Morgunblaðið - 08.06.2018, Page 29

Morgunblaðið - 08.06.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þeim mun meira sem þú seilist eftir heiminum öllum, þeim mun hamingjusamari verður þú. Leitaðu að stærri og betri tæki- færum. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er ekki nóg að fá hugmyndir ef þú hrindir þeim ekki í framkvæmd. Sjálfsöryggi þitt hjálpar þér til að vinna fólk á þitt band. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þótt ábyrgð þín sé mikil og krefjist langra vinnudaga, máttu ekki gleyma sjálfri/ um þér í öllum önnunum. Gættu þess að tala svo skýrt að aðrir efist ekki um meiningu þína. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú býrð yfir mikilli einbeitingu og ættir því að geta afrekað margt í starfi. Leitaðu samt ekki langt yfir skammt því tækifærin eru við höndina. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Góður vinur leitar ásjár hjá þér og þú verður að gefa þér tíma til þess að sinna hon- um. Ekki þreyta vinnufélagana með endalaus- um sögum af einkahögum þínum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fátt er dýrmætara í lífinu en að eiga góða vini svo leggðu þig fram um að halda þeim. Þú kemst að leyndarmálum í dag í sam- ræðum við skyldmenni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur óaðfinnanlegan smekk og vilt endilega veita fólki ráð. Leyfðu sköpunarþrá þinni að njóta sín og losaðu þig þannig við innri spennu og kvíða. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Láttu af öllum ótta um það hvort og hvernig þú eigir að tjá tilfinningar þínar. Mikilvægir einstaklingar, áhrifafólk og yfir- menn kunna að meta það sem þú hefur fram að færa. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Taktu enga ákvörðun nema að vel athuguðu máli í dag. Mikil hætta er á misskiln- ingi og því er þetta mjög slæmur dagur fyrir mikilvægar samræður. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það getur haft slæmar afleiðingar að rugla saman draumi og veruleika. Haltu þeim sem gerir eitthvað sem þér mislíkar í hæfilegri fjarlægð – fjarri ástvinum þínum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Einhverjir vilja fá þig til þess að gefa vanhugsaðar yfirlýsingar um viðkvæma hluti. Forðastu að vera með stóryrtar yfirlýsingar um líf annarra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Óvæntar gjafir og greiðasemi gæti staðið þér til boða í dag. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfa/n þig í framkvæmd. Þessi limruleikur byrjaði 1. júní þegar Gunnar J. Straumland tókst á hendur „sjálfskoðun miðaldra hagyrðings“: Gunnar var öllum til ama, upphófst þá grátur og rama- kveinin og væl, hann kallaði um hæl: „Ætli mér sé ekki sama?“ Því Gunnar var leiðinda lúði svo lítið að öðrum hann hlúði. Hann röflaði og vældi og ragnaði og skældi, svo beint hann í fýluna flúði. Hagyrðingar skiptast á hring- hendum og limrusmiðir limrum. Örn Guðjónsson yrkir „Sumar“: Í sólbaði Sunna að vana á sólpalli reyndi að „tana“. Hún sólina sleikti er sauð hana’ og steikti uns hitinn varð henni að bana. Erni Guðjónssyni verður „ís- lenska rokið“ að yrkisefni: Að mæna á meyjar og góna Margeir oft gerði með dróna. En flygildið fauk og fjörinu lauk. Veðrið er vont fyrir dóna. Gunnar J. Straumland aftur: Þó sumarið sólinni týni er samt eins og örlítið hlýni. Ég vakna í þoku en varla er loku fyrir það skotið hún skíni. Kristjana Sigríður Vagnsdóttir gat ekki orða bundist: „Við á Vest- fjörðum höfum ekki farið á mis við sólina, fáir vordagar liðið, svo að ekki skini sól en votviðri hefur ver- ið mikið.“ Skaparinn hefur nú skenkt okkur sól skreyta nú jörðina blómin. Allt hefur lifnað sem áður hér kól allir fuglarnir skerpa hér róminn, Hallmundur Guðmundsson tekur upp limrutaktinn – „vesen“: Ef Bóthildur reyndi við Reyni þá reyndar varð Sveinn fyrir meini, ó væru þau glöð og þónokkuð gröð, – því Bóta var samvaxin Sveini. Hjálmar Freysteinsson skrifaði „glæpasögu“ á Fésbókarsíðu sína á þriðjudag: Þegar Kormákur kossinum stal um kvöl inn í bláfjallasal, þótti aðferðin hæpin, umbar þó glæpinn mærin úr Melrakkadal. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Limruleikur á Boðnarmiði Í klípu „ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ SEMÍ-HÆTTA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG SKAL GEFA ÞÉR BÍLINN MINN OG HLJÓMFLUTNINGSGRÆJURNAR EF VIÐ HÆTTUM VIÐ.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... uppskrift að örlæti. ÞETTA SKÝ LÍTUR ÚT EINS OG KÝR MUU! ÞAÐ BLÆS Í DAG ÞÚ GETUR EKKI EINU SINNI ÍMYNDAÐ ÞÉR ÞAÐ SEM DREPUR ÞIG EKKI GERIR ÞIG STERKARI! GASTU EKKI BARA SAGT „GJÖRÐU SVO VEL“? Víkverji telst ekkert sérlega fríður.Útlit hans er upp og ofan, sumir dagar eru vissulega betri en aðrir en- hann er í mesta lagi krútt þegar best lætur. Þegar verst lætur er vart á Víkverja horfandi. x x x En Víkverji lætur þetta sér að öllujöfnu í léttu rúmi liggja, enda hef- ur hann búið við þetta ástand alla ævi. Að eigin mati býr hann yfir fjölmörg- um kostum sem skipta meira máli en fríðleiki, sem er reyndar ansi hverfull þegar út í það er farið. Þess fyrir utan hefur hann ýmsum öðrum hnöppum að hneppa í daglegu amstri sínu en að góna armæðufullur í spegil og óska sér að spegilmyndin væri önnur. x x x Þó runnu á Víkverja tvær grímur ívikunni þegar Tekjublað Frjálsr- ar verslunar kom út og fréttir bárust af himinháum launum hinna og þess- ara. Víkverji fletti blaðinu spenntur, ekki vegna þess að hann vonaðist til að laun hans birtust í blaðinu heldur vegna þess að hann var áhugasamur um hvernig laun hans væru í saman- burði við laun annarra í áþekkum störfum. x x x Víkverji samgleðst af öllu hjartaþeim sem bera vænan skerf úr býtum fyrir dagsverk sitt. Hann veit af eigin reynslu af maður hefur sjald- an of mikið umleikis og hefur heyrt af afspurn að alltaf er hægt að finna nýj- ar og spennandi leiðir til að koma um- framfé í lóg. Hann getur þó ekki ann- að en velt því fyrir sér hvers vegna hans eigin laun koma svona illa út í samanburði við laun margra annarra. Víkverji er nefnilega býsna röskur til vinnu og leggur sig fram við að vera góður vinnufélagi. x x x Fyrir nokkru las Víkverji um rann-sókn sem sýndi fram á að fríðir fá hærri laun en ófríðir. Gæti þetta verið ástæðan fyrir vesölum launum Vík- verja? Hann ætlar altént að gera al- varlega gangskör að því skoða mögu- leika á að bæta eigið útlit, en í þeim efnum eru víst margar leiðir. vikver- ji@mbl.is Víkverji Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti (Síðara Tímóteusarbréf 3.16)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.