Morgunblaðið - 20.07.2018, Page 21

Morgunblaðið - 20.07.2018, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018 ✝ RagnheiðurStefánsdóttir fæddist 27. apríl 1930 í Reykjavík og lést 3. júlí 2018 á Hrafnistu í Hafnar- firði. Foreldrar henn- ar voru hjónin Þor- gerður Árnadóttir frá Borgarfirði eystra, f. 3. júní 1887, d. 25. júní 1962, og Stefán Þórðarson frá Eystri-Skógum undir Eyjafjöll- um, f. 18. apríl 1886, d. 10. nóv- ember 1967. Systkini Ragnheiðar voru Árni Þórður, f. 1911, d. 1982, Þuríður Ingibjörg, f. 1913, d. 2007, og Þórhallur Ragnar, f. 1915, d. 1988. Ragnheiður giftist Ólafi Werner Nielsen, f. 14. apríl 1928, húsgagnasmið úr Reykja- vík, 31. desember 1957. Börn Ragnheiðar og Ólafs eru: 1) Guð- rún, f. 29. júlí 1951, maki Vil- mundur Guðnason, f. 1954, börn þeirra eru: a) Davíð, f. 1981, maki Arna Björk Þorkelsdóttir, f. 1976, barn þeirra er: Elísabet Guðrún, f. 2016. Sonur Örnu og stjúpsonur Davíðs er Konráð Pétur Konráðsson, f. 2008. b) Guðni, f. 1982, maki Magnea þeirra eru: Ágúst Bent, f. 2007, Davíð Smári, f. 2008, Lilja Marie, f. 2010, og Árni Stefán, f. 2016. c) Ólafur Böðvar, f. 1984, maki Ingibjörg Ólafsdóttir, f. 1989, börn þeirra eru: Daníel Myrkvi, f. 2008, og Matthías Werner, f. 2010. d) Óskar Logi, f. 1994, unn- usta Isabelle Bailey, f. 1998. Fjölskylda Ragnheiðar flutti til Reykjavíkur árið 1927 frá Borgarfirði eystra. Á fæðing- arári hennar 1930 bjó fjölskyldan á Hverfisgötu 64a, seinna á Njálsgötu 7 og síðast á Snorra- braut 32. Ragnheiður útskrif- aðist frá Gagnfræðaskóla Reykjavíkur árið 1947. Eftir það lá leiðin til Danmerkur á Als Husholdningsskole. Sem ung stúlka starfaði Ragnheiður við skrifstofustörf hjá Brunabóta- félagi Íslands og á Lögmanns- stofu Einars Ásmundssonar. Frá 1981 og í tæp 20 ár starfaði Ragnheiður hjá Happdrætti DAS í Reykjavík. Hún ferðaðist innan- lands sem utan og var meðlimur í Skíðadeild Ármanns. Ragnheið- ur var afburðafær hannyrðakona og eftir hana liggja margskonar verk. Ragnheiður og Ólafur bjuggu á Bergstaðastræti 29 og frá árinu 1968 í Hjallabrekku 20, Kópavogi, síðustu 5 árin dvaldi Ragnheiður á Hrafnistu í Hafn- arfirði þar sem hún lést. Útför Ragnheiðar verður gerð frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag,20. júlí 2018, og hefst at- höfnin kl. 13. Brynja Magn- úsdóttir, f. 1980, börn þeirra eru: Kristþór, f. 2008, Margrét Guðrún, f. 2012, og Katrín Rósa, f. 2016. c) Ragnar Óli, f. 1987, maki Jaclyn And- erson, f. 1988, barn þeirra er: Ragn- heiður Flóra, f. 2017. 2) Ólafur Karl, f. 21. nóvember 1954, maki Björg Þorleifsdóttir, f. 1955. Börn Ólafs og fyrri maka, Unnar Egilsdóttur, f. 1956, eru: a) Ólaf- ur Hrafn, f. 1977, maki Sigríður Þorgeirsdóttir, f. 1973, börn þeirra eru: a) Þórdís, f. 2007, og Áróra, f. 2011. b) Sólveig, f. 1981, maki Marteinn Teitur Krist- jánsson, f. 1977, barn þeirra er: Selma, f. 2016. c) María, f. 1989, maki Stefán Finnbogason, f. 1992. Dóttir Bjargar og stjúp- dóttir Ólafs er: Kristjana Mar- grét Guðmundsdóttir, f. 1991. 3) Þorgerður, f. 31. mars 1957, maki Ágúst Böðvarsson, f. 1955, börn þeirra eru: a) Stefán Jörg- en, f. 1977, d. 2018. b) Ragna Hjördís, f. 1983, maki Guðjón Þór Sæmundsson, f. 1983, börn Ef litið er til æskuáranna á Bergstaðastrætinu var alltaf sólskin og þannig var móðir okkar, falleg, blíð og góð með sitt jafnaðargeð. Ég held að hún hafi varla skammað okkur systkinin, en hvort við vorum svona þæg börn held ég nú varla. Við bjuggum í lítilli, nota- legri kjallaraíbúð á númer 29 í húsi ömmu og afa, þar hafði ver- ið bakarí afa en pabbi breytti því í íbúð þegar hann og mamma byrjuðu að búa. Þau voru sam- taka í svo mörgu, eins og að gera heimilið sem best úr garði. Hann mikill listasmiður, lærður húsgagnasmiður, hún smekkleg og flink í höndunum. Þau hlustuðu mikið á tónlist, áttu plötuspilara og spiluðu bæði klassík og annað. Upp til afa og ömmu Guðrúnar var alltaf farið í kvöldkaffi, fór þá öll hersingin og oft páfagaukur á öxl út í vetr- armyrkrið eða bjarta sumar- nóttina til að spjalla og bragða á sætu kaffibrauðinu. Ættingjar sem og vinir mömmu og pabba komu oft í heimsókn, munum við eftir að spilað var á spil tímunum sam- an. Mamma átti góðan og trygg- an vinkvennahóp, þær hittust reglulega í saumaklúbb og þá eins og í svo mörgum sauma- klúbbum var meira talað en saumað. Mamma og pabbi voru bæði í Skíðadeild Ármanns svo að útivera og ferðalög til jökla, fjalla og sveita voru reglulega á dagskránni hjá þeim. Í einni slíkri ferð á jökul vorum við systkinin sett í pössun, Óli hjá ömmu og afa á efri hæðinni, Togga hjá Huldu og Árna Kjart- ans í Selásnum og Guðrún hjá Árna móðurbróður og Sigga á Kársnesbrautinni. Amma Þor- gerður og Stefán afi bjuggu á Snorrabrautinni og komu gjarn- an í heimsókn, einnig fórum við mikið til þeirra. Inga systir mömmu bjó inn í Kleppsholti, mamma fór því með okkur systkinin í strætó til að heim- sækja hana. Munum við einnig eftir mörgum ferðum til Halla bróður mömmu niður á Lauf- ásveg og upp á Njálsgötu 7 til Guðfinnu fyrrverandi mágkonu hennar. Innar á Njálsgötu bjó besta vinkona mömmu, Guð- björg, eða Lilla eins og hún er ætíð kölluð. Til Lillu og Lýðs manns hennar voru farnar margar heimsóknirnar og eitt sinn að sumri til fóru þær vin- konur í vikudvöl að Ferjubakka í Borgarfirði, mamma með okk- ur þrjú og Lilla með Valgerði dóttur sína, því borgarbörnin þurftu að komast í sveit. Mamma hafði sjálf verið send í sveit til Ólafs Sigurðssonar og fjölskyldu hans í Götu í Holtum. Hún fór með okkur í heimsókn til Óla þegar hann var orðinn gamall maður. Á uppvaxtarárum okkar var mamma heimavinnandi, alltaf til staðar og pabbi kom gangandi heim úr vinnu í hádegismatinn. Það voru ætíð gæludýr á heim- ilinu, fuglar, kettir og fiskar. Togga kattaaðdáandinn suðaði eitt sinn í mömmu um að fá kött, svarið var nei svo fór Togga til pabba og þá var það samþykkt. Á þurrklofti í húsinu á móti hafði útigangsköttur eignast kettlinga og tók Togga einn þeirra með sér heim. Sá gjörn- ingur leiddi til þess að katta- mamma og allir kettlingarnir fylgdu á eftir, kisa bar þá yfir til okkar einn af öðrum, hana hefur sennilega grunað að þarna byggi góð kona sem gæfi þeim öllum að borða. Þetta voru áhyggjulaus, heilbrigð og góð uppvaxtarár sem þakka ber fyr- ir. Guðrún, Ólafur Karl og Þorgerður Nielsen. Komið er að kveðjustund. Mágkona mín Ragnheiður, eða Ragna eins og hún var alltaf kölluð af okkur, er látin; 88 ára að aldri. Margra ára baráttu við alz- heimerssjúkdóminn er lokið. Það er erfitt að sjá og fylgjast með hversu grátt þessi illvígi sjúkdómur leikur fólk – smátt og smátt hverfur það inn í tóm- ið. Ragna var glæsileg kona; glöð, afskaplega hláturmild og góð. Ég man þegar Óli bróðir kom með hana heim til þess að kynna hana fyrir okkur. Ég var þrettán ára og man stundina eins og hún hefði gerst í gær. Ragna sat í djúpum stól inni í stofu; svo falleg, með svo flott hár, í glæsilegum ljósum síð- jakka. Hún hvíldi annan hand- legginn á stólarminum og brosti við okkur. Ragna og Óli byrjuðu að búa á jarðhæðinni heima hjá mömmu og pabba á Bergstaða- stræti 29. Þar hafði áður verið bakarí, sem breytt var í íbúð. Ragna og Óli eignuðust þrjú börn; Guðrúnu, Ólaf Karl og Þorgerði. Þá flutti fjölskyldan í Kópa- voginn, að Hjallabrekku 20 í glænýtt hús sem Óli bróðir byggði sjálfur. Þar var haldið upp á fermingu Ólafs Karls. Þarna undi fjölskyldan vel sín- um hag og oft var glatt á hjalla. Ragna starfaði við ræstingar hjá Ríkisendurskoðun í einhver ár. Eftir að börnin voru flogin úr hreiðrinu fór Ragna að vinna hjá Happdrætti DAS. Ragna var mér alltaf mjög góð. Við fórum saman og lærð- um að flosa myndir, sem var „hæst móðins“ á sínum tíma – við fórum saman í silfursmíði og alltaf var hún reiðubúin að að- stoða. Hún prjónaði óskaplega fallegar lopapeysur og ótal margt annað sem hún lagði hönd á. Elsku Ragna mín, ég minnist stundanna sem ég átti með þér á Hrafnistu í Hafnarfirði. Á föstu- dögum fórum við á ball og skelltum okkur út á gólf þegar hjólastólasyrpan kom. Svo hvíld- um við okkur og horfðum á fólk- ið dansa og hlustuðum á söng- inn. Síðastliðið sumar var oft farið út og setið í sólinni og veð- urblíðunnar notið. Ragna mín, þetta ár er búið að vera þér erfitt. Eftir að þú fékkst lungnabólgu í apríl fór allt að gefa sig. Ég er svo þakk- lát fyrir að hafa haft tækifæri til að sitja hjá þér, halda í höndina þína og segja ýmislegt í fréttum. Ég sá sjálf augnablikin þegar allt í einu opnaðist hjá þér og þú þekktir mig; stundum kom allt í einu bros eða þú sagðir „neihhh!“ og brostir – þessum augnablikum mun ég ekki gleyma. Óli bróðir kom til þín á hverj- um degi með eitthvert góðgæti sem hann hafði sjálfur útbúið handa þér og ég dáðist að því hvað hann var duglegur, þó oft ætti hann erfitt. Elsku Ragna mín, nú hefur þú fengið hvíldina og ert orðin frjáls á ný. Ég veit að Stefán Jörgen, barnabarnið þitt, hefur tekið á móti þér og leitt þig inn í ljósið; í nýjan heim ævintýra. Ég kveð þig um stundarsakir með þökk fyir vináttu þína, elsku Ragna mín, en „hittumst fyrir hinum megin“. Elsku Óli bróðir, Guðrún, Óli Karl, Togga og fjölskyldur; ég veit að söknuðurinn er sár, en nú hefur hún Ragna okkar feng- ið hvíldina og er komin í ný heimkynni sem eru yndisleg. Innilegar samúðarkveðjur. Þín mágkona, Helga Nielsen (Lilla). Í þau ár sem ég bjó í Hjalla- brekkunni hjá Rögnu og Óla minnist ég þess hversu gaman var að koma til þeirra hjóna á efri hæðinni í kaffi. Ragna var yndisleg mann- eskja, hlý og góð og með ein- stakt jafnaðargeð. Þau hjón, miklir manna- og dýravinir og það var skemmtilegt að fylgjast með þeim gefa fuglunum sem komu til þeirra á hverjum degi í mat við húsið. Krummarnir fengu gjarnan bjúgu en smá- fuglarnir ýmis konar matarleif- ar og korn og heilu smjörstykk- in hurfu á örskammri stundu ofan í goggana á litlu gestunum. Ég áttaði mig fljótt á því að Stefán Jörgen væri mjög líkur Rögnu og Óla í karakter og samband þeirra þriggja var mjög sterkt og fallegt. Ég er mjög þakklát Rögnu og Óla fyrir allar góðu stundirnar og hlýjuna. Blessuð sé minning Rögnu. Óla og fjölskyldunni allri sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Sigurrós Svava Ólafsdóttir. Ragnheiður Stefánsdóttir ✝ Ása GuðlaugStefánsdóttir fæddist á Mýrum í Hrútafirði 7. júlí 1925. Hún andaðist á Heilbrigð- isstofnun Vest- urlands á Hvamms- tanga 9. júlí 2018. Foreldrar henn- ar voru Stefán Ás- mundsson frá Snartartungu í Bitru, f. 9. september 1884, d. 3. ágúst 1976, og Jónína Páls- dóttir frá Þverá í Núpsdal, f. 13. maí 1888, d. 15. nóvember 1955. Stefán og Jónína hófu bú- skap á Mýrum og áttu þau fjög- ur börn til viðbótar við Ásu: 1) Ingibjörg Ástríður, f. 24. apríl 1917, d. 25. febrúar 1998, fyrr- barnlaus. II) Böðvar Sigvaldi Böðvarsson, f. 1. desember 1964, maki hans Ólöf Þorsteins- dóttir frá Laxárdal í Hrúta- firði. Börn þeirra eru Ása Berglind, Inga Rósa og Stefán Páll. Barnaskólaganga Ásu var í farskóla, heima á Mýrum og í Ásbyrgi. Eftir það var hún tvo vetur í Reykjaskóla 1944-1946, þar vann hún með náminu í eldhúsi skólans. Síðar vann hún á veturna á saumastofunni Kápunni í Reykjavík en var heima á sumrin. Árið 1953 stofnuðu þau Böðvar nýbýlið Mýrar II úr hluta jarðarinnar Mýra og byggðu þar upp sitt bú. Ása vann við búskapinn talsvert fram á níræðisaldurinn og fylgdist síðan glöggt með af hliðarlínunni eftir það. Eftir að Stefán sonur hennar féll frá bjó hún ein í sínu húsi allt þar til tveimur dögum fyrir andlátið. Útför hennar fer fram í dag frá Melstaðarkirkju, föstudag- inn 20. júlí 2018, klukkan 14. um eiginmaður hennar var Ásgeir Þorleifsson og eignuðust þau tvö börn. 2) Páll, f. 6. mars 1918, d. 25. maí 2001, ókvænt- ur og barnlaus. 3) Helga Fanney, f. 11. júlí 1926, d. 16. júní 2010, maki hennar var Ólafur Kárdal og áttu þau tvær dætur. 4) Erla, f. 27. júní 1929, maki Guðmundur Karls- son og áttu þau tvo syni. Ása giftist 27. október 1956 Böðvari Sigvaldasyni frá Brekkulæk í Miðfirði. Börn þeirra: I) Stefán Einar Böðv- arsson, f. 14. janúar 1958, d. 25. janúar 2015, ókvæntur og Elsku amma. Þá hefur þú fengið hvíldina góðu eftir að hafa verið milli heims og helju. Það var sem betur fer aðeins stutt stund, alveg eins og þú hefðir vilj- að hafa það. Þrátt fyrir að ég hafi átt von á að geta eytt lengri tíma með þér er margs að minnast. Frá því ég var lítil skotta var húsið hjá ömmu og afa eins og mitt annað heimili. Það voru mik- il forréttindi að hafa þau í nokk- urra mínútna fjarlægð og ég nýtti mér það til fulls. Stundum komu tímabil þar sem ég kom á hverjum degi en amma kippti sér ekkert upp við það. Hún bauð alltaf upp á eitthvað gott, oft pönnukökur, ópal eða brjóstsyk- ur. Amma tók það líka að sér að kenna mér að spila og í seinni tíð kom ég sjaldnast í heimsókn án þess að við tækjum nokkur spil. Það var auðséð hvenær hún átti góð spil og hvenær hún átti slæm. Ef þau voru góð, sagði hún ekki orð. En ef þau voru slæm talaði hún um þessa bölvuðu hunda sem ég hafði gefið henni. Hún var hins vegar mjög heppin í spilum og þegar hún fór á spilakvöld kom hún gjarnan með vinninga heim. Amma var líka harðákveðin í því að ég ætti að læra að keyra. Það væri ekki vit í öðru en að vera með bílpróf. Sjálf tók hún prófið um leið og hún fékk til þess tækifæri og hætti ekki að keyra fyrr en á tíræðisaldri. Hún ákvað því að kenna mér. Við fórum ófáa hringi á túnunum heima og hún var þolinmóður kennari. Hún hélt líka ró sinni jafnvel þótt ég væri á leiðinni að keyra út í skurð. Enda reyndust allar áhyggjur óþarfar, því ekkert kom fyrir í þessum æfingum okk- ar. Amma hafði líka mikinn áhuga á ættfræði og var dugleg að grúska í slíku. Hún sagði mér oft hvernig hinn og þessi væri skyld- ur okkur. Ég hefði eflaust getað flett upp í henni eins og bók ef mig hefði vantað að vita ein- hverja tengingu. Ég er þess full- viss að ef amma hefði lært á tölvu hefði Íslendingabók verið einn mest skoðaði vefurinn. Amma hafði líka mikinn áhuga á pólitíkinni. Við ræddum hana oft en stundum urðum við að vera sammála um að vera ósammála. Það urðum við að gera, því ef hún var búin að ákveða eitthvað var engin leið að fá hana til að skipta um skoðun. Amma kenndi mér því á vissan hátt að virða skoð- anir annarra og þann hæfileika met ég mikils. Elsku amma. Þú sem kvartað- ir sjaldnast og þurftir alltaf hafa eitthvað fyrir stafni. Fórst í fjósið á níræðisaldri og bjóst heima nánast til dauðadags. Mikið óska ég þess að hafa sömu elju og dugnað þegar ég kemst á þennan aldur. Blessuð sé minning þín og takk fyrir allt saman. Þín nafna, Ása Berglind. Ása Guðlaug Stefánsdóttir Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KOLBEINN JAKOBSSON, málarameistari, lést mánudaginn 2. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Innilegar þakkir fær séra Sigurður Grétar Helgason fyrir umhyggju og hlýhug og Sigrún Óskarsdóttir hjá Útfararstofu kirkjugarðanna. Jakob Geir Kolbeinsson Auður Kolbeinsdóttir Kolbrún Kolbeinsdóttir Víðir Jónasson Ása Hrönn Kolbeinsdóttir Stefán Hrafn Stefánsson Sigurður Bjarki Kolbeinsson barnabörn og barnabarnabörn Frændi okkar, ÓTTAR JÓSEPSSON, Breiðumýri, sem lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík mánudaginn 16. júlí, verður jarðsettur frá Einarsstaðakirkju laugardaginn 21. júlí klukkan 14. Systkinabörnin Elskulegur sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, RÚNAR ÞORKELL JÓHANNSSON, Hásteinsvegi 50, Vestmannaeyjum, lést miðvikudaginn 18. júlí á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Hann verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 21. júlí klukkan 15. Freyja Kristófersdóttir Fríða Rúnarsdóttir Hermann G. Hermannsson Freyja K. Rúnarsdóttir Gunnar Geir Gústafsson Jóhann Frímann Rúnarsson Axel Ingi Árnason Páll Þórir Rúnarsson Mekkín Árnadóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.