Morgunblaðið - 20.07.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018
Malbikunarverkefni sumarsins
ganga vel þrátt fyrir vætutíð, segir
Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður
framkvæmdadeildar hjá Vegagerð-
inni. Skilyrði til vegaframkvæmda
á höfuðborgarsvæðinu hafa ekki
verið með besta móti og því hafa
stór verkefni setið nokkuð á hak-
anum það sem af er sumri.
„Okkur er að takast þetta þótt
ótrúlegt megi virðast og erum lang-
leiðina komnir með það sem við ætl-
uðum að gera. Þeir sem eru með
klæðningarnar úti á landi eru með
beina línu við sérstaka veðurfræð-
inga og þeir fara með flokkana á
þau svæði þar sem er tryggt
veður,“ segir Óskar.
Malbikun tekst
þrátt fyrir vætu
Uppsteypa gólfs nýrrar göngu-
brúar yfir Breiðholtsbraut, á milli
Selja- og Fellahverfis, hefst kl. 7:30
í fyrramálið, laugardaginn 21. júlí.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum
ljúki kl. 14:30 sama dag og á meðan
þær standa yfir verður Breiðholts-
braut lokuð á milli gatnamóta
Seljaskóga og Jaðarsels. Einnig
verður aðgangur frá Norðurfelli
lokaður.
Í tilkynningu frá Reykjavíkur-
borg og Vegagerðinni er vegfar-
endum bent á hjáleið um Seljabraut
og að fylgjast með vegmerkingum.
Breiðholtsbraut
lokuð á morgun
„Við erum byrjuð á gamla hress-
ingarhælinu, það er búið að end-
urgera húsið að utan, en eigum enn
nokkuð í land með að klára fram-
kvæmdir innandyra,“ segir Birkir
Jón Jónsson, formaður bæjarráðs
Kópavogs, spurður hvernig gangi
að gera upp Hressingarhælið, sem
var teiknað af Guðjóni Sam-
úelssyni, og gamla Kópavogsbæinn
sem var byggður árin 1902-1904.
Báðar byggingarnar eru friðaðar
og standa á hinni sögufrægu jörð
Kópavogi. „Framkvæmdir eru enn
ekki hafnar við gamla Kópa-
vogsbæinn, viðræður standa yfir
um samstarf við Lionsklúbb Kópa-
vogs, en engin ákvörðun hefur enn
verið tekin, þetta er á við-
ræðustigi,“ segir Birkir Jón, en ný
bæjarstjórn eigi eftir að ákvarða
frekar um notkun bygginganna og
hraða viðgerða og viðhalds á þeim.
Mikill áhugi sé hjá bæjarbúum fyrir
vegsemd og varðveislu húsanna.
ernayr@mbl.is
Hressingarhælið fær
loks andlistlyftingu
Morgunblaðið/Hari
Kennileiti Gamli Kópavogsbærinn var byggður á ár-
unum 1902 til 1904 og þekkja margir til hússins.
Morgunblaðið/Hari
Sögulegt Hressingarhælið var teiknað af Guðjóni Sam-
úelssyni og þykir mörgum það reisulegt og fallegt.
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
ÚTSALA
40% afsláttur
af öllum vörum
SUMARauka
afsláttur
af allri útsöluvöru
Str. 3656
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
Buxur, kjólar,
toppar, jakkar, bolir
Undirbúningur fyrir einn stærsta
tónleikaviðburð íslenskrar sögu er
nú í fullum gangi í Laugardal. Rokk-
hljómsveitin Guns n’ Roses mun
leika fyrir þúsundir manna á þriðju-
daginn kemur, en um 160 manns
vinna nú að uppsetningu sviðsins.
Jón Bjarni Steinsson, skipuleggj-
andi tónleikanna, segir allt hafa
gengið mjög vel hingað til, en undir-
búningur í dalnum hefur nú staðið
yfir síðan á föstudag og uppsetning
sjálfs sviðsins síðan á mánudag.
Spurður hvort Guns n’ Roses sé
spiluð í græjunum meðan unnið er
svarar Jón: „Við heyrum allavega
mikið í þeim úr spinningsölunum hjá
World Class hérna hinum megin við
götuna.“
Spurður hvort vinnufólk verði
fyrir vikið orðið þreytt á hljómsveit-
inni þegar að tónleikunum kemur
svarar Jón Bjarni: „Það eru engar
líkur á því!“ teitur@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hátt í 200 manns vinna við sviðið