Morgunblaðið - 20.07.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki hafa áhyggjur af því að
þurfa að sanna þig. Þú ert út um allar
trissur þessar vikurnar og finnst það
ekki leiðinlegt. Batnandi manni er best
að lifa.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert full/ur sjálfstrausts og
tilbúin/n til þess að láta í þér heyra. Ein-
hver sendir þér skilaboð sem hrista upp í
þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Að vera innan um fólk sem trú-
ir á þig og hvetur hefur áhrif á viðhorf
þitt. Það stefnir allt í óefni með heilsu-
farið ef þú tekur þér ekki tak fljótlega.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er ekki til neins að stinga
höfðinu í sandinn. Ræddu málin því alltaf
má eitthvað læra af öðrum. Mundu að
allir hafa eitthvað til síns ágætis.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er mjög mikilvægt að þú hagir
þér rétt í öllum viðskiptum við fólk.
Láttu hendur standa fram úr ermum.
Taugar þínar eru þandar vegna tilboðs
sem þú gerðir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Einstaka upphlaup bjargar engu,
þegar allt fellur í dúnalogn inn á milli.
Ekki troða öðrum um tær. Símtal sem þú
færð breytir öllu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú munt njóta þess að vera ein/n
með sjálfum/sjálfri þér í dag. Finndu þér
hlut sem getur orðið til þess að fegra
heimili þitt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú munt rekast á einhver
ummæli, sem hafa mikil áhrif á þig.
Njóttu góðra stunda með öðrum og
þiggðu öll boð sem þér berast.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þegar allt kemur til alls er
það vináttan sem skiptir mestu máli.
Sýndu vígtennurnar í deilumáli.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vertu óhrædd/ur við að kanna
nýjar leiðir og taka einhverja áhættu.
Gamall vinur leitar á náðir þínar um
hjálp.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vinirnir eru þér mikilvægari
en ella um þessar mundir, reyndu að
gefa þér tíma til þess að hitta þá. Ekki
sóa kröftum í vonlaust samband.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Rósrauðu gleraugun eru föst á
nefinu á þér núna. Njóttu hamingjunnar.
Þú gengur í gegnum súrt og sætt með
ættingja.
Laugardaginn 7. júlí sagði kött-urinn Jósefína Meulengracht
Dietrich frá því á fésbókarsíðu sinni
að hún hefði ákveðið að gefa út mat-
reiðslubók og væri búin að yrkja
fyrstu uppskriftina eins og lesa
mátti hér í Vísnahorni á fimmtudag.
Ekki er úr vegi að rifja þá vísu upp:
Ef úr potti færi fiskinn
finnst mér vera alveg kjörið
að hita tólg á hálfan diskinn
og hella floti yfir smjörið.
Á þriðjudaginn hélt Jósefína
áfram með sinn gríðarlega vinsæla
matreiðsluþátt, – annar kapítuli:
Í eftirmat er allra best
að eiga lyktarmikinn kost
og þau sem viskan veitist mest
velja jafnan góðan ost.
Næsta dag hélt Jósefína áfram:
„Þriðji kaflinn í matreiðslubók
minni snertir viðkvæman streng í
hjörtum allra sem láta sér annt um
blessaða lífsbjörgina“:
Hafðu bæði haus og sporð,
hugsa um ræðu mína,
sjóddu fisk og settu á borð
segir Jósefína.
Hér setti Unnur Guttormsdóttir
inn mynd af fallegum ketti þar sem
hann sat uppi í bókahillu með þess-
ari skýringu: „Þetta er ljóðalæðan
mín, hún Dúfa litla Dalalæða. Hún
sendir þér kveðju af himnum ofan,
Jósefína mín.“
Björgvin Rúnar Leifsson
Eftirfarandi myndi ég aldrei voga
mér að setja inn á síðu JMD:
Ósköp finnst mér læðan löt
(leyfist mér að grína?):
Vill hún ekki eta kjöt
elsku Jósefína?
Ármann Þorgrímsson yrkir og
kallar „Úr gönguferð á Horn-
ströndum“:
Stundum veldur straumþung á
í stórrigningu miklum skaða,
en okkar manni ekki brá
áður hefur þurft að vaða.
Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka orti:
Davíð gat af guðs náð hitt
Golíat með steini
akkúrat í ennið mitt
og það sat í beini.
Magnús Halldórsson
Íhaldssamir Bretar supu hveljur
þegar þeir sáu Donald Trump ganga
í veg fyrir drottninguna:
Supu hveljur sárhneykslaðir Bretar,
sumir íhaldsmenn þá grétu,
þegar hann Donald frakkur fetar
og fyrir álpast gömlu Betu.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Matreiðslubók kattarins
Í klípu
„ÞESSI ER FULLKOMIN. HÚN ER MEÐ
FINGRAFÖRIN ÞÍN Á SÉR.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG VAR VISS UM AÐ ÞÚ VÆRIR
UTANBÆJARMAÐUR.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ráðgáta vafin inn í
leyndardóm!
MAAAL ÉG VAR AÐ HUGSA UM
PYLSULEIFAR Í GÁMI FYRIR
AFTAN KJÖTMARKAÐINN
ERTU AÐ HUGSA
UM MIG?
MAAAAL!
ALLS
EKKI
NEI?
ÉG ÞORI AÐ VEÐJA AÐ SKÍNANDI
BRYNJAN ÞÍN LAÐI DÖMURNAR AÐ ÞÉR!
SVO
SANNARLEGA!
ÞÆR NOTA HANA TIL ÞESS AÐ ATHUGA
VARALITINN SINN!
BYSSUR
Sú vinsæla iðja, að fjargviðrast út afveðurfari, var lengi vel að mati Vík-
verja merki um að elli væri að færast yf-
ir fólk. Hver nennir annars að spá í
metra á sekúndu, hægar eða breytilegar
áttir og stöku skúrir aðrir en ellilífeyris-
þegar með ótakmarkaðan frítíma?
En nú er Víkverji kominn á kaf í alls-
konar veðurumræður þar sem grátur og
gnístran tanna vegna sólarleysis suð-
vestanlands kveður við.
x x x
Kannski er aldurinn farinn að færastmeira yfir Víkverja en hann vill
vera láta!
x x x
Að glugga í gömul Morgunblöð er góðskemmtun. Þann 20. júlí 1918, fyrir
sléttum 100 árum, var þessi veðurfrétt á
forsíðu blaðsins: „Hita-tíð hefir verið
hér undanfarna daga, en norðanátt og
gæftaleysi um Vesturland og Norður-
land.“
Víkverji hefur aldrei áður heyrt orðið
gæftaleysi og fletti því upp á vefsíðunni
málið.is. Þar sagði að gæftaleysi væri
litlir möguleikar til að fara til fiskveiða
vegna veðurs.
Það má nærri geta hvort það hafi
ekki haft mikil áhrif á afkomu fólks fyrir
100 árum að geta ekki stundað fisk-
veiðar. Einni öld síðar er helsta um-
kvörtunarefnið það að ekki viðri nógu
vel til þess að sitja fáklæddur úti og
sötra kælt hvítvín. Sveiattan!
x x x
Í þessum 100 ára gamla Mogga er ann-ars margt áhugavert aflestrar. Til
dæmis fréttin þar sem segir að Gísli
Sveinsson hafi farið héðan alfarinn í
gærmorgun austur til sýslu sinnar.
Hvar þetta „héðan“ var sem Gísli yf-
irgaf og hvar á Austurlandi sýsla Gísla
var er ekki útskýrt nánar. En hugs-
anlega var það á almannavitorði.
x x x
Í þessu téða Morgunblaði er einnigsagt frá því að eimskipið Skjöldur
hafi komið frá Borgarnesi daginn áður.
Meðal farþega voru Einar M. Jónasson
með frú, Kristján Jónasson með frú og
svo fröken Guðrún Arnardóttir. Þarna
var ekkert verið að eyða dálksenti-
metrum í að gera grein fyrir giftum
konum!
vikverji@mbl.is
Víkverji
Viska er fyrir öllu, aflaðu þér visku,
kostaðu öllu til að afla þér hygg-
inda.
(Orðskviðirnir 4.7)
Allt um sjávarútveg
/////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////