Morgunblaðið - 08.06.2018, Side 27
ing og Amalíu Björnsdóttur prófess-
or. Prófið fékk nafnið HLJÓM og er
notað í flestum leikskólum landsins.
Jóhanna, Ingibjörg og Amalía
hafa birt fjölmargar rannsóknar-
greinar sem tengjast HLJÓM og
sýna fram á vísbendingar um fyrir-
hugað lestrarnám barnanna, náms-
gengi þeirra og líðan í grunn-
skólanum.
Jóhanna stofnaði, ásamt sex öðr-
um talmeinafræðingum, Talþjálfun
Reykjavíkur, árið 1995, og sérhæfði
sig í meðhöndlun stams. Stam og
greining þess á leikskólaaldri var
umfjöllunarefni doktorsritgerðar
Jóhönnu. Hún hefur verið í forsvari
fyrir verkefni sem þróar samræmt
norrænt kerfi til að greina stam og
hefur fengið styrk til að vinna að
meðferð barna sem stama á skóla-
aldri. Hún hefur haldið fjölda fyrir-
lestra um stam, greiningu þess og
meðferð á ráðstefnum innan lands og
utan. Jóhanna var gerð að heiðurs-
félaga Málbjargar, félags um stam,
árið 2014.
Síðastliðinn áratug hefur Jóhanna
starfað við HÍ, fyrst sem lektor á
Menntavísindasviði en síðar einnig
við nýstofnað nám í talmeinafræði á
Heilbrigðisvísindasviði. Alls hefur
útskrifast 51 talmeinafræðingur á
þessum átta árum sem námið hefur
verið við lýði. Meistararitgerðir í tal-
meinafræði hafa stuðlað að auknum
rannsóknum í faginu og hafa reynst
afar mikilvægar. Jóhanna er vakin
og sofin yfir því að auka málfærni
barna og unglinga:
„Samfélaginu ber eftir bestu getu
að aðstoða hvern og einn til að ná
góðum tökum á eigin tungumáli og
geta tjáð sig í ræðu og riti án vand-
kvæða. Það eru að mínum dómi
grundvallar mannréttindi. Í þeirri
viðleitni þarf að rýna í aðferðir sem
rannsóknir hafa sýnt að eru árang-
ursríkar og finna leiðir sem gera öll-
um kleift að koma hindrunarlaust
hugsunum sínum á framfæri í mæltu
og rituðu máli.“
Þegar Jóhanna er ekki að vinna að
málþroska nýtur hún útiveru og
hleypur. Hún hefur verið í Trimm-
klúbbi Seltjarnarness í þrjá áratugi
og hlaupið um Nesið og nágrenni,
jafnt að sumri sem vetri. Hún fer auk
þess í vor- og sumarferðir með fé-
lögum í trimmklúbbnum og er í
ferðahópnum Flökkukindum: „Í ár
ætlum við á Tindfjöll, ganga á Aust-
fjörðum og fara ferð í kringum Mont
Blanc.
En ég er einnig lestrarhestur og
er í leshópnum Ztapanum sem hittist
reglulega.“
Fjölskylda
Eiginmaður Jóhönnu er Gunnar
Þór Bjarnason, f. 8.4. 1957, sagn-
fræðingur. Foreldrar hans: Bjarni
Guðbjörnsson, f. 29.11. 1912, d. 29.1.
1999, bankastjóri Útvegsbanka Ís-
lands og alþingismaður, og Gunnþór-
unn Björnsdóttir, f. 14.11. 1919.
Börn Jóhönnu og Gunnars Þórs
eru: 1) Bjarni Þór, f. 18.4. 1980, tölv-
unarfræðingur og raftónlistarmaður
og sambýliskona hans er Marie Gu-
illeray, lögfræðingur og tónlist-
arkona frá Frakklandi, en þau búa í
Hollandi og eiga soninn Evan, f.
2013. 2) Einar, f. 9.12. 1986, stjórn-
málafræðingur og starfsmaður Sím-
ans, og 3) Jóhann Helgi, f. 3.11. 1994,
nemi í tölvunarfræði við HR.
Bróðir Jóhönnu er Grímur Ein-
arsson, f. 3.1. 1962, tölvunarfræð-
ingur í Luneburg í Þýskalandi, en
eiginkona hans er Heidrun Hoff
kennari.
Foreldrar Jóhönnu: Hjónin
Thelma Grímsdóttir, f. 25.5. 1936,
fyrrv. starfsmaður við Landsbank-
ann í Vesturbæ og sinnti fjölda fé-
lags- og trúnaðarstarfa, og Einar
Grétar Þórðarson, f. 17.12. 1933, d.
30.4. 2017, rafverktaki og vann einn-
ig lengi fyrir AA-samtökin.
Jóhanna T.
Einarsdóttir
Björn Þórðarson
stórkaupm. í Rvík
Guðrún Hreinsdóttir
húsfr. í Rvík
Þórður Björnsson
prentari í Rvík
Sigríður Jónsdóttir
saumak. í Rvík
Einar Grétar Þórðarson
raffræðingur á Seltjarnarnesi
Jón Þorláksson
bóndi Varmadal á Kjalarnesi
Salvör Þorkelsdóttir
b. í Varmadal í Kjalarnesi
Gunnlaugur Jónsson
verkfr. og framkvstj.
Magnús Guðmunds-
son bankam.
Elín Bjarnadóttir húsfr. í Rvík
Ívar Páll Jónsson hag-
fræðingur og sérfræð-
ingur hjá Landsvirkjun
Guðmundur Guðmunds-
son fv. bankam. í Rvík
Hróbjartur
Hróbjartsson
arkitekt
Guðný Björk
Þorgeirs-
dóttir mynd-
listarkona
Jón Steinar Gunn-
laugsson lögm. og fv.
hæstaréttardómari
Hróbjartur Bjarnason stórkaupm. í Rvík
Þorgeir Jónsson b. og hestam. í Gufunesi
Gunnlaugur Ólafsson
leigubílstj. í Rvík
Gunnar Ingi Gunnarsson
heilsugæslulæknir og fv.
varaform. Frjálslynda flokksins
Elsa Þórðardóttir fv. starfsm. Flugleiða í Noregi
Gunnar Þorbjörn Gunnarsson
forstj. Íslenskra aðalverktaka
Bjarni Thoroddsen
athafnamaður
Ingibjörg
Ólafsdóttir
húsfr. í Rvík
Jóhann Thoroddsen
sálfræðingur
Bjarni Grímsson
b. og verslunarm. á Stokkseyri
Jóhanna Hróbjartsdóttir
húsfr. á Stokkseyri
Grímur Bjarnason
pípulagningarm. í Rvík
Helga Ólafsdóttir
verslunark. í Rvík
Ólafur Þórarinsson
steinsmiður í Rvík
Þorgerður Vilhelmína Gunnarsdóttir
húsfr. í Rvík
Úr frændgarði Jóhönnu T. Einarsdóttur
Thelma Grímsdóttir
fyrrv. þjónustustj. á Seltjarnarnesi
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Anna Svanlaugsdóttir Thor-stensen fæddist á Þverá íÖxnadal í Eyjafirði 8.6. 1918.
Foreldrar hennar voru Svanlaugur
Jónasson, bóndi í Öxnadal , síðar
verkstjóri hjá Akureyrarbæ, og k.h.,
Rósa Þorsteinsdóttir húsfreyja.
Foreldrar Svanlaugs voru Jónas
Jónsson og Sigurlaug Svanlaugs-
dóttir, bændur á Varmavatnshólum í
Öxnadal, en foreldrar Rósu voru
Þorsteinn Jónasson og Ragnheiður
Friðrika Jónsdóttir, bændur í Engi-
mýri í Öxnadal.
Systkini Önnu urðu 15 en tíu kom-
ust til fullorðinsára: Sigurlaug, hús-
freyja í Reykjavík; Eva, hjúkrunar-
kona í Reykjavík; Ragnheiður,
hjúkrunarkona í Reykjavík; Hjalti,
verkamaður í Reykjavík; Garðar,
leigubílstjóri á Akureyri; Hrefna,
húsfreyja á Akureyri; Hulda, hjúkr-
unarkona í Reykjavík; Sigríður,
framreiðslukona í Reykjavík; Þor-
steinn, starfsmaður bæjarfógeta á
Akureyri, og Helga, hjúkrunarkona
á Akureyri og í Reykjavík.
Eiginmaður Önnu var Tryggve D.
Thorstensen sem lést 1986, prentari.
Hann var sonur Ole Thorstensen,
skósmiðs í Reykjavík, og k.h., Anine
Thorstensen, húsfreyju. Börn Önnu
og Tryggve eru: Sonja Helene,
verslunarmaður í Reykjavík; Sig-
urður Ingvi sem lést 1999, flug-
umferðarstjóri; Tryggve Daníel,
vélatæknifræðingur.
Anna flutti með fjölskyldu sinni,
þá tveggja ára, til Akureyrar og ólst
þar upp fram á unglingsár. Á fimm-
tánda árinu fór hún til Reykjavíkur
þar sem hún réð sig í vist og var þar
búsett síðan.
Anna starfaði við framreiðslu um
áratugaskeið, fyrst á Hótel Skjald-
breið, auk þess sem hún var að-
stoðarþjónn á sumrin á Hótel Garði.
Anna varð aðstoðarstúlka hús-
varðar í ráðherrabústaðnum við
Tjarnargötu í Reykjavík 1950 og tók
síðan við því starfi sem reyndi á
samviskusemi, háttvísi og áræðni.
Hún gegndi því starfi í áratugi eða
nokkuð fram yfir sjötugt en dvaldi
síðustu árin á Seljahlíð.
Anna lést á 11.2. 1996.
Merkir Íslendingar
Anna Svanlaugsdóttir
100 ára
Áslaug Guðlaugsdóttir
95 ára
Guðfinna Stefánsdóttir
90 ára
Esther Valdimarsdóttir
85 ára
Rafn B. Helgason
Þóra Ingibjörg Jónsdóttir
80 ára
Bára Hildur Guðbjartsdóttir
Guðrún Alda Christensen
Sigurður Þorsteinn
Haraldsson
75 ára
Aðalheiður Angantýsdóttir
Gísli Guðnason
Guðjón Vilinbergsson
Hulda Lilý Árnadóttir
Nils Erik Gíslason
Steina Friðsteinsdóttir
70 ára
Anna Ólafsdóttir
Einar Jakobsson
Einar Jónsson
Garðar Kári Garðarsson
Guðrún Kristjánsdóttir
Halldóra Hermannsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Janusz A. Wroblewski
Kristín Björnsdóttir
Kristján Jakob Pétursson
Magnús Ó. Helgi Axelsson
60 ára
Einar G. Ársælsson
Eygló Jóhannesdóttir
Hannes Bergur Andrésson
Karen Níelsdóttir
Krzysztof C.V. Czupryniak
Laufey Helgadóttir
Petrún B. Sveinsdóttir
Sigurður Thoroddsen
50 ára
Anna Sigríður Pálmadóttir
Finnur Daníelsson
Guðmundur Jóhannsson
Helena Hörn Einarsdóttir
Inga L. Bjargmundsdóttir
Ralfs Stugis
Svanhildur Svansdóttir
Thi Thu Hao Bui
40 ára
Alina Iwona Kubiczek
Arngrímur Ingimundarson
Dzintars Lakutijevskis
Ekaterina Gribacheva
Haraldur Óskar Haraldsson
Jelena Hara
Jón Örn Arnarson
Kristín Jóhannsdóttir
Kristjana S. Einarsdóttir
Magnús S. Tryggvason
Romualdas Galdikas
Þóra K. Hafdal Flosadóttir
Þröstur Snær Eiðsson
30 ára
Andrzej Kowalski
Baldvin Logi Einarsson
Berglind Ýr Kjartansdóttir
Birkir Ingason
Björg Magnea Ólafs
Elías Mar Hrefnuson
Erlingur Kr Ævarr
Hjörleifsson
Guðlaugur Siggi
Hannesson
Guðmundur Örn
Guðjónsson
Hafliði Þór Þorsteinsson
Helen Rut Ástþórsdóttir
Helga Ómarsdóttir
Marion Charlotte Benetti
Narong Sornyoo
Til hamingju með daginn
30 ára Kristleifur ólst
upp í Reykjavík, býr í
Kópavogi, lauk BSc-prófi í
vélaverkfræði frá HÍ og er
verkefnastjóri hjá Eflu.
Maki: Berglind Svana
Blomsterberg, f. 1986, í
fæðingarorlofi.
Börn: Elvar, f. 2015, og
Valdís Björk, f. 2017.
Foreldrar: Guðjón Krist-
leifsson, f. 1953, og
Esther Þorvaldsdóttir, f.
1955. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Kristleifur
Guðjónsson
30 ára Jón Stefán býr á
Akureyri, lauk viðskipta-
fræðiprófi frá HA og er
vélasölumaður hjá VB
Landbúnaði.
Maki: Ásdís Helga Sigur-
steinsdóttir, f. 1983, tamn-
ingakona og reiðkennari.
Börn: Klara Lind, f. 2012,
og Elmar Freyr, f. 2013.
Foreldrar: Sævar Einars-
son, f. 1956, og Jóhanna
Gunnlaugsdóttir, f. 1960,
bús. á Stíflu, V-Land-
eyjum.
Jón Stefán
Sævarsson
30 ára Hólmfríður ólst
upp í Reykjavík, Horsens í
Danmörku og á Egils-
stöðum, býr í Reykjavík,
lauk prófi í markaðsfræði
og starfar hjá Pipar/
TBWA auglýsingastofu.
Maki: Daði Petersson, f.
1988, rafvirki.
Foreldrar: Þórunn Guð-
geirsdóttir, f. 1965,
grunnskólakennari á Eg-
ilsstöðum, og Einar Ólafs-
son, f. 1965, bygginga-
fræðingur á Egilsstöðum.
Hólmfríður Rut
Einarsdóttir