Morgunblaðið - 20.07.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is
Innblásið af Aalto
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Leifsstöð Gjaldtaka hefur verið stöðvuð á rútustæðum vallarins.
Fjöldi rútufyrirtækja sem selt hafa
rútuferðir í Leifsstöð mun lækka
verðskrá sína á nýjan leik eftir að
gjaldtaka á ytri rútustæðum við
flugstöðina var stöðvuð tímabund-
ið. Samkeppniseftirlitið tók bráða-
birgðaákvörðun í fyrradag þar sem
Isavia var gert að stöðva gjaldtöku
á ytri rútustæðum. Gjaldtakan tók
upphaflega gildi 1. mars sl. í fram-
haldi af útboði og samningum um
nýtingu tveggja hópferðafyrir-
tækja á nærstæðum flugstöðvar-
byggingarinnar. Innheimtar voru
7.900 kr. fyrir minni bíla og 12.900
kr. fyrir stærri bíla, en ráðgert var
að verðið myndi hækka í 19.900 kr.
1. september nk. Ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins um stöðvun
gjaldtökunnar gildir út árið, en
heimild er til að framlengja hana.
Fyrirtæki munu lækka verð
Hallgrímur Lárusson, eigandi
rútufyrirtækisins Snæland Tra-
vel, segir að fyrirtækið muni
lækka verð á ferðum í Leifsstöð í
kjölfar aðgerða Samkeppniseftir-
litsins. „Við hækkuðum verðið á
ákveðnum ferðum eftir að gjald-
takan hófst. Við munum hins veg-
ar lækka það fljótlega en um leið
taka áhættuna á því að gjaldtakan
byrji aftur,“ segir Hallgrímur og
bætir við að erfitt sé fyrir að
rútufyrirtæki að breyta verði,
enda séu samningar gerðir til
langs tíma. „Við erum að semja
langt fram í tímann þannig að við
gátum ekkert hækkað verð til
allra þegar þessi gjaldtaka hófst.
Nú verður verðið því annaðhvort
óbreytt eða mun lækka,“ segir
Hallgrímur.
Svipað er uppi á teningnum hjá
rútufyrirtækinu Gray Line, en þar
hefði verið hætt með rútuferðir til
Keflavíkurflugvallar hefði gjald-
takan ekki verið stöðvuð. Þórir
Garðarsson, stjórnarformaður
Gray Line, segir að nær öll sam-
keppni hefði lagst af ef Samkeppn-
iseftirlitið hefði ekki gripið inn í.
„Þetta er fyrst og fremst sigur fyr-
ir samkeppnina enda getur ekkert
fyrirtæki staðið undir þessu gjaldi.
Við hefðum til dæmis hætt ferðum
út á flugvöll,“ segir Þórir. Spurður
hvort fyrirtækið muni lækka
verðskrá sína í kjölfar stöðvunar á
gjaldtökunni segir Þórir það ólík-
legt en í skoðun.„Við vorum ekki
enn búnir að setja þetta út í verð-
lagið að ráði en það hefði enginn
getað staðið undir þessu gjaldi,“
segir Þórir.
Önnur rútufyrirtæki sem blaða-
maður Morgunblaðsins ræddi við
sögðu hins vegar öll að lækkanir á
verðskrá vegna úrskurðarins væru
í bígerð. aronthordur@mbl.is
Verðskrá rútufyrirtækja lækkar
Úrskurður Samkeppniseftirlitsins um stöðvun gjaldtöku á rútustæðum við Leifsstöð sigur fyrir mörg
rútufyrirtæki Gray Line hefði hætt með ferðir á Keflavíkurflugvöll hefði gjaldtaka ekki verið stöðvuð
ardegi. Þá voru haldnar hátíðir í öll-
um sveitum landsins.
Ég var þá formaður ungmenna-
félagsins í minni sveit og við héldum
náttúrulega heilmikla veislu.“
Anna er fædd 12. júní 1918. „Ég er
nýorðin hundrað ára. Þessi dagur er
alveg dýrlegur,“ segir Anna. Lárus
man vel eftir lýðveldishátíðinni 1944.
„Lýðveldishátíðin var haldin á dýrð-
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Ís-
lands var blásið til veglegrar veislu á
Hrafnistu í gær, en hátíðin var sér-
staklega haldin til heiðurs svo-
nefndum fullveldisbörnum, eða þeim
sem fæddir eru 1918 eða fyrr. Alls
boðuðu um tuttugu fullveldisbörn
komu sína í veisluna.
Þegar blaðamann Morgunblaðsins
bar að garði var húsfyllir í sal Hrafn-
istu. Ýmis skemmtiatriði fóru fram í
anda fullveldisins og Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands, flutti
ávarp. Að dagskrá lokinni var boðið
upp á fullveldisköku sem landslið bak-
ara átti hugmyndina að í samvinnu við
stjórn Landssambands bakarameist-
ara. Er kakan byggð á vinsælum upp-
skriftum frá fullveldisárinu 1918.
Morgunblaðið náði tali af tveimur
fullveldisbörnum, systkinunum Lár-
usi Sigfússyni og Önnu Sigfúsdóttur,
ættuðum frá Strandasýslu. Lárus er
fæddur 5. febrúar 1915. „Þessi dagur
er búinn að vera draumadagur. Full-
veldisdagurinn var reyndar 1. desem-
ber. Ég man fyrst eftir mér veturinn
1918, snemma vetrar eftir nýárið. Á
þrettándanum 1918 kom hafísinn inn
að Hrútarfirði og fyllti alla firði norð-
ur eftir öllu landi, en svo seinna á
árinu kom mikil óáran inn í landið.
Drepsóttir, harðindi, eldgos og hvað-
eina. Það gekk mikið á seinni hluta
ársins,“ segir hann.
Morgunblaðið/Valli
Prúðbúnar Íslendingar, 100 ára og eldri, fjölmenntu á hátíðina á Hrafnistu.
Fullveldishátíð haldin
hátíðleg á Hrafnistu
Veislan var tileinkuð þeim sem fæddir eru 1918 og fyrr
Norska skipið Kings Bay kom til
Akureyrar í gærdag, en skipið er
smíðað árið 2014 og er eitt af nýj-
ustu fiskveiðiskipum Norðmanna.
Um borð eru 10 skipverjar auk 7
manna rannsóknateymis, en sam-
kvæmt upplýsingum frá Birni
Sævile skipstjóra er hópurinn í
makrílleit fyrir austan land og í
norðurkantinum. Skipt verður um
áhöfn á Akureyri áður en haldið
verður til Grænlands.
Norskur makrílleiðangur við Ísland
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Þorsteinn Ingólfs-
son, fyrrverandi
sendiherra og ráðu-
neytisstjóri, lést í
gær, 73 ára að aldri.
Þorsteinn fæddist í
Reykjavík 9.desem-
ber 1944 og ólst þar
upp. Foreldrar Þor-
steins voru Ingólfur
Þorsteinsson, yf-
irlögregluþjónn hjá
rannsóknarlögregl-
unni í Reykjavík, og
Helga Ingveldur
Guðmundsdóttir
húsfreyja.
Á sínum yngri árum stundaði
Þorsteinn sund af kappi og hlaut
verðlaun fyrir. Hann stundaði nám
við Verzlunarskóla Íslands og út-
skrifaðist þaðan árið 1965.
Þá útskrifaðist hann sem Cand.-
juris frá Háskóla Íslands vorið
1971 með fyrstu einkunn.
Á námsárum sínum starfaði
hann sem fulltrúi hjá Almenna
bókafélaginu og sem stundakenn-
ari við Flensborgarskólann í Hafn-
arfirði og við Verzlunarskóla Ís-
lands.
Eftir útskrift hóf hann störf
sem fulltrúi í utanríkisráðuneytinu
en starfaði síðar m.a. sem sendi-
ráðsritari í Washington D.C.,
varafastafulltrúi Íslands hjá
EFTA og alþjóðastofnunum í Genf
og sem ráðuneytis-
stjóri utanríkis-
ráðuneytisins. Þá
var hann aðal-
fulltrúi og yfir-
maður skrifstofu
Norðurlanda- og
Eystrasaltsríkja í
stjórn Alþjóða-
bankans í Wash-
ington á milli 2003
og 2006 og var
fulltrúi Íslands í
embættis-
mannanefnd Norð-
urskautsráðsins.
Hann gaf sig
nokkuð að félagsstörfum og var
m.a. fulltrúi stúdenta í Háskóla-
ráði 1969-1970, framkvæmdastjóri
Félags Sameinuðu þjóðanna á Ís-
landi 1972-1973 og ritari utan-
ríkismálanefndar Alþingis 1990-
1991.
Þorsteinn skilur eftir sig eigin-
konu, Hólmfríði Kofoed Hansen,
en þau giftust þann 21. apríl 1994
eftir nokkurra ára sambúð og
hefðu átt silfurbrúðkaupsafmæli
um næstu páska.
Þá skilur Þorsteinn eftir sig tvö
börn úr fyrra hjónabandi, en hann
var giftur Guðrúnu Valdísi Ragn-
arsdóttur á árabilinu 1967-1986.
Börn þeirra eru Ingólfur, tölv-
unarfræðingur, og Hanna Valdís,
viðskiptafræðingur.
Andlát
Þorsteinn Ingólfsson,
fyrrverandi sendiherra