Morgunblaðið - 20.07.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 20.07.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018 20. júlí 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 106.97 107.49 107.23 Sterlingspund 139.0 139.68 139.34 Kanadadalur 80.78 81.26 81.02 Dönsk króna 16.642 16.74 16.691 Norsk króna 12.949 13.025 12.987 Sænsk króna 11.966 12.036 12.001 Svissn. franki 106.7 107.3 107.0 Japanskt jen 0.9462 0.9518 0.949 SDR 149.48 150.38 149.93 Evra 124.05 124.75 124.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.9401 Hrávöruverð Gull 1223.45 ($/únsa) Ál 2038.0 ($/tonn) LME Hráolía 71.74 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Gildi lífeyris- sjóður leggur til að stjórn HB Granda verði falið að und- irbúa að koma á fót tilnefningarnefnd innan félagsins í samræmi við leið- beiningar um stjórnarhætti fyrirtækja, sem gefnar hafa verið út af Viðskiptaráði, SA og Kauphöllinni. Mun Gildi leggja fram tillögu til álykt- unar þessa efnis á hluthafafundi HB Granda, sem boðað hefur verið til föstudaginn 27. júlí næstkomandi í því skyni að kjósa tvo nýja stjórnarmenn. „Yrði slík tillaga samþykkt væri heppilegt að tilurð og vinna tilnefning- arnefndar myndi nýtast hluthöfum við stjórnarkjör á aðalfundi félagsins á árinu 2019,“ segir í bréfi til hluthafa undirrituðu af Árna Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Gildis. Gildi leggur til tilnefn- ingarnefnd í HB Granda Gildi Tillaga um tilnefningarnefnd. STUTT BAKSVIÐ Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Samherji keypti í gær 25,3% hlut í Eimskip af stærsta eiganda síðar- nefnda félagins, bandaríska fjárfest- ingarfélaginu The Yucaipa Compan- ies, á liðlega 11 milljarða króna. Hinn 21. nóvember tilkynnti Yucaipa að skoðuð yrði möguleg sala á hlutum félagsins í Eimskip. Á þeim tíma var gengi hlutabréfa í Eimskip 272 krónur hluturinn. Síðan þá hafa bréf félagins fallið í sögulegar lægðir, en gengi hlutabréfanna fóru í fyrsta skipti undir 200 krónur í maí síðast- liðnum. Gengi bréfanna hefur engu að síður rétt aðeins úr kútnum og stóð í 201 krónu hluturinn þegar tilkynning barst um sölu Yucaipa. Gengið í við- skiptunum var 220 krónur hluturinn og nam kaupverðið því 11,1 milljarði króna. Gengi hlutabréfa í Eimskip hækkaði um tæplega 16% í Kauphöll- inni í gær eftir að tilkynnt hafði verið um viðskiptin og var komið í 233 krón- ur hluturinn í dagslok. Þorsteinn Már ekki í stjórn Baldvin Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri viðskiptaþróunar Sam- herja, segir að félagið hafi fylgst með Eimskip í gegnum árin, þar sem félög- in starfa á svipuðum svæðum. „Þetta er alþjóðlegt fyrirtæki með starfsemi í mörgum löndum og hefur veitt við- skiptavinum sínum góða þjónustu sem byggir á rekstri öflugs skipaflota í Norður-Atlantshafi. Við höfum áhuga á þessum rekstri enda þekkjum við vel til reksturs skipa og mikilvægi flutninga í alþjóðlegu umhverfi.“ Spurður hvernig brugðist verði við hagsmunaárekstrum við kaupin segir Baldvin að Samherji hafi meðal ann- ars flutt afurðir sínar með Eimskip í gegnum árin en armslengdarsjónar- mið verði höfð að leiðarljósi í viðskipt- um félaganna. Hann segir það ekki verða mark- mið Samherja að eignarhlutur í Eim- skip virki ákvæði um yfirtökuskyldu, í svari við spurningu um hvort Eimskip ætli sér að taka yfir félagið á næst- unni. „Viðskiptin áttu sér ekki langan að- draganda og er markmiðið að eiga í góðu samstarfi við aðra hluthafa um áframhaldandi uppbyggingu á starf- semi félagsins,“ segir hann. Við spurningu Morgunblaðsins um hvort Samherji muni óska eftir stjórnarkjöri og hvort forstjóri félagsins hyggist sækjast eftir sæti í stjórn Eimskips segir Baldvin að ekki sé tímabært að ræða hvernig Sam- herji muni beita sér á hluthafafundi. „Þó liggur fyrir að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, mun ekki sækjast eftir að taka sæti í stjórn Eimskips.“ Ágætis arðsemi Yucaipa Miðað við söluverð Yucaipa, 11,1 milljarður króna, má áætla að félagið hafi hagnast í kringum 7 milljarða króna frá því að það fjárfesti í Eim- skip árið 2009. Sumarið 2009 reis upp nýtt Eim- skipafélag úr ösku þess gamla, sem hafði farið illa í bankahruninu. Eim- skip var þá að fullu í eigu lánardrottna félagsins. The Yucaipa Companies var einn þeirra með 32% hlut, en það breytti útistandandi veðtryggðum kröfum í hlutafé og fjárfesti samhliða fyrir 15 milljónir evra í félaginu. Meðal eigenda Eimskips á þessum tíma var Landsbankinn með 40% hlut. Í nóvember 2012 var Eimskip skráð á Aðalmarkað Kauphallar Íslands, en var á þeim tíma þriðja félagið til þess að skrá bréf sín á markað eftir hrun. Samherji keypti fjórðungs- hlut Yucaipa í Eimskip Hlutabréfaverð Eimskips frá nóvember 2012 360 340 320 300 280 260 240 220 200 180 160 2013 2014 2015 2016 2017 2018 21. nóv 2017 Yucaipa tilkynnir að það vilji selja Gengi: 272 kr. 18. Júlí 2018 Gengi: 201 kr. Söluverð Yucaipa til Samherja: 220 kr.  Bréfin hækkuðu um 16% í gær  Þorsteinn Már sækist ekki eftir stjórnarsæti Fallið hefur verið frá einkaviðræðum Tryggingamiðstöðvarinnar og Klakka um kaup á eignaleigufyrir- tækinu Lykli, áður Lýsingu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem TM sendi frá sér í gær. Hinn 22. júní sendi TM frá sér til- kynningu þess efnis að félagið hefði lagt fram skuldbindandi kauptilboð í alla hluti Lykils fjármögnunar hf. Seljandi hlutanna er Klakki, sem áð- ur hét Exista. Í tilkynningunni kom fram að fjárfestum hefði staðið til boða að skila inn óskuldbindandi til- boðum í allt hlutafé félagins 6. apríl síðastliðinn. Í framhaldi af því var tilteknum fjárfestum boðið að taka þátt í öðrum hluta söluferlisins, en skilafrestur fyrir skuldbindandi til- boð rann út 22. júní. TM sendi frá sér aðra tilkynningu stuttu seinna, hinn 6. júlí, þar sem fram kom að félagið hefði hafið einkaviðræður við Klakka um kaup á Lykli. Þar kom fram að kauptilboðið hefði numið 10,6 milljörðum króna og væri háð ýmsum fyrirvörum, svo sem áreiðanleikakönnun og niður- stöðu hennar, samþykki FME og Samkeppniseftirlitsins. Tæpri viku síðar sendi TM frá sér afkomuviðvörun, en í ljós kom að afkoma TM á öðrum ársfjórðungi yrði umtalsvert verri en rekstrarspá félagsins gerði ráð fyrir. Magnús Scheving Thorsteinsson, forstjóri Klakka, vildi ekki tjá sig umfram tilkynninguna sem send var út í gær, né skýra hvers vegna við- ræðum var slitið þegar eftir því var leitað. Ekki náðist í Sigurð Viðars- son, forstjóra TM, við vinnslu frétt- arinnar. steingrimur@mbl.is Morgunblaðið/Arnþór Engin kaup TM og Klakki hafa hætt einkaviðræðum um kaup á Lykli. TM mun ekki kaupa Lykil  Viðræðum við Klakka slitið og fallið frá kaupum Z-brautir & gluggatjöld Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.