Morgunblaðið - 20.07.2018, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018 25
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir
Víðilundur 18, Akureyri, fnr. 215-1729 , þingl. eig. Eggert Maríuson,
gerðarbeiðandi Tollstjóri, þriðjudaginn 24. júlí nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
19. júlí 2018
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við í Árskógum 6-8
kl. 16.15-17. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. s: 535-2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30 og kaffisala alla virka daga frá kl.
14.30-15.30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi í júlí og ágúst. Úti
boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á skemmtilega
viðburði í hverfinu, Qigong á Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga
kl. 11 og Sund dans í Sundhöllinni alla miðvikudaga í júlí kl. 13.
Vitatorg sími: 411-9450
Gjábakki Kl. 20 Félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, bridge kl. 13, bíómyndin Mamma mia! kl. 13
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, boccia kl. 10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, síðdegis-
kaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri nánari upplýsingar í Hæðar-
garði 31 eða í síma 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upp-
lestur kl. 11, föstudagsspjall kl. 14 ganga m.starfsmanni kl. 14. Uppl í
s. 4112760.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, spilað í króknum kl.
13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Ýmislegt
Glæsilegar eignarlóðir til sölu
í Fjallalandi við Leirubakka. Kjarri og
skógi vaxið land. Útsýni með því
fallegasta sem gerist. Mikil veður-
sæld. Aðeins 100 km frá Reykjavík og
60 km frá Selfossi.
Uppl í s 8935046.
Inntökupróf verður haldið í
læknisfræði í Jessenius Faculty of
Medicine í Martin Slóvakíu í MK í
Kópavogi 24 ágúst nk.
Uppl. kaldasel@islandia.is
og 8201071
Bílar
Toyota Corolla til sölu
Árg. ‘98. Liftback. Skoðaður '18.
Topp eintak. Verð tilboð.
Upplýsingar í síma 863 7656.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
FINNA.is
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu
þá aftur huga þinn, og þú munt sjá að
þú grætur vegna þess sem var gleði
þín.“
(Úr Spámanninum, Kahlil Gibran)
Gleðigjafans verður sárt
saknað.
Við kynntumst fyrir hálfri öld,
fjórar æskuvinkonur af Ægisíð-
unni og tvær aðkomustelpur og
stofnuðum með okkur „sauma-
klúbb“. Þá var Sossa á sínu 1.
ári í Versló og höfum við oft tal-
að um að árin sem komu í kjöl-
farið hafi verið ein skemmtileg-
ustu ár ævi okkar. Á milli okkar
mynduðust sterk vináttubönd
sem aldrei hafa rofnað og þá
kynntumst við mörgum vina
okkar sem við enn eigum besta.
Klúbburinn okkar hefur hald-
ist þéttur öll þessi ár með mjög
reglulegum fundahöldum yfir
veturinn, matarboðum, afmælis-
og fermingarveislum, giftingum
og partíum. Ráð fengin og ráð
gefin um allt mögulegt og
ómögulegt, barnauppeldi, matar-
uppskriftir, handavinnu, tísku,
blóma- og grænmetisrækt svo
ekki sé minnst á sultugerðina.
Oftar en ekki ræddum við sam-
félagsmál, bókmenntir, ljóð, list-
ir og pólitík og þá stundum með
hávaða. Ræddum það hvernig
tilfinning það væri að verða
mömmur eða ömmur og ef á
Soffía Magnúsdóttir
✝ Soffía Magn-úsdóttir fædd-
ist 19. apríl 1952.
Hún lést 30. júní
2018. Útför hennar
fór fram 16. júlí
2018.
Vegna mistaka
við birtingu á
greinum um Soffíu
í blaðinu í gær eru
þessar greinar birt-
ar aftur. Morgunblaðið biður
hlutaðeigandi velvirðingar á
mistökunum.
bjátaði hjá ein-
hverri okkar var
sest niður, málin
rædd og reynt að
finna lausnir. Við
fylgdumst vel með
fjölskyldulífi og at-
vinnuframgöngu
okkar og hlustuðum
hugfangnar þegar
Sossa sagði okkur
ljómandi af ástríðu
og áhuga frá nem-
endum sínum í Versló, þar sem
hún kenndi íslensku lengst af.
Þeir voru allir svo klárir, vel
gefnir og skemmtilegir. Hún
naut þess alla tíð að vera innan
um unga fólkið sem bjó sig undir
lífið, enda jákvæð, uppbyggjandi
og hvetjandi í eðli sínu og skap-
gerð. Sossa átti mörg áhugamál
sem hún stundaði af kostgæfni
og eignaðist þar fjölda vina með
sinni glaðlegu, ljúfu og háttvísu
framkomu enda lýsti af henni
hvert sem hún fór. En það var
þó alltaf heimilið og fjölskyldan
sem stóðu henni næst, af þeim
var hún stoltust.
Saumaklúbburinn kom stund-
um einnig saman á sumrin þegar
sumarbústaðir komust í eigu
félagsmanna og fundum við það
hversu notalegt það var að geta
setið fram eftir á kvöldin og rætt
málin, vaknað svo næsta morgun
og strax haldið áfram frá því
sem frá var horfið. Eftir fertugt
fórum við að ferðast saman til
útlanda. Fertugar fórum við til
Parísar og fimmtugar til Rómar.
Þetta tókst svo vel hjá okkur að
styttra varð á milli ferðanna og
hafa margar ógleymanlegar
ferðir verið farnar til fleiri
spennandi borga, náttúrufegurð-
ar notið, lista og góðs matar.
Alltaf var það gleðin yfir lífinu
og væntumþykjan milli okkar
sem var í fyrsta sæti, Sossa sá
til þess. Hún var alltaf kát með
skemmtilegar hugmyndir, oft
æringi með hnyttin tilsvör, en
alltaf fyrst til að bjóða aðstoð
sína þegar á þurfti að halda.
Hún var sannur vinur, hennar
verður sárt saknað.
Síðustu rúmlega þrjú árin
hafa verið erfið eftir að Sossa
veiktist en nú er komið að
kveðjustund. Við vinkonurnar
viljum senda Kidda, Heiðu,
Kidda og allri fjölskyldunni okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur
og megi minningin um gleðigjaf-
ann Sossu verða ykkur styrkur í
sorg ykkar.
Anna, Björg, Kristbjörg,
Sigríður Svana, Vigdís.
Þegar við kveðjum okkar
kæru vinkonu sem hefur leikið
með okkur golf í rúman áratug,
er þakklæti og hlýja efst í huga.
Sossa hafði ljúfa og þægilega
nærveru, var alltaf hress og kát
og náði vel til allra í hópnum.
Golfhópurinn hittist vikulega yf-
ir sumarið til að spila golf og
eiga frábærar samverustundir í
kjölfarið. Þá höfum við einnig
farið í nokkrar golfferðir til út-
landa sem allar hafa verið stór-
kostlegar og ýmislegt gerst. Það
sem er þó minnisstæðast er að í
einni af ferðum okkar til Spánar
kom Sossa með gamlan pútter
frá St. Andrews sem hún gaf
hópnum. Þetta reyndist vera
forláta gripur og til margs nyt-
samlegur. Augljóslega er hægt
að pútta með honum en það sem
vakti mesta lukku er leynihólf
sem inniheldur lítinn viskípela.
Síðast en ekki síst má nota hann
sem göngustaf ef sjússarnir
verða of margir. Hún kom því á
að halda púttmót einu sinni á
sumri og sigurvegari þess fengi
St. Andrews pútterinn til varð-
veislu í eitt ár. Við höfum haldið
nokkur mót og kallað þau
„Sossu pútterinn“ og munum við
halda áfram að keppa um pút-
terinn í minningu hennar. Við
þökkum samfylgdina og sendum
Kidda og fjölskyldu innilegar
samúðarkveðjur. Hvíl í friði
elsku Sossa, þín verður sárt
saknað
Fyrir hönd golfhópsins Nalúk,
Sigrún.
✝ Gunnar HelgiHauksson var
fæddur á Húsavík 5.
nóvember 1955.
Hann lést á Líknar-
deild Landspítalans
12. júlí 2018.
Móðir Gunnars
er Hlaðgerður
Gunnarsdóttir
(Gerða), fædd 27.
október 1936, bú-
sett á Húsavík. Eig-
inmaður hennar og uppeldisfaðir
Gunnars var Gunnar Emil Hall-
dórsson, fæddur 18. maí 1930, dá-
inn 20. nóvember 1996. Systkini
Gunnars sammæðra eru Smári
og Heiðar, báðir búsettir á Húsa-
vík og Íris, búsett í Reykjavík.
úar 1988, búsettur í Reykjavík.
Eiginmaður Söru er Ethan
Clarke. Dóttir þeirra er Gréta
Guðrún Clarke, fædd 21. ágúst
2017. Sambýliskona Arnars er
Súsanna Sif Jónsdóttir.
Gunnar ólst upp á Eskifirði hjá
móður sinni og uppeldisföður.
Um fermingu fluttust þau til
Húsavíkur þar sem hann lauk
grunnskólanámi. Hann útskrif-
aðist frá Vélskólanum í Reykja-
vík vorið 1977.
Fyrir námið í Vélskólanum og
meðan á námi stóð var Gunnar til
sjós en eftir námið starfaði Gunn-
ar sem vélstjóri á farskipum í
nokkur ár.
Frá árinu 1982 hefur Gunnar
starfað hjá Vélsmiðjunni Héðni.
Hann starfaði þar aðallega sem
sölustjóri véltæknibúnaðar skipa
en tók einnig þátt í þróun og upp-
byggingu innan fyrirtækisins.
Útför Gunnars fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, föstu-
daginn 20. júlí 2018, kl. 13.
Faðir Gunnars
var Haukur
Kristjánsson, fædd-
ur 7. apríl 1935, dá-
inn 26. mars 2008.
Eftirlifandi eig-
inkona Gunnars er
Guðrún Björg Ein-
arsdóttir, fædd 15.
janúar 1956 í Hafn-
arfirði. Þau hófu
búskap á Húsavík
en fluttust síðan til
Hafnarfjarðar og hafa verið bú-
sett þar síðan.
Börn Gunnars og Guðrúnar
eru Rakel, fædd 10. mars 1980,
búsett í Reykjavík, Sara, fædd
20. janúar 1982, búsett í New
York og Arnar, fæddur 6. febr-
Gunnar Hauksson, vinur okkar
og félagi, er allur eftir erfið veik-
indi. Gunnar lærði vélvirkjun í
Héðni og eftir nokkur ár til sjós
kom hann aftur til starfa og hefur
verið með okkur æ síðan.
Frá upphafi var ljóst að mikill
dugur var í manninum. Hvar sem
hann fór var hann atkvæðamikill
og fylginn sér og varð það enda til
þess að hann tók að sér ábyrgðar-
og leiðtogastörf af ýmsu tagi fyrir
Héðin. Eftir stuttan tíma sem
verkstjóri tók hann að sér viða-
mikil verkefni við sölu og þjón-
ustu Brattvaag spilkerfa og elju-
semi og áræðni sem einkenndi
Gunnar alla tíð leiddi til árangurs
sem lengi verður í minnum hafð-
ur.
Þegar frá leið þróuðust mál á
þann veg að spilkerfin enduðu
innanbúðar hjá Rolls-Royce sem
hluti heilstæðra vélbúnaðar-
lausna í skip. Aftur tók Gunnar
áskoruninni og tók að sér að vera
fulltrúi Héðins í samstarfi við
stórfyrirtækið. Það reyndist af-
drifaríkt og kom fljótt í ljós að
með mikilli vinnu og þrautseigju
náðist árangur sem Gunnar á sinn
stóra þátt í.
Lokaáhlaup Gunnars í Héðni
var tengt fiskimjöli. Þróunar-
vinna okkar manna hafði skilað
markverðum árangri en mark-
aðssetning og kynning var á byrj-
unarreit. Enn og aftur reis Gunn-
ar upp, einarður og uppfullur af
hugmyndum og bauð fram krafta
sína með árangri sem eftir var
tekið.
Það er margs að minnast og
margar ánægjustundir höfum við
átt saman. Skemmtileg ferðalög,
þvælingur upphafsáranna með
tilheyrandi uppákomum og fjöl-
margar gleðistundir í hópi sam-
starfsmanna og fjölskyldna.
Þetta hafa verið ómetanleg kynni.
Gunnar Hauksson var maður
sem tók áskorun og vílaði ekki
fyrir sér að takast á við ný og
krefjandi verkefni og því sem
hann tók að sér var fylgt eftir af
fullri einurð. Það einkenndi hann
gagnrýnin hugsun og hæfileiki til
að skilja hismið frá kjarnanum
þegar unnið var að úrlausn flók-
inna mála. Þetta var uppskriftin
að þeim árangri sem Gunnar
Hauksson skilur eftir sig á þess-
um tímapunkti.
Við Héðinsmenn sendum fjöl-
skyldu Gunnars samúðarkveðjur
á þessum erfiðu tímum og þökk-
um fyrir áratuga góðan vinskap
og framúrskarandi samstarf.
Guðmundur S. Sveinsson.
Gunnar Helgi
Hauksson