þannig lífsgæði sam-
ferðamanna sinna. Sprotafyrirtæki eru aflvakar framfara
og breytinga. Þau mynda farveg frjórrar
hugsunar og nýrra aðferða. Menntakerfið
þarf að mæta kröfum framtíðar og ýta þannig
undir sjálfstæði og hugsunarhátt frumkvöðla.
Það er ein skylda stjórnmálamanna að
tryggja að ríkisvaldið setji ekki bönd á ungt
framtakssamt fólk. Á þetta leggur ríkis-
stjórnin mikla áherslu, meðal annars með af-
námi þaks á endurgreiðslum vegna rannsókna
og þróunar. Með því hættum við að senda þau
skilaboð að nýsköpun eigi sér einungis stað í
litlum fyrirtækjum, hugvit og nýsköpun á sér
jafn mikilvægan sess í stærri og rótsettum
fyrirtækjum.
Nú er einnig verið að setja á fót starfshóp
um nýsköpunarstefnu með það að markmiði
að efla nýsköpun í opinberum rekstri og ein-
falda regluverk. Það mun meðal annars
hjálpa til við eflingu innviða sem verða sífellt
dýrari ef aldrei er horft til meiri hagkvæmni í rekstri.
Með þessu erum við að stíga mikilvæg skref til að bæta
enn frekar lífskjör almennings, byggja upp fjölbreyttara
samfélag, með sérhæfðum störfum. Við erum að byggja
upp samfélag fjölbreytileikans til að tryggja ungu fólki val-
frelsi og góð lífskjör. Við erum með öðrum orðum að sinna
því verkefni sem okkur er falið, að móta jarðveginn þannig
að ungt fólk geti horft með björtum augum til framtíðar.
aslaugs@althingi.is
Áslaug Arna
Sigurbjörns-
dóttir
Pistill
Að ganga inn í framtíðina
Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og
ritari Sjálfstæðisflokksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Fjöldi farþega um Kefla-víkurflugvöll í maímánuðivar meiri en gert hafðiverið ráð fyrir, að sögn
Skarphéðins Berg Steinarssonar
ferðamálastjóra. Hann segir að nú sé
stóra spurningin hvað gerist í ferða-
þjónustunni á næstu mánuðum og
hvort samdráttur verði í júlí og ágúst
eins og spár
Isavia hafi gert
ráð fyrir.
Brottfarir
erlendra farþega
um Keflavíkur-
flugvöll í maí
voru um 165 þús-
und talsins sam-
kvæmt talningu
Ferðamálastofu
og Isavia í Flug-
stöð Leifs Eiríks-
sonar, eða um 19.200 fleiri en í maí á
síðasta ári. Fjölgunin nemur 13,2% á
milli ára, sem er meiri hlutfallsleg
aukning en aðra mánuði þessa árs.
Sé litið til tímabilsins frá áramótum,
eða janúar-maí, dregur úr aukningu í
samanburði við fyrri ár. Aukningin í
maí hefur verið að jafnaði 25,6% milli
ára síðastliðin fimm ár.
Sérstakur mánuður
Skarphéðinn segir að fara þurfi
varlega í að draga ályktanir út frá
einum mánuði og taka þurfi lengri
tíma til þess að geta áttað sig á þró-
uninni. Maímánuður hafi alltaf verið
sérstakur mánuður í ferðaþjónustu,
millimánuður á milli vors og sumars.
Á tímabili hafi fjölgun ferða-
manna hérlendis verið það mikil að
fólk hafi tæpast sætt sig við annað en
aukningu upp á tveggja stafa tölu í
hverjum mánuði. Það sé hins vegar
aukning sem í raun sé ekki eðlileg
nema í mjög stuttan tíma og í sjálfu
sér ekki gott fyrirkomulag hvort sem
er í rekstri þjóðfélags eða fyrirtækis.
„Ef spár um fækkun ferðafólks í
júlí og ágúst ganga eftir yrði það af-
ar óheppilegt,“ segir Skarphéðinn.
„Þetta eru stærstu og mikilvægustu
mánuðirnir fyrir ferðaþjónustuna al-
mennt í landinu. Samdráttur í júlí og
ágúst þegar verð er til dæmis hæst
fyrir gistingu og líklegast er að
ferðamenn skili sér út á land getur
haft nokkur áhrif á greinina.
Heildarfjöldi sæta inn og út úr
landinu sem í boði er í ár er meiri en
var á síðasta ári og þetta á örugglega
við um júlí og ágúst. Það sem hefur
hins vegar breyst er að íslensku flug-
félögin bjóða stærri hluta af sæt-
unum í tengiflug heldur en áður og
þá minna hlutfall í að sinna ferða-
þjónustunni til landsins eða ferðalög-
um Íslendinga til útlanda.“
Óvarlegt að álykta
út frá bókunum
Spurður hvort hann hafi upplýs-
ingar um bókanir á næstu mánuðum
segir Skarphéðinn að óvarlegt sé að
draga miklar ályktanir út frá þeim.
Bókunarfyrirvari sé að styttast al-
mennt í heiminum og stöðugt stærri
hluti ferðaþjónustunnar sé að færast
úr því að vera sala í hópferðir á veg-
um ferðaskrifstofa í að vera ein-
staklingsferðir. Þannig komi ¾
ferðamanna til landsins á eigin
vegum.
Þetta sé ekki endilega góð þró-
un fyrir innlenda ferðaþjónustu því
bókunarsíður taki frá 15% og upp í
35% fyrir þjónustu sína. Spurningin
sé meðal annars um hvort sala til
ferðamanna á eigin vegum vegi upp
samdrátt í skipulögðum hópferðum.
Á heimasíðu Ferðamálastofu
kemur fram að dregið hefur úr aukn-
ingu frá öllum mörkuðum fyrstu
mánuði ársins í samanburði við fyrri
ár. Norðurlandabúar standa í stað,
Bretum fækkar um 6%, Mið- og
Suður-Evrópubúum fjölgar um 7%
og fjölgun frá stærsta markaðs-
svæðinu, N-Ameríku, var 2%.
Óheppilegt verði sam-
dráttur í júlí og ágúst
Tólf fjölmennustu í maí
51.608
11.921
10.651
9.581
8.890
8.192
5.448
5.218
4.868
4.125
3.891
3.815
51.608
Heimild: Ferðamálastofa
Bandaríkin
Þýskaland
Bretland
Kanada
Pólland
Frakkland
Svíþjóð
Noregur
Holland
Danmörk
Kína
Spánn
2018
2017
Skarphéðinn
Berg Steinarsson
Alls fóru 51.608 Bandaríkjamenn
frá Keflavíkurflugvelli í maí og
voru þeir langfjölmennastir.
Næstir komu Þjóðverjar, Bretar
og Kanadamenn.
Í fimmta sæti voru Pólverjar
og af einstökum þjóðum var
hlutfallslega mest fjölgun í
brottförum þeirra í maímánuði.
Þeir voru 77% fleiri í ár en í fyrra
og fóru tæplega níu þúsund Pól-
verjar um Keflavíkurflugvöll í
mánuðinum. Leiða má líkur að
því að það sé í talsverðum mæli
umferð pólskra ríkisborgara sem
hér eru búsettir atvinnu sinnar
vegna, segir á heimasíðu Ferða-
málastofu.
Íslendingar
ferðast meira
Um 62.800 Íslendingar fóru
utan í maí í ár eða 22,5% fleiri
en í maí 2017. Samtals voru
brottfarir Íslendinga á tímabilinu
janúar til maí um 251.600 tals-
ins, eða 11% fleiri en á sama
tímabili árið 2017.
Pólverjar á
faraldsfæti
BROTTFARIR FRÁ
KEFLAVÍKURFLUGVELLI