Morgunblaðið - 20.07.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.07.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018 Á morgun, laugardaginn 21. júlí, verður þess minnst að fimm ár eru liðin frá því að Fischersetrið á Sel- fossi var stofnað. Af því tilefni verður efnt til samkomu sem hefst í Laug- ardælakirkju, skammt frá Selfossi, kl. 15:30. Í garði hennar er skák- meistarinn Bobby Fischer jarð- settur, en hann lést 17. janúar 2008. Séra Krist- inn Ágúst Frið- finnsson, fyrrver- andi sóknar- prestur Selfoss- prestakalls, sér þar um minning- arathöfn og Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, flytur ávarp. Þar mun Davíð segja frá aðdraganda þess að Alþingi ákvað að að veita skákmeistaranum ríkisborgararétt en því fylgdu margvísleg átök að tjaldabaki þó að sjálf afgreiðsla máls- ins á Alþingi tæki aðeins 12 mínútur. Að athöfn lokinni verður boðið upp á kaffi í Fischersetri á Selfossi þar sem Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrverandi forseti Skáksambands Íslands, mun flytja ávarp. Hann var í sendinefndinni sem fór til Japan árið 2005 og sótti Fischer þangað úr fang- elsi. Þá var Guðmundur forseti Skák- sambands Íslands þegar heimsmeist- araeinvígið í skák var haldið í Reykjavík, þar sem Bobby Fischer sigraði Boris Spassky. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson tengist málum Fischers svo að hann var prestur við Laugardælakirkju en vissi ekki um útför Fischers við kirkjuna fyrr en hún var afstaðin. Átti þó eftir að ann- ast síðustu útför eftir að hann var grafinn upp til að ná úr honum lífsýni. Allir eru velkomnir til athafnar- innar á Selfossi. Fischersetrið er í gamla Landsbankahúsinu, Austur- vegi 21 á Selfossi. Þar eru varðveittir ýmsir gripir sem tengjast heims- meistaraeinvíginu árið 1972 – svo og munir sem voru í eigu Fischers. Á staðnum er einnig aðstaða fyrir skák- fólk og er hún ágætlega nýtt. sbs@mbl.is Fischers minnst í Laugardælum  Davíð segir frá veitingu ríkis- borgararéttarins Morgunblaðið/RAX Laugadælakirkja Hér hefst sam- koman kl. 15:30 á morgun. Bobby Fischer Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is ,,Köld böð hafa ekki svokölluð bólgu- eyðandi áhrif. Áhrifin eru meira verkjastillandi og fyrirbyggja frekari eymsli og verki sem kunna að koma eftir æfingu.“ Þetta segir Hjörtur Ragnarsson sjúkraþjálfari. Köld böð hafa notið vaxandi vin- sælda á Íslandi undanfarin ár. Skiptar skoðanir eru á því hvort þau hafi jákvæð áhrif á heilsuna. Íþróttamenn nýta sér þau gjarnan eftir strangar æf- ingar, þar sem þau eru talin draga úr bólgu og harðsperrum. Böð- in eru einnig sögð bæta andlega líðan. Erfitt að meta ávinning Hjörtur Ragnarsson sjúkraþjálfari segir að rannsóknir á áhrif þess að sitja í einhvern tíma í köldu vatni séu stutt á veg komnar. ,,Ef viðkomandi finnst það virka, þá er það ljómandi gott.“ Hann segir sviðið vera tiltölu- lega nýtt og því erfitt að meta hvort böðin beri árangur almennt. Hjörtur segir að áhrif baðanna á líkamann séu ekki mikil en þó komi þau fram í vissum tilfellum. ,,Kalda baðið hjálpar líkamanum að jafna sig eftir stranga þolþjálfun. Tíu mínútna seta í 8 gráðu köldu baði eykur aðlög- unarhæfni í vefjum og hefur því góð áhrif á endurheimt.“ Hins vegar hefur ekki verið sýnt fram á sömu áhrif kaldra baða eftir annars konar þjálfun, t.d. styrktar- þjálfun. Um leið og líkaminn er undir miklu álagi verður bólguástand í vöðvavefjum. Þá geta böðin haft góð áhrif á tilkomandi vöðvaverki og eymsli, t.d. harðsperrur. „En eftir styrktarþjálfun eða lyft- ingar þar sem markmiðið er að stækka vöðvana getur kalt bað haft engin eða jafnvel neikvæð áhrif á vöðvastækkun,“ segir Hjörtur. Hann tekur fram að efnið sé ekki þaulrannsakað og að líkamleg áhrif kælingarinnar séu ekki mikil. Hins vegar hafi lengi verið vitað að kæling sé verkjastillandi. Varasamt er fyrir þá sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma að fara í köld böð. ,,Við viljum ekki bylta taugakerfinu hjá veikum einstakling- um. Þeir sem eru með hjarta- og æða- sjúkdóma ættu að fara varlega í köldu böðin.“ Kaldir pottar eru aðgengilegir í öll- um sundlaugum Reykjavíkur nema Árbæjar- og Breiðholtslaug. Stein- þór Einarsson, skrifstofustjóri ÍTR, segir að verkið sé í vinnslu. ,,Pott- arnir eru í hönnun. Svo þarf að bjóða út verkið en við búumst við því að þeir verði komnir í vetur.“ Köld böð hafa verkja- stillandi áhrif á líkamann  Kaldir pottar njóta vaxandi vin- sælda á Íslandi Morgunblaðið/Valli Ískalt Margir hætta sér í ískalt vatnið. Köld böð eru talin bera árangur eftir strangar þolæfingar en rannsóknum á þeim er þó ábótavant. Hjörtur Ragnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.