Morgunblaðið - 20.07.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.07.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018 og vonast Marit til þess að vegna þess verði lítill uppskerubrestur á því. „Mjólkurkýrnar þurfa mikið gras, sem þær fá ekki þessa dagana í Nor- egi og ef við fáum ekkert gras þurfum við að slátra mörgum þeirra. Ég finn til sérstakrar ábyrgðar, þar sem ég Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Marit Fougner, norskur bóndi, er stödd hér á landi ásamt kollega sín- um, Per Tore Teksum, til að kaupa hey af íslenskum bændum. „Við erum að reyna að finna bænd- ur sem eru fúsir til að selja norskum bændum hey sem þurfa alvarlega á því að halda. Það er vegna þess að við eigum ekki nóg hey fyrir gripina okk- ar og alls ekki nóg til að það geti enst okkur út næsta vetur,“ segir Marit. Í gær fundaði hún ásamt Per með Mat- vælastofnun og vonast þau eftir já- kvæðum viðbrögðum frá stofnuninni til þess að fá að flytja heyið úr landi. Þau hafa einnig fundað með norska sendiráðinu á Íslandi. Rann blóðið til skyldunnar Alvarlegur fóðurskortur er í Nor- egi vegna mikilla þurrka. Marit segir að hún hafi ákveðið að koma til lands- ins, þar sem henni hafi runnið blóðið til skyldunnar. „Ég er sjálf bóndi og ég finn til ábyrgðar til að hjálpa koll- egum mínum. Ástandið í Noregi er mjög slæmt og þar ríkir í raun hættu- ástand. Ég er bóndi nálægt Lille- hammer og í því umdæmi eru margar mjólkurkýr. Það tekur þrjú til fjögur ár að rækta góða mjólkurkú svo það er afar sorglegt að þurfa að slátra þeim vegna fæðisskorts,“ segir Marit, sem er sjálf svína- og geitabóndi. Þurfa að slátra gripum Marit ræktar bygg á sínum ökrum í Noregi. Byggið er nokkuð harðgert rækta bygg. Ég bauð einhverjum ná- granna minna upp á að fá hjá mér bygg áður en uppskera yrði, þar sem ég vildi gefa þeim möguleika á að upp- skera eitthvað. Svo vona ég bara að það rigni svo að einhver uppskera verði,“ segir hún. Marit las um það í dagblaði að norska ríkisstjórnin hygðist ræða við Íslendinga um hugsanlega sölu á heyi og ákvað því að koma til landsins. „Ég þekki eitthvað af fólki hér svo að ég ákvað að láta slag standa. Ísland er mjög hreint land, sérstaklega í samanburði við önnur lönd í Evrópu, og ég tel að það væri mjög gott að fá héðan hey. Hér hefur mikið rignt og ég er viss um að einhver getur selt okkur hey,“ segir hún. Íslenskt hey fýsilegt Mbl.is greindi frá því fyrr í vikunni að fulltrúar norskra yfirvalda hefðu fundað á mánudag með fulltrúum Matvælastofnunar í þeim tilgangi að skoða kosti þess að hey yrði flutt frá Íslandi til Noregs. Í samtali við blaða- mann sagði formaður Norsku bænda- samtakanna að það væri undir inn- flutningsaðila komið að sjá til þess að hey stæðist norskar kröfur um heil- næmi. Íslenskt hey telst þá góður kostur enda strangar kröfur gerðar hér á landi til matvælaframleiðslu. Kom til Íslands af brýnni nauðsyn  Vonast til að geta keypt hey af íslenskum bændum og flutt það heim vegna mikilla þurrka í Noregi  Finnst hún ábyrg fyrir því að aðstoða kollega sína sem eiga mjólkurkýr og óttast um þær Morgunblaðið/Árni Sæberg Bændur Marit og Per eru stödd hérlendis til að freista þess að flytja út hey vegna skorts á því í Noregi. Miklir þurrkar » Norsk yfirvöld hafa gripið til aðgerða vegna fóðurskorts sem einfalda innflutning á heyi. » Norðmenn geta ekki fengið hey frá öðrum löndum í Skandinavíu, þar sem miklir þurrkar hafa einnig plagað Danmörku, Svíþjóð og Finnland. » Reglur um matvælafram- leiðslu eru mjög strangar bæði á Íslandi og í Noregi. GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is RenaultKADJAR&CAPTUR Sparneytnir sportjeppar Eigumnokkur eintök af Kadjar og Captur á hagstæðuverði. E N N E M M / S ÍA / N M 8 9 0 3 1 Kíktu á kjarabilar.is460.000 kr. ALLT AÐ SPARNAÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.