Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 19

Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 Í rúst Við niðurrif Landssímahússins birtist ljósmyndara þessi stigagangur sem ferskt sumarloftið lék um. Kristinn Magnússon Það er ávallt áleitin spurning hve lítið er hægt að komast af með til að lifa. Þarfir manna eru misjafnar þannig að til eru þeir sem varðar ekkert um neyslu- samfélagið og geta lifað á skyri og harðfiski einu saman. Samt er það svo að það sem kallast „einingar tengdar al- mannahagsmunum“ er ekki mjólkurbú og harðfiskhjallar. Einingar tengdar almannahags- munum eru fyrst og fremst fyrirtæki sem tengjast fjár- málum. Kerfislega mikilvægir bankar, líf- eyrissjóðir og tryggingafélög tengjast öll al- mannahagsmunum. Fjármál og almannahagsmunir Hagsmunir almennings að þessu leyti eru þeir að almenningur hefur falið þessum ein- ingum að takast á við framtíðarskuldbind- ingar sínar. Þetta er augljósast með lífeyris- sjóði því lífeyrissjóðir hafa það hlutverk að tryggja fjármögnun einstaklinga eftir að starfsaldri lýkur. Þannig er lífeyriseign ein- staklings oftar en ekki hans einasta fjárhags- lega eign eftir að starfsaldri lýkur, því ekki snæða einstaklingar fasteignina sem þeir búa í á lífstíma sínum. Þegar lýðskrumarar vilja ráðskast með eignir lífeyrissjóða, þá er verið að ráðskast með fjöregg framtíðar þeirra sem eldri eru. Lífeyrissjóðir hafa aðeins eina skyldu; hún er að tryggja lífeyri hinna lífeyristryggðu. Líf- eyrissjóðir hafa ekki skyldu til að standa undir hagvexti framtíðar, eins og komið hef- ur fram í skrumskælingu lýðskrumara. Lífeyrisþegar greiða til baka fyrir þjón- ustu sem þeir þurfa á að halda með skatt- greiðslum þegar lífeyristaka hefst. Það er nokkuð víst að einstaklingar geta orðið fyrir tjóni. Til að takmarka tjón sitt semja einstaklingar við vátryggingafélög um að bæta tjón gegn ákveðnu gjaldi. Það gjald byggist á áhættu og tjónareynslu. Þá fyrst var hægt að reka iðnaðarsam- félag á Íslandi þegar Bruna- bótafélagið og Sjóvátrygginga- félagið voru stofnuð á öðrum áratug síðustu aldar. Brunatrygging fasteigna dregur úr áhættu lánveitanda í fasteignalánum. Svo er einnig um vátryggingar skipa. Báta- ábyrgðafélögin og annars konar samábyrgð var í raun of mikil áhætta fyrir samlagsaðila. En hvað á svo til bragðs að taka ef sú staða kemur upp að einstök fyrirtæki á fjármála- mörkuðum verða of stór til að falla? Á almenningur að bjarga þeim? Eða á að vernda almenning fyrir falli þeirra eins og gert var með neyðarlögum í kjölfar hruns ís- lensku bankanna? Lítum á nokkur fleiri dæmi. Veitur og almannahagsmunir Aðrar einingar sem geta haft veruleg áhrif á líf almennings og valdið truflunum ef bilun eða skerðing á starfsgetu kemur upp. Þá er meðal annars átt við veitufyrirtæki fyrir heitt og kalt vatn, og rafmagn. Frárennsli fellur einnig þar undir því enginn vill ganga í opnu frárennsli frá íbúðabyggð eða iðnaðar- svæði. Ef truflun verður á raforkuframleiðslu leggst atvinnulíf í dvala fyrir utan þau óþæg- indi, sem verða á heimilislífi. Þegar atvinnulíf leggst í dvala geta heimili ekki greitt fyrir neyslu sína og aðrar skuldbindingar. Þó var það svo að það er aðeins ein öld frá því raf- magn varð almenningseign og almenningur varð háður þessu náttúrufyrirbirgði, sem náðist að beisla til nota, en var þá ekki aðeins ógn eins og rafmagnið í eldingunni. Þessar einingar tengdar almannahags- munum voru í verulegri hættu í fjármála- hruni fyrir áratug. Ekki vegna þess að hinir tæknilegu þættir voru í hættu. Hættan var sú að greiðslufall yrði á einhverjum lánum þess- ara fyrirtækja en það hefði getað leitt til upp- sagnar annarra lánasamninga. Samningskjör í lánasamningum Landsvirkjunar og Orku- veitu Reykjavíkur voru auðlind, sem nauðsyn bar til að vernda. Þess vegna eru orkufyrir- tæki einingar tengdar almannahagsmunum. Samgöngur og almannahagsmunir Samfélag tuttugustu og fyrstu aldar er háð samgöngum. Herstjórn er reyndar birgða- flutningar og fólksflutningar. Orrustan er tæknileg útfærsla. Aukin alþjóðaviðskipti krefjast skilvirkra samgangna. Skilvirkar samgöngur leiða af sér nokkrar atvinnugreinar sem til samans heita ferða- þjónusta. Sá maður sem kemur aftur er ann- ar maður en sá sem fór. Svo er einnig um landið sem ferðast er til. Það land er annað en áður en ferðalangurinn kom. Erfiðleikar eins fyrirtækis í ferðaþjónustu geta leitt til keðjuverkunar í öðrum þáttum ferðaþjónustu. Þá er staðan ekki ósvipuð og sú staða sem kemur upp þegar rafmagns- bilun hefur í för með sér truflun á lífi manns. Hvenær verður þátttaka ríkis í uppbygg- ingu innviða áhættusöm? Er Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík of áhættusöm fyrir ís- lenska ríkið, sem er þó ekki í eigendaábyrgð fyrir lánum fyrirtækisins? Tekið skal fram að íslenska ríkið hefur sennilega aldrei lagt neitt fram til uppbyggingar flugstöðvar í Keflavík. Getur eitt flugfélag orðið of stórt til að þjóðríki verði að bjarga því? Áhætta þjóðríkisins er fólgin í röskun á störfum á vinnumarkaði. Áhætta farþega er fólgin í því að fá ekki þá þjónustu sem greitt var fyrir en á eftir að veita. Áhætta fjármála- fyrirtækis er sú að missa af leigutekjum vegna flugvélaleigu eða á að hafa innt af hendi greiðslur vegna greiðslukorta fyrir þjónustu sem ekki var búið að veita en á eftir að veita. Það eru nýlegt dæmi um að greiðslukortafyrirtæki hafi í raun þurrkast út vegna viðskipta við flugfélag. Eftirlit og skyldur í þágu almannahagsmuna Það er eðlilegt að einingar tengdar al- mannahagsmunum séu háðar eftirliti ef þær geta verið skaðlegar þegar þær fara út af spori og úr böndum. Dæmin hér að framan sýna að hrakfarir fjármálafyrirtækja geta að líkindum haft meiri bein og óbein áhrif á þjóðfélagið en hrakfarir ýmissa annarra ein- inga þótt tengdar séu almannahagsmunum. Eftirlitskostnaður er hluti af rekstri slíkra fyrirtækja og þau eiga að bera þann kostnað. Ekki má gleyma samkeppniseftirliti. Flest þessara fyrirtækja búa við náttúrulega ein- okun. Almenningur þarfnast sérstakrar verndar vegna þeirrar einokunar. Þeir sem eftirlitið rækja þurfa að vera til þess bærir og til þess hæfir. Það brást í eftir- liti með fjármálastofnunum. Opinberir eftir- litsaðilar, stjórnir, stjórnendur og endur- skoðendur fjármálafyrirtækja brugðust, vitandi um hlutverk sitt. Í skrifum mínum að undanförnu hef ég lagt mikla áherslu á hlutverk og upplýsingagjöf stjórna og endurskoðenda. Í raun varðar mig ekkert um það hvernig mjólkurbúi, sem framleiðir skyr, eða húsgagnaframleiðanda reiðir af. Bóndann kann að varða það hvernig afurðastöðvum reiðir af. Svo er og um harð- fiskframleiðandann. Það verður alltaf annar til sem framleiðir ætan harðfisk. Það á aldrei að bregðast trúnaði með þjónkun við þrjóta. Enginn orðaði þetta betur en góða frúin, hún sagði: „Hvers vegna vill maður endilega halda framhjá með einhverju bölvuðu kvik- indi þó að maðurinn manns sé bæði glæsi- menni og hetja?“ Eftir Vilhjálm Bjarnason »En hvað á svo til bragðs að taka ef sú staða kemur upp að einstök fyrirtæki á fjár- málamörkuðum verða of stór til að falla? Á almenningur að bjarga? Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Einingar og almannahagur Ekki verður betur séð en að heilbrigðisráðherra þjóðarinnar sé í einhverskonar afneitun þeg- ar kostnaður og gæði heilbrigð- isþjónustunnar eru annars veg- ar. Eitt virtasta tímarit heims í læknisfræði, The Lancet, birti fyrir nokkrum dögum úttekt á heilbrigðistengdum gæðavísum og aðgengi að heilbrigðisþjón- ustu 195 landa fyrir árið 2016. Til að gera langa sögu stutta toppar Ísland þennan lista. Erfitt er að ímynda sér hvernig hægt er að fá betri staðfestingu á góðu kerfi og glæsilegri frammistöðu heilbrigðisstarfsfólks. Sjálf- sagt er að óska því fólki til hamingju. Við getum verið stolt af árangrinum enda þótt ráðherrann virðist ekki mega heyra á hann minnst. Hin almenna heilbrigðisþjónusta er byggð á þremur grunnstoðum: Heilsu- gæslu, starfsemi sjálfstætt starfandi heil- brigðisstarfsmanna og sjúkrahúsþjónustu. Nokkuð góður samhljómur hefur verið um þessa þrískiptingu fram til þessa. Hér skiptir mestu að þarfir neytandans séu ávallt hafðar í forgangi. Sjúklingar hafi gott aðgengi að þjónustunni á sínum for- sendum, gæði hennar séu fyrsta flokks og kostnaður, sem ávallt skal greiddur af hinu opinbera, sé samkeppnishæfur við það sem best gerist í nágrannalöndum okkar. Sérfræðiþjónusta lækna hefur um ára- raðir verið kjölfesta góðrar læknisþjón- ustu hér á landi. Á síðasta ári tóku sér- fræðilæknar á rammasamningi við Sjúkratryggingar Íslands á móti um 500 þúsund heimsóknum. Þeir framkvæmdu meðal annars um átján þúsund skurð- aðgerðir og þúsundir speglana auk margs- konar lífeðlisfræðilega rannsókna. Á sama tíma voru um 244 þúsund komur á göngu- deild Landspítala og um 250 þúsund kom- ur á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þannig er stofustarfsemi sérfræðilækna stærri en göngudeildarstarfsemi þessara tveggja stærstu heilbrigðisstofnana lands- ins. en að ráðherrann hefði ekki svarið. Margir sjúklingar eiga bókaða tíma hjá sér- fræðilæknum eftir áramót og langt inn í næsta ár. Þeir hafa svarið ekki heldur. Ein af helstu röksemdum, en um leið rangfærslum, ráðherrans er að samning- urinn sé opinn og að til hans streymi ótak- markað fé. Það er einfaldlega rangt og við leyfum okkur að fullyrða að ráðherrann veit betur. Sjúkratryggingar tryggja sér „einkarétt“ á þjónustu læknis á samn- ingnum. Nýliðun í stétt sérfræðilækna á stofu hefur algerlega verið stöðvuð í meira en tvö ár. Til þess hafa stjórnvöld reyndar margsinnis þurft að þverbrjóta samninginn en ráðherrann virðist láta sér það í léttu rúmi liggja, væntanlega með það í huga að tilgangurinn helgi meðalið. Með því að loka á nýliðun og læsa unga lækna úti í orðsins fyllstu merkingu er ráð- herrann ekki að draga úr eftirspurn heldur minnka þjónustu og rýra gæði hennar. Veruleg hætta er á því að læknar sem ekki komast heim þegar þeim hentar ílengist er- lendis og snúi jafnvel aldrei til baka. Samn- inginn þarf að opna strax. Verði hann látinn renna út án endurnýjunar er tvöfalt heil- brigðiskerfi þar sem hinir efnameiri kaupa sér forgang endanlega orðið að veruleika. Þjóðin hefur aldrei getað hugsað sér slíkt fyrirkomulag. Ráðherrann sýnist hins veg- ar stefna þangað með þessum háskalega leik sínum. Um 350 læknar starfa á samningnum í ýmsum sérgreinum. Til viðbótar eru um 300 önnur stöðugildi fagfólks í ýmsum greinum. Enda þótt starfsemin sé afar um- fangsmikil er athyglisvert að hún tekur einungis til sín um 6% af heildarútgjöldum til heilbrigðisþjónustunnar. Sérfræðiþjón- ustan er einfaldlega vel rekin, ódýr miðað við í nágrannalöndum og með gott aðgengi sjúklinga. Gæðin þarf enginn að draga í efa. Það er vandséð annað en að hér sé vel farið með hverja krónu skattfjárins. Engu að síður eru þeir til sem þreytast ekki á að agnúast út í þessa sjálfstæðu starfsemi lækna. Ýmist virðist sá málflutn- ingur byggður á vanþekkingu, þráhyggju eða hagsmunagæslu – og stundum ef til vill öllu í senn. Við hvetjum embættismenn í kerfinu, stjórnmálamenn og ekki síst ráð- herra heilbrigðismála til að viðurkenna þær staðreyndir um ágæti og hagkvæmni þessarar þjónustu sem blasa við öllum þeim sem skilja vilja. Samningur sérfræðilækna og SÍ rennur út um næstu áramót. Læknar hafa án ár- angurs kallað eftir áætlunum ráðherrans um margra mánaða skeið. Vísbendinguna fengu þeir loks í gegnum örstutta sjón- varpsfrétt. Samningurinn er að hennar mati til óþurftar og stórfelld uppbygging göngudeilda sjúkrahúsanna það sem koma skal í staðinn. Nokkuð sem gengur þvert á þróun í öðrum löndum. Öllum er ljóst að slík uppbygging tæki mörg ár og enginn sparnaður mun af hljótast. Við spurningu fréttamannsins um hvað myndi gerast í millibilsástandinu kom ekkert svar annað Háskaleikur heilbrigðisráðherrans Eftir Stefán E. Matthíasson og Þórarin Guðnason » Á síðasta ári tóku sér-fræðilæknar á ramma- samningi við Sjúkratrygg- ingar Íslands á móti um 500 þúsund heimsóknum. … Þannig er stofustarfsemi sérfræðilækna stærri en göngudeildarstarfsemi tveggja stærstu heilbrigðis- stofnana landsins. Stefán E. Matthíasson Stefán er formaður Samtaka heilbrigðis- fyrirtækja. Þórarinn er formaður Lækna- félags Reykjavíkur. Þórarinn Guðnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.