Morgunblaðið - 20.07.2018, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2018
Myndarinnar Mamma Mia 2: Here
We Go Again hefur verið beðið með
óþreyju víða um heim.
Myndin hefur vakið jafnt gleði
sem ógleði hjá dönskum gagnrýn-
endum sem gefa myndinni eina til
fjórar stjörnur. Allir eru þeir þó
sammála um að myndin valdi von-
brigðum miðað við þá fyrri.
Gagnrýnandi Jyllands-Posten
segir myndina „geta gert hvaða
hugsandi mannveru sem er van-
sæla“ og gefur henni eina stjörnu.
Segir hann sjálfan Elton John líta
út sem skandinavískan mínimalista
í samanburði við myndina.
Allir tala þeir um lapþunnt hand-
rit og sögu og flestum þeirra þykja
lögin frábær en eru þó missammála
um hve miklu þau fái bjargað. Sum-
um þykja söngatriðin óþolandi yfir-
gengileg en öðrum finnst þetta allt
saman komið í hring og orðið
dásamlegt.
Kátar Leikkonurnar Lily James og
Amanda Seyfried á frumsýningu Mamma
Mia! Here We Go Again, sem þær leika í.
Danir mishrifnir
af Mamma Mia 2
AFP
Kvikmyndin Hearts Beat Loud, sem
fékk góðar viðtökur á Sundance-
kvikmyndahátíðinni, verður frum-
sýnd í Bíó Paradís í dag.
Þar segir frá feðginum sem taka
upp lag saman sem slær svo í gegn
á netinu, en faðirinn rekur sjálf-
stæða plötubúð og þykir tónlistin í
myndinni mjög góð.
Nick Offerman leikur pabbann
og söngkonan Kiersey Clemons
leikur dótturina og hefur fengið
mikið lof fyrir. Einnig má sjá Ted
Danson og áströlsku stórstjörnuna
Toni Collette.
Hjartnæm Stilla úr kvikmyndinni Hearts
Beat Loud sem verður frumsýnd í dag.
Feðgin slá í gegn
Að láta gera sér bilt við ergóð skemmtun. Það eru tilmargar hryllingsmyndirsem leggja allt sitt púður í
að láta áhorfendum bregða frekar en
að vanda innihaldið og það er í sjálfu
sér ekkert að því. Mynd á borð við
The Conjuring verður seint hampað
fyrir frábært handrit eða fram-
úrskarandi leikara en er samt sem
áður stórskemmtileg fyrir það eitt
að hræða úr manni líftóruna. Þessi
rússíbanabragur hefur þó sett
ákveðinn B-mynda stimpil á hroll-
vekjugeirann. Það krefst annars
konar og mun meiri hæfni að hræða
áhorfendur með ríku innihaldi og
umgjörð án þess að gera þeim sífellt
bilt við. Slíkar myndir koma ekki í
bíó á hverjum degi eða jafnvel ári.
Hryllingsmyndaiðnaðurinn hefur
verið í endurreisn á síðustu árum.
Eftir að hafa umborið illa tilhöfð og
ófrumleg stúlkubörn í náttkjólum í
meira en áratug þá geta hryllings-
aðdáendur andað léttar þar sem
meiri metnaður virðist vera að leggj-
ast yfir geirann. Myndir eins og Get
Out og The VVitch hafa fengið lof
fyrir ríka áherslu á spennuþrungið
andrúmsloft og erfiðar aðstæður
sem valda áhorfendum sívarandi
óþægindum og magna upp hápunkt-
ana. Þetta á einnig við um Heredit-
ary sem reiðir sig heldur á sálarang-
ist og vandaða umgjörð til að hrella
áhorfendur en beinagrindur sem
stökkva skröltandi út úr kústaskáp.
Það er best að vita sem allra
minnst um myndina áður en horft er
á hana en án þess að gefa of mikið
upp hefst myndin á því að ættmóðir
fjölskyldu deyr og hefur andlát
hennar misjöfn áhrif á meðlimi fjöl-
skyldunnar sem eiga fyrir í stirðum
samskiptum. Átakanlegur harmur
og stopul geðheilsa eru viðvarandi
stef í myndinni og uppbygging
myndarinnar er hæg en bítandi.
Kvikmyndin byrjar sem átakanlegt
fjölskyldudrama en þróast hægt og
bítandi út í allt aðra sálma. Lengi vel
er ómögulegt að segja til um hvaða
stefnu hún mun taka og þessi óvissa
magnar upp óþægindin hjá áhorf-
endum. Margir gagnrýnendur hafa
þess vegna líkt þessari hrollvekju
við Don’t Look Now og Rosemary’s
Baby.
Aðalleikarar Hereditary standa
sig allir með prýði í erfiðum hlut-
verkum en stjarna myndarinnar er
Toni Collette sem á frábæran leik
sem fjölskyldumóðirin Annie. Hún
býr yfir ótrúlegum hæfileikum þeg-
ar kemur að því að skipta á milli
andstæðra tilfinninga á sannfærandi
hátt sem á stóran þátt í að skapa
óværðina sem einkennir myndina.
Það kæmi ekki á óvart ef hún sópaði
til sín einhverjum verðlaunum eða í
það minnsta tilnefningum næsta vet-
ur. Leikkonan Milly Shapiro á einn-
ig lof skilið fyrir fyrsta aðalhlutverk
sitt á hvíta tjaldinu en hún er aðeins
16 ára gömul og verður áhugavert að
sjá hvernig ferill hennar þróast.
Myndatakan einkennist af löngum
skotum sem byggja sum upp eftir-
væntingu um hvenær verði klippt en
önnur fá áhorfandann til að rýna í
skjáinn og sjá hvort þar séu mikil-
væg smáatriði. Oft og tíðum tók sal-
urinn andköf yfir einhverju sem var
kyrrt í bakgrunni, en eftirvæntingin
yfir því hvað gæti hent er oft verri
en það sem gerist að lokum. Leik-
stjórinn Ari Aster fær þar hrós í
hattinn.
Myndin er þó ekki fullkomin, en
helst má setja út á lengd hennar.
Þrátt fyrir að uppbyggingin fyrir
lokakaflann sé áhrifarík þá dregst
myndin svolítið á langinn fyrir miðju
og hefði auðveldlega verið hægt að
stytta eða klippa nokkur atriði út.
Án þess að ljóstra upp hvernig
myndin endar þá kemur einræða í
blálokin sem minnir einna helst á
greinargerð því hún útskýrir í þaula
allt sem átti sér stað. Það hefði verið
betra að leyfa áhorfandanum að
melta það sem gerðist frekar en að
troða því ofan í hann því myndin er
sneisafull af fíngerðum smáatriðum
sem gætu jafnvel bætt við reynsluna
við annað áhorf. Það er ekki hægt að
lasta myndina sjálfa fyrir að hafa hlé
á miðri sýningu, en það kom sannar-
lega niður á bíóupplifuninni. Kvik-
myndahús landsins mega endilega
taka sér Háskólabíó til fyrirmyndar
hvað þetta varðar, en þar er ekki
lengur hlé á miðjum sýningum.
Á heildina litið er myndin einstak-
lega vel heppnuð og skilur mikið eft-
ir sig. Ef álit kvikmyndaiðnaðarins á
hryllingsmyndum vex á komandi ár-
um þá er óhætt að ætla að Heredit-
ary hafi átt þar þátt.
Geðshræring Toni Collette lýsir geðshræringu bíógesta þegar hlé klippti skyndilega á uppbyggingu kvikmyndarinnar.
Sambíóin Akureyri, Álfabakka,
Egilshöll og Keflavík.
Hereditary bbbbn
Leikstjórn og handrit: Ari Aster. Aðal-
leikarar: Toni Collette, Milly Shapiro,
Alex Wolff og Gabriel Byrne. 127 mín-
útur. Bandaríkin, 2018.
ARNAR TÓMAS
VALGEIRSSON
KVIKMYNDIR
Hrollvekja fyrir sælkera
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
amlegt ka
nýmalað,
en in h l i.
ynntu r Jura a v lar í Eirví . i óðum þér í kaffi.
s
k
é V ð jK k ffi
y
ICQC 2018-20