Morgunblaðið - 08.06.2018, Page 25

Morgunblaðið - 08.06.2018, Page 25
að hjálpa, finna svör við erfiðum spurningum og tengingum. Hann var líka skemmtilega sérvitur og batt ekki bagga sína sömu hnút- um og samferðamennirnir. Hann tók stanslaust í nefið, vann á nóttunni og svaf á daginn og engum datt í hug að hringja í hann fyrir hádegi. Hann hafði ótakmarkaðan aðgang að Héraðs- skjalasafninu á Sauðárkróki þar sem ljósið logaði heilu og hálfu næturnar, líkt og það gerði á lestrarsal Landsbókasafnsins forðum daga, þegar Pétur Zóp- hóníasson sat þar með þjóðar- gersemarnar. Ráðamenn Héraðsskjalasafn- ins eiga sannarlega heiður skilið, þeir kunnu að meta Gussa og verkin hans. En það er gömul saga og ný að heimurinn kann sjaldan að meta snillinga, og þegar ekkert fékkst greitt fyrir ættfræðina og að kreppti, saltaði þessi mikli ætt- fræðingur gærur og flatti fisk. Ís- lensk ættfræði hefur misst sinn besta mann og hans skarð verður vandfyllt. Eitt síðasta verkið hans var að hnýta endahnútinn á Borgfirsku æviskrárnar sem Þuríður Krist- jánsdóttir hafði helgað krafta sína, en það voru einmitt tvö fyrstu bindin af Borgfirsku ævi- skránum sem Gussi fékk í ferm- ingargjöf frá afa sínum og ömmu fyrir margt löngu. Ættfræði- áhugamenn minnast Gussa með aðdáun og þökk og Ættfræði- félagið þakkar honum hans frá- bæru störf. Einkadóttur hans, Guðnýju Klöru, og öðrum ástvin- um sendum við innilegustu sam- úðarkveðjur. Guðfinna Ragnarsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Guðmund Sigurð Jó- hannsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. klárað með miklum sóma þannig að eftir var tekið. Ingi kom að margskonar verk- efnum og virtist alveg sama hvað hann gerði, allt lék í höndum hans. Horfði oft á hversu vandvirkur hann var og spurði hann eitt sinn af hverju hann væri svona vand- virkur. Þá sagði hann söguna um föður sinn sem gerði miklar kröf- ur um vandvirkni í sínum verkum og sinna afkomenda. Þannig var Ingi alinn upp við að skila góðu verki og það sjáum við af þeim fjölmörgu verkefnum sem hann vann fyrir okkar félag. Ingi var þannig einstaklingur að ekki bara starfsmenn þekktu hann og einkum þeir elstu, heldur hafði hann svo ljúfa nærveru að börn okkar vissu vel um „hann Inga“. Það var svo áhugavert að börnunum fannst hann vera hluti af fjölskyldunni en til slíks þarf einstakan karakter. Þann karakt- er hafði Ingi í ríkum mæli. Oft ræddum við um tónlist enda aldir upp á tímum þungarokks, talandi ekki um svokallaðan hippatíma. Maður náði Inga á allt annað tilverustig þegar rætt var um ZZ Top eða aðrar þunga- rokkshljómsveitir. Við þessar um- ræður var eins og kæmi allt annar glampi í augu hans eins og hann væri með gamla draumatíma í hugskoti sínu. Vonandi er eitthvað um álíka tónlist þar sem hann er núna og þar getur hann notið hennar í meira mæli en hann gerði hér sem vinnandi maður í þessari tilveru. Kannski er það þannig að Ingi mat þungarokk sem alheim- sorku sem er allstaðar um alla himingeima og á öllum tilverustig- um. F.h. allra í Norðurflugi þá þökkum við Inga samveruna og vottum aðstandendum okkar dýpstu samúð en minning um skemmtilegan og ljúfan einstak- ling lifir. Reyndar væri það við hæfi gagnvart Inga að kveðja hann með því að segja „Rock on“, skála og gera friðartáknið og segja „hér sé friður“! F.h. Norðurflugs, Birgir Ómar Haraldsson. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Nauðungarsala Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Brekkugata 5, Akureyri, fnr. 215-6264 , þingl. eig. Arnar Gústafsson, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, fimmtudaginn 14. júní nk. kl. 12:00. Uppsalir, Eyjafjarðarsveit, fnr. 152817 , þingl. eig. Ingólfur Jóhann- sson, gerðarbeiðendur Eyjafjarðarsveit og Landsbankinn hf., þriðju- daginn 12. júní nk. kl. 14:00. Ægissíða 17, Grýtubakkahreppur, fnr. 216-1024 , þingl. eig. Madell ehf., gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Grýtubakkahreppur, miðvikudaginn 13. júní nk. kl. 14:00. Vetrarbraut 4, Fjallabyggð, fnr. 213-1009 , þingl. eig. Joachim ehf., gerðarbeiðendur Fjallabyggð og Birta lífeyrissjóður og Sjóvá- Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 14. júní nk. kl. 10:00. Aðalgata 10, Fjallabyggð, fnr. 213-0062 , þingl. eig. Joachim ehf., gerðarbeiðendur Fjallabyggð og Birta lífeyrissjóður og Sjóvá-Almen- nar tryggingar hf., fimmtudaginn 14. júní nk. kl. 10:30. Grenivellir 18, Akureyri, fnr. 214-6686 , þingl. eig. Stefanía Rós Stefánsdóttir, gerðarbeiðandi Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 12. júní nk. kl. 10:30. Skarðshlíð 14, Akureyri, fnr. 215-0283 , þingl. eig. Drífa Sól Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves og Akureyrarkaupstaður, þriðjudaginn 12. júní nk. kl. 10:00. Þingvallastræti 36, Akureyri, fnr. 215-1886 , þingl. eig. Hjörleifur Harðarson, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Byko ehf. og Sjóvá- Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 12. júní nk. kl. 10:45. Laugartún 19E, Svalbarðsstrandarhr, fnr. 216-0500 , þingl. eig. Elín Svava Ingvarsdóttir og Haraldur Ævarsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 12. júní nk. kl. 13:30. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 7 júní 2018 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi skipi verður háð á skrifstofu embættisins að Hafnarstræti 107, Akureyri, sem hér segir: INGI, ÞH, Þingeyjarsýslur, (FISKISKIP), fnr. 2484 , þingl. eig. Doddi Ásgeirs ehf, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 13. júní nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra 7 júní 2018 Tilboð/Útboð Skútustaðahreppur Auglýsing um deiliskipulag og breytingu á aðalskipulagi Jarðbaðanna Þann 24. maí s.l. samþykkti sveitarstjórn Skútustaðahrepps að endurskoðuð deiliskipulagstillaga og samhliða breyting á aðalskipulagi, með breyttri afmörkun og endurskoðaðri greinargerð deiliskipulagsins, yrðu auglýstar að nýju samkvæmt 1. mgr. 31. gr. og 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillögunum fylgir einnig umhverfisskýrsla sem er unnin skv. lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Markmið með gerð nýs deiliskipulags er m.a. að styrkja ferðaþjónustu á svæðinu, bregðast við aðstöðuleysi, bæta möguleika til baða í jarðgufu og jarðhitavatni og tryggja gæði uppbyggingar með því að beina uppbyggingu á ákveðin svæði, leggja göngustíga o.s.frv. Deiliskipulagið er byggt á núgildandi deiliskipulagi, en er uppfært í takt við ný lög og reglugerðir sem og þróun þjónustunnar á svæðinu. Gildandi deiliskipulag verður fellt úr gildi með samþykkt og gildistöku nýs deiliskipulags. Samhliða er lögð fram breyting á aðalskipulagi sveitarfélagsins þar sem leiðrétt er uppgefið flatarmáli svæðisins en einnig er gerð breyting á landnotkun. Í gildandi aðalskipulagi er landnotkun á svæðinu samfélagsþjónusta en gerð er tillaga um að breytt landnotkun verði verslun og þjónusta. Tillöguuppdrættir ásamt greinargerðum munu liggja frammi á skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni frá og með föstudeginum 8. júní til og með föstudeginum 20. júlí 2018. Þá eru tillögurnar einnig aðgengilegar á heimasíðu Skútustaðhrepps: http://www.skutustadahreppur.is undir Skipulagsauglýsingar (efst á forsíðu). Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 20. júlí 2018. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests. Skila skal athugasemdum skriflega til skrifstofu Skútustaðahrepps, Hlíðavegi 6, 660 Mývatni og/eða í tölvupósti á netfangið: gudjon@skutustadahreppur.is. Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillögurnar teljast þeim samþykkir. Skipulagsfulltrúi Skútustaðahrepps. Félagsstarf eldri borgara Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðb. kl. 9-16. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Vatnsleikfimi í sundlaug Boðans kl. 9.10. Vöflukaffi kl. 14.30. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10:30. Leikfimi kl. 12:50-13:30. Landið skoðað með nútímatækni kl. 13:35, Færeyar. Opið kaffihús 14:30-15:15. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl.10.15. Garðabær Jónshúsi/ félags- og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jóns- húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00. Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13:00. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12:20, Hleinum kl. 12:30, og frá Garðatorgi 7. kl. 12:40 og til baka að loknu félagsvist ef óskað er. Gerðuberg Kl. 08:30-16:00 opin handavinnustofa, kl. 09:00-12:00 glervinnustofa (sumarfrí), kl. 10:00-12:00 prjónakaffi kl. 10:00-10:20, leikfimi gönguhóps kl. 10:30, gönguhópur um hverfið kl. 13:00-16:00, bókband m/leiðbeinanda kl. 13:00-15:00, kóræfing (sumarfrí) kl. 12:20- 13:30 Qigong (sumarfrí) Gullsmári Handavinna kl 9.00. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Boccia kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl 13:00, kostar ekkert og allir velkomnir. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, dagblöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, bridge í handavinnustofu kl. 13, bingó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, boccia kl.10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, síðdegiskaffi kl.14.-15, allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum klukkan 10:30. Spilað í króknum klukkan 13:30. Bridge í Eiðismýri klukkan 13:30. Minnum á sumargleði félagstarfsins miðvikudaginn 13.júní. Gleðin fer fram á Skólabraut klukkan 15:00. Skemmtum okkur saman, grillum, syngjum, dönsum og tröllum. Verð þúsund krónur. Léttvín og bjór selt gegn vægu verði. Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr 10 er boðið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin. Ganga kl. 10.00. Hádegisverður kl. 11.30-12.15. Framhaldssaga kl. 13.00. Allir eru hjart- anlega velkomnir í Selið. Nánari uppl. hjá Maríu í síma 568-2586. Stangarhylur 4 Dansað sunnudagskvöld kl. 20.00-23.00. Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Ferð í Þjórsárdal 12. júní, um helsta virkj- anasvæði landsins. Brottför frá Stangarhyl kl. 8.30 og ekið um Hellis- heiði upp Skeið og um Þjórsárdal. Farið í Þjóðveldisbæinn með leiðsögn. Ekið upp fyrir Búrfellsvirkjun. Kaffihlaðborð í Árnesi, farið í Þjórsárstofu. Hellisheiðarvirkjun skoðuð. Fararstjóri Sigurður Þórðarson. Smáauglýsingar Hljóðfæri Gítarinn ehf. Stórhöfði 27, sími 552 2125, gitarinn.is Ukulele í úrvali Verð við allra hæfi Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Palacký University í Olomuc Tékklandi heldur inntökupróf í læknisfræði og tannlækningum í MK í Kópavogi 23. júní. Uppl. kaldasel@islandia.is og í fs 8201071 Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.