Morgunblaðið - 08.06.2018, Síða 33

Morgunblaðið - 08.06.2018, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2018 Anna Margrét Björnsson amb@mbl.is Tónlistarmaðurinn Hákon Aðal- steinsson hefur gengið til liðs við hina goðsagnakenndu bandarísku rokksveit The Brian Jonestown Massacre sem er leidd af ólíkindatól- inu Anton Newcombe. Hákon spilar með sveitinni á tónleikaferðalagi um Bandaríkin og Ástralíu. Hákon, sem hefur verið búsettur í Berlín í nokkur ár, er forsprakki hljómsveitarinnar Third Sound og hefur spilað á gítar með hljómsveitum eins og Singapore Sling og Gunman and the Holy Ghost. Anton Newcombe er mikill Íslandsvinur og eyddi sérstaklega tíma hér á landi á árunum 2007-2009. Hákon og Anton héldu kynnum sín- um áfram í Berlín, þar sem sá síð- arnefndi hefur einnig búið um árabil. Hákon er fyrsti Íslendingurinn til að spila með The Brian Jonestown Massacre, hljómsveit sem var stofn- uð í San Francisco og öðlaðist frægð á tíunda áratugnum, ekki síst vegna heimildarmyndarinnar Dig! frá árinu 2004. Hún fjallaði um stormasamt samband sveitanna The Brian Jones- town Massacre og Dandy Warhols og hlaut Sundance-kvikmyndaverð- launin. Hákon segist ekki hafa þurft mik- inn umhugsunarfrest þegar honum bauðst að ganga til liðs við hljóm- sveitina. „Anton spurði mig hvort ég væri til í þetta þegar annar meðlimur gat ekki farið með á tónleika- ferðalagið af persónulegum ástæð- um. Á þeim tíma var ég í frekar öm- urlegri tímabundinni vinnu þannig að ákvörðunin var auðveld,“ segir hann. Samdi lag á nýja plötu Hákonar Hákon segist hafa kynnst Anton fyrst þegar hann spilaði með ís- lensku rokksveitinni Singapore Sling. „Við túruðum með Brian Jonestown Massacre bæði í Banda- ríkjunum og svo um England. Eftir að ég flutti til Berlínar kynntumst við Anton enn betur og höfum unnið að ýmsum tónlistarverkefnum saman.“ Sveit Hákons, Third Sound, hefur gefið út þrjár plötur en sú síðasta, All Tomorrow‘s Shadows, kom út ný- verið. Anton samdi eitt lagið með Hákoni á plötunni. „Þegar við vorum að klára demó upptökur fyrir nýju plötuna sömdum við lag sem við viss- um ekki hvað við áttum að gera við. Hvorki ég né gítarleikarinn fundum sönglínu sem passaði. Mér datt í hug að senda Antoni lagið og athuga hvort hann gæti fundið melódíu við það. Hann hafði samband tveimur tímum seinna og var búinn að semja texta og taka upp söng og bæta við stefi. Svona eins og maður gerir,“ segir Hákon. Útkomuna má sjá í nýju Third Sound-lagi og myndbandi sem nefnist „Photographs“. Skemmtilegast að spila á vesturströnd Bandaríkjanna The Brian Jonestown Massacre á sér stóran og dyggan hóp aðdáenda og Hákon hefur sannarlega orðið var við það á tónleikaferðalaginu. „Það er fólk sem bíður fyrir utan rútuna okkar tímunum saman bara til að geta gefið Antoni gjafir eða talað við hann. Sjálfur hef ég ekki lent í neinu veseni en alls konar fólk hefur komið og spjallað við mig, bæði mjög furðu- legt lið en líka frábært fólk sem hef- ur verið gaman að kynnast.“ Hákon segir Levitation Festival í Texas hafa verið eitt skemmtilegasta „gigg“ ferðalagsins en einnig hafi verið mjög gaman að spila á vestur- strönd Bandaríkjanna, í Portland, San Francisco og Los Angeles. Nú er hann hins vegar staddur í Ástr- alíu, þar sem sveitin er að hefja tón- leikaferðalag sitt. „Við spilum fyrstu tónleikana hér á morgun í Perth og munum einnig spila á Nýja-Sjálandi. Þessi túr end- ar 25. júní en svo byrjum við annan túr í Evrópu í ágúst og hann endar ekki fyrr en í október með ein- hverjum hléum á milli.“ Datt kylliflatur á sviðinu En hvernig er lífið „á túr?“ Hefur sveitin eitthvað róast í drykkjuvenj- um sínum? „Mér líkar þetta líf bara mjög vel. Tíminn hefur liðið ótrúlega hratt. Menn eru orðnir eldri og sumir drekka bara lítið sem ekkert lengur. Miðað við sögurnar sem ég hef heyrt held ég að þetta sé allt mun rólegra núna en það var áður,“ svarar Hákon. Versta uppákoma Hákonar hingað til á ferðalaginu var þegar hann var að leika með sveitinni í Los Angeles. „Við vorum að ganga á svið í niða- myrkri og ég var með gítar í hend- inni. Ég sá ekki mónitor á sviðinu, datt um hann kylliflatur og braut gítarinn um leið og sviðstjöldin komu upp. En hinir meðlimir bandsins sögðu að þá væri ég loksins orðinn alvörumeðlimur, maður verður víst að gera einhvern skandal á sviði til að vera alvöruhluti af bandinu.“ Hákon ætlar að fara með hljóm- sveitina sína, Third Sound, á túr um Evrópu í júlí og Fuzz Club Festival í Eindhoven í ágúst og slær því hvergi slöku við. „Okkur langar að koma til Íslands en erum ekki með plön um það ennþá. En ég veit að The Brian Jonestown Massacre langar einnig mjög mikið að koma aftur til Íslands þannig að ef það er einhver tónleika- skipuleggjandi þarna úti að lesa þetta þá er um að gera að hafa sam- band.“ Goðsagnakennd Hljómsveitin The Brian Jonestown Massacre var stofnuð í byrjun tíunda áratugarins í San Francisco. Hákon er annar frá vinstri. Á tónleikum Brian Jonestown Massacre á sér marga og dygga aðdáendur. „Mér líkar þetta líf bara mjög vel“  Hákon Aðalsteinsson gítarleikari spilar með The Brian Jonestown Massacre á tónleikaferð hljóm- sveitarinnar um heiminn  Þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um þegar honum bauðst starfið JÓN BERGSSON EHF RAFMAGNSPOTTAR Einstaklega meðfærilegir og orkunýtnir pottar sem henta jafnt í bústaðinn sem og í þéttari byggð Kletthálsi 15 | 110 Reykjavík | Sími 588 8881 | www.jonbergsson.is | jon@jonbergsson.is ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.