Morgunblaðið - 20.07.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.07.2018, Blaðsíða 27
námi í blaða- og fréttamennsku 2014. Edda hóf fyrst störf á RÚV árið 2007, brá sér svo yfir á 365 miðla 2014- 2015 og var dagskrárgerðarmaður og þáttastjórnandi í Íslandi í dag, en kom svo til baka á RÚV árið 2015. Á RÚV hefur Edda unnið sem íþróttafrétta- maður og dagskrárgerðarmaður og hefur verið þáttastjórnandi Íþróttalífs- ins, Skólahreysti, Leiðarinnar á EM, Draumsins um HM og fleiri þátta. Núna er hún bæði íþróttafréttamaður og dagskrárgerðarmaður í Land- anum. „Þetta er fullkomin blanda. Í íþróttafréttunum er þessi hraði og spenna í beinum útsendingum en í Landanum er maður meira að pæla í hlutunum. Við ferðumst út um allt land, sem hentar mér mjög vel í stað- inn fyrir að sitja fyrir framan tölvu all- an daginn.“ Edda fór fyrir hönd RÚV á Evrópu- mót kvenna í fótbolta 2017 og heims- meistaramót karla í fótbolta 2018. „Að fara á HM með íslenska landsliðinu og það í Rússlandi var algjört ævintýri og það er fyrst núna sem ég er að átta mig á að þetta hafi gerst því úti var ég alveg á fullu að taka viðtöl og undirbúa næsta leik.“ Edda hefur líka prófað ritmiðla því hún kom að stofnun Nude Magazine, fyrsta íslenska tískutímaritsins sem eingöngu var aðgengilegt á netinu og var gefið út mánaðarlega. Edda sat í stjórn Hugins, félags ungra sjálfstæð- ismanna í Garðabæ, 2007-2011. Hún hlaut fjölmiðlaviðurkenningu KSÍ fyr- ir þættina Leiðin á EM þar sem fjallað var um íslenska kvennalandsliðið í fót- bolta í aðdraganda Evrópumótsins í Hollandi 2017 „Tengingin við Vestmannaeyjar, þaðan sem pabbi er, hefur alltaf verið mikil og orðið sterkari með árunum. Það er alið upp í mér að mæta á alla leiki ÍBV í handbolta og fótbolta sem ég mögulega get og fjölskyldan á íbúð í Eyjum sem er mikið notuð. Fríhelg- arnar eru yfirleitt nýttar þar eða í dásamlegum bústað sem tengda- fjölskyldan byggði sér í Grímsnesi. Ég er sérstaklega heppin með vini og finnst fátt skemmtilegra en að vera með þeim.“ Fjölskylda Maki Eddu Sifjar er Vilhjálmur Sig- geirsson, f. 4.5. 1991, dagskrárgerðar- maður. Foreldrar hans eru hjónin Auður Þórhallsdóttir, f. 28.5. 1958, sviðstjóri mannauðsmála hjá VIRK, og Siggeir Siggeirsson, f. 30.9. 1959, rafeindavirki. Þau eru búsett í Kópa- vogi. Hálfsystur Eddu samfeðra eru Eir Pálsdóttir, hálfsystir samfeðra, f. 30.6. 1975, flugfreyja, búsett í Garðabæ, og Hlín Pálsdóttir, hálfsystir samfeðra, f. 22.5. 1980, tanntæknir, búsett í Hafnarfirði; albróðir Eddu er Páll Magnús Pálsson, f. 12.12. 1995, laga- nemi, búsettur í Garðabæ. Foreldrar Eddu eru hjónin Páll Magnússon, f. 17.6. 1954, alþingis- maður, og Hildur Hilmarsdóttir, f. 28.10. 1964, flugfreyja. Þau eru búsett í Garðabæ og Vestmannaeyjum. Edda Sif Pálsdóttir Hildur Eiríksdóttir húsfreyja, f. í Þverárdal, A-Hún. Snorri Dalmar starfsm. Síldar- og tunnuverksmiðju ríkisins á Sigluf., síðast bús. í Rvík Edda Snorradóttir fv. kennari í Hlíðaskóla Hildur Hilmarsdóttir flugfreyja, bús. í Garðabæ Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari ermann Magnússon póst- og símstöðvarstj. á Hvolsvelli Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari Hilmar Ingólfsson fv. skólastjóri í Garðabæ Sæbjörg Jónasdóttir húsfreyja, f. í Seljateigs- hjáleigu í Reyðarfirði Ingólfur Pétursson verkstjóri í Rvík, faðir hans var Pétur Zophoníasson ætt­ fræðingur og fyrsti Íslandsmeistari í skák Adolf Ingi Erlingsson fv. íþróttafréttam. á RÚV Erling Aðalsteinsson klæðskeri á Akureyri Daði Laxdal hand- boltamaður í Gróttu Brynhildur Pétursdóttir neytendafrömuður og fv. alþm. Hildigunnur Hilmarsdóttir íþróttakennari, bús. í Rvík Pétur Ingólfsson verkfræðingur í Rvík Árni Finnbjörnsson frkvstj. Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna Finnbjörn Hermanns- son verslunarm. á Ísafirði Melkorka María Guð­ mundsdóttir smiður hjá Þaktækni H Helgi Hermanns- son söngvari Loga Ingveldur Ólína Hermannsdóttir húsfreyja, frá Aðalvík Björn Björnsson verkstjóri á Ísafirði Marta Björnsdóttir húsfr. í Vestmannaeyjum og Rvík Magnús H. Magnússon alþm., ráðherra og bæjarstjóri í Vestmannaeyjum Magnína Sveinsdóttir húsfr., frá Engidal í Skutulsfirði Magnús Helgason gjaldkeri í Rvík Úr frændgarði Eddu Sifjar Pálsdóttur Páll Magnússon alþm. og fv. sjónvarpsstjóri Mæðginin Edda og Fróði. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018 Sigurður Helgason fæddist 20.7.1921 í Reykjavík. Foreldrarhans voru Helgi Hallgrímsson, f. 1891, d. 1979, fulltrúi og k.h. Ólöf Sig- urjónsdóttir, f. 1890, d. 1970, kennari. Sigurður lauk námi í viðskipta- fræðum frá Columbia-háskóla í New York árið 1947. Hann var fram- kvæmdastjóri Orku hf. og Steypu- stöðvarinnar 1948-61, varaformaður stjórnar Loftleiða hf. 1953-74, fram- kvæmdastjóri Loftleiða í New York 1961-74, framkvæmdastjóri Flugleiða hf. 1974-79 og forstjóri Flugleiða hf. 1979-84. Hann var síðan stjórnar- formaður Flugleiða til ársins 1991. Hann sat í stjórn Cargolux í Lúxem- borg 1977-86, þar af sem vara- formaður árin 1980-86. Sigurður sat í stjórn International House í New York frá 1986, var með- limur Wings Club í New York frá 1962 og sat í stjórn 1972-75. Hann var for- maður Íslensk-ameríska félagsins 1975-87, í Rotaryklúbbi Reykjavíkur frá 1978, í fulltrúaráði Landakotsspít- ala 1979-90, í stjórn American Scand- inavian Foundation í New York 1970- 75 og frá 1982, stjórnarformaður Ála- foss hf. 1986-91, stjórnarmaður í Verslunarráði Íslands 1982-91, í fram- kvæmdastjórn VSÍ 1978-87, í lands- nefnd Alþjóðaverslunarráðsins 1984- 91, í stjórnarnefnd Alþjóðasamtaka flugfélaga (IATA) 1988-90 og Samtaka Evrópuflugfélaga 1979-90 og sat í stjórn The Mustique Company og for- maður fjárhagsnefndar þess félags 1994-98. Hann sat einnig í stjórn Stangveiðifélagsins Hofsár ehf. frá árinu 1999. Sigurður varð heiðursborgari Winnipeg 1965, hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 1972, Grand Officier af Chène-orðuna í Lúxemborg 1986, gullmerki Flugmálafélags Ís- lands 1986 og Harry Edmonds- viðurkenningu International House 2007. Eiginkona Sigurðar var Unnur Haf- dís Einarsdóttir, f. 20.2. 1930, d. 1.10. 2005, húsmóðir. Börn þeirra eru Ólöf, Edda Lína, Helgi og Sigurður Einar. Sigurður lést 8. febrúar 2009. Merkir Íslendingar Sigurður Helgason 95 ára Fjalarr Sigurjónsson Ingibjörg Þorkelsdóttir 85 ára Einar Örn Guðjónsson Gestur Guðjónsson Guðbjörg S. Petersen Jón Hermannsson Katrín Jónsdóttir Pálmi Jónsson 80 ára Guðrún Hjaltadóttir Ljótunn Indriðadóttir Ragna Pálsdóttir Tómas Pálsson Þórhallur Eiríksson 75 ára Aðalheiður Sigvaldadóttir Jóhann Ólafsson Jón Hjörleifsson Kristjana Kjartansdóttir Rannveig Jónsdóttir 70 ára Anna Steina Þorsteinsd. Egill Þórðarson Gunnar Rafn Jónsson Hannes Einarsson Helena Jónína Svavarsd. Helga Kr. Bjarnason Ingimundur G. Andrésson Jón Marteinn Þengilsson Rakel Ingvarsdóttir Sæmundur Sigurlaugsson 60 ára Ásdís Einarsdóttir Bjarni Valtýsson Elfa Schiöth Elfarsdóttir Helgi Sigurður Gestsson Páll Breiðfjörð Pálsson Rafn Sigurðsson Sigríður María Bragadóttir Snorri Olsen 50 ára Ásmundur Vilhelmsson Borghildur Sverrisdóttir Eygló Elíasdóttir Gestur Gestsson Guðmundur Sævar Jónss. Guðrún Lára Hafsteinsd. Helgi Björnsson Hermann Þráinsson Hugrún Ásta Halldórsdóttir Jónas Haukur Jónbjörnss. Kristín Þórðardóttir Kulli Kuur Margrét Svavarsdóttir Sigurður Haukur Eiðsson Steinunn Bára Þorgilsdóttir Viðar Víkingsson Þórunn Hólmfríður Jónsd. Þórunn Jónsdóttir 40 ára Andrea Jóhannsdóttir Ágústa Berglind Hauksd. Ellen Birna Loftsdóttir Guðjón Ágúst Guðjónsson Guðlaug Gísladóttir Jónas Einar Thorlacius Kinga Anna Rypinska Sesselja Konráðsdóttir Tinna Hlín Ásgeirsdóttir 30 ára Anton Rúnarsson Arnar Freyr Jakobsson Auður Hallgrímsdóttir Elvar Freyr Pálsson Guðjón Ingi Sigurðarson Helga Katrín Hjartardóttir Helgi Þór Haraldsson Hjalti Freyr Halldórsson Ingibjörg Þorsteinsdóttir Ingvar Kr. Guðmundsson Julie Björk Gunnarsdóttir Kristjana Björk Traustad. Kristjana Pálsdóttir Sædís Ösp Valdemarsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Guðmundur er Akureyringur, er sjómaður og vinnslustj. á Blæng NK og er menntaður mat- reiðslumaður. Maki: Sigríður Jörundar- dóttir, f. 1984, sjúkraliði á öldrunarheimili. Börn: Óliver Enok, f. 2002, og Aron Ísak, f. 2003. Foreldrar: Brynjar Jacob- sen, f. 1957, sjóm., og Anna Benjamínsdóttir, f. 1959, sjúkraliði, bús. á Akureyri. Guðmundur Brynjarsson 40 ára Kristín Jóna er frá Ólafsvík en býr í Hafnar- firði. Hún er leikskóla- kennari á Holtakoti á Álftanesi. Börn: Tinna, f. 1997, Sigurjón Björn, f. 1999, Rúnar, f. 2002, og Bjarki Freyr, f. 2007. Foreldrar: Sigurjón Val- berg Jónsson, f. 1961, vörubílstjóri, og Theódóra Sigrún Haraldsdóttir, f. 1961, vinnur á Hrafnistu í Reykjavík, bús. í Hafnarf. Kristín Jóna Sigurjónsdóttir 40 ára Ólafur er frá Þing- eyri en býr á Egilsstöðum. Hann er vélstjóri á Auði Vésteins SU. Maki: Sigrún Jóhanna Þráinsdóttir, f. 1983, frkvstj. 701 Hotels. Börn: Ágúst Óli, f. 2001, Óskar Ingi, f. 2005, Daníela Líf, f. 2006, og Árni Stefán, f. 2010. Foreldrar: Mikael Ágúst Guðmundsson, f. 1956, og Steinunn Lilja Ólafs- dóttir, f. 1959. Ólafur Árni Mikaelsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.